viewtopic.php?f=7&t=47981Las þessa grein og fékk ekkert útur henni og reyndi að finna eh um þetta kraftinum án árangurs. Bimmerforumst fjalla um þetta í löngum pisli og segja þetta algengt vandamál í þessum bifreiðum, og að heilarnir séu kóðaðir til að bila eftir ákveðna keyrslu, og í flestum tilvikum sé þetta heilinn sjálfur, en þar sem minn er settur í 16.03.2010 finnst mér þetta ekki eiga við minn bíl. Svo les maður að rebuild ABS module er víst betri en nýr.
En Hvergi sá ég um þessar aðstæður sem ég er að lenda í núna með minn bil. Svo ég ætla að varpa þessara spurningu á ykkur snillingana hérna á kraftinum í von um gott svar, ef hægt er.
Abs:
Ljósið kom á (hjá fyrri eiganda). Hann skipti um abs heilan 16.03.2010, allt hvarf og allt virtist vera í lagi. 30.03.2010, ljós kom aftur upp og greint hjá eðalbílum í annað skiptið og fær hann villu út á skynjarann vinstra megin að aftan. Skipt er um hann í borgarnesi, en ljósið byrjar svo að koma aftur.
Þá kem ég við sögu og heyri þetta og hugsa með mér eflaust legan sem hann hefur skemmt þegar hann setti þetta í. (Einhver grúskari sem gerið þetta fyrir hann.). Ég kaupi bílinn og allt í góðu, hann byrjar að lemja mig í fótinn af og til svo ég ákvað að taka bara öryggið úr sambandi svo það mundi hætta. Ég keyri bílinn og allt í fína þangað til hraðamælirinn aktar undarlega við mig, segir stundum of mikið og stundum stoppar í 40km/klst og allavegna læti á honum, svo virkar hann í mánuð og dettur síðan alveg út í svoldinn tíma, kikkaði aftur inn í viku og svo dó hann bara endanlega núna. Svo þegar mér langar að losna við þetta ljós núna þá læt ég laga leguna 24.02.2011(fimmtudaginn), og þar á meðal setja nýja skiptingu í bílinn. Viti menn ljósið hverfur ekki, tækniþjónusta bifreiða er í einhverju veseni með að lesa af honum og segja þetta sé jafnvel abs tölvan sjálf eða skynjari( vita hreinlega ekki hvað þetta er).
Svo núna sit ég uppi með abs ljósið logandi ásamt þessu þríhyrningarljósi(DSC) og er búinn að láta skipta um allt dótið. Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að.
Annaðhvort er heilinn ónýtur aftur, Mjög ólíklegt.
Legan hafi verið sett vitlaust í, voða hæpið en option.
Fékk ábendingu um rafkerfið, að heilinn fengi ekki straum eða eh þess háttar, hef bara ekki þekkinguna til að segja eh um það.
Svo er mitt gisk á að þessi grúskari sem setti skynjarann í hafi bara eiðilagt skynjaran jafnvel og það hafi verið málið í byrjun.
Einhverjar hugmyndir eða góð lausn væri vel þegin ef þú leynir á henni fyrir mig.
Með bestu óskum Hlynur