Zed III wrote:
Bjarkih wrote:
Ég ætla að kjósa já einfaldlega vegna þess að ég tel að það sé of dýrt fyrir okkur að hafa rétt fyrir okkur í þessu máli. Þó að við myndum ekki borga krónu þá mun það líklega tefja hagvöxt og við höfum ekki efni á því.
Gúgú.
Við erum að taka stöðu með eignasafni Landsbankanns og vona að allt fari vel. Hvað gerist ef það hættir að vera stemming fyrir að versla hjá Iceland í Englandi og verðmæti þess fyrirtækis fellur ?
Hver segir svo að þetta hafi áhrif á hagvöxt ? (og ef menn ætla að nefna fjármögnun fyrirtækja minni ég á að Marel kláraði fjármögnun í gegnum hollenska banka fyrir stuttu síðan).
Ég er 99% sammála því sem þú ert búinn að vera að segja hérna á síðustu blaðsíðum en verð að benda á að Marel hefur tengsl til stórfyrirtækis í Hollandi (Stork BV) og er því kannski ekki jafnt á velli og önnur "íslensk" fyrirtæki í leit að fjármögnun.
Þetta (að neita að borga Icesave) getur óneitanlega bitnað á okkur á ýmsum sviðum, s.s. orðspor, lánshæfismat og fleira, en ég kyngi frekar tönnunum en stoltinu þegar kemur að því að kjósa um þetta mál. Ef það er ekki til dómur sem segir að íslenska þjóðin sé ábyrg, þá lít ég svo á að við séum ekki ábyrg. Sama hvað Geir Haarde gaf loforð um(án umboðs) eða hvað.