Danni wrote:
Ég misskildi aðeins þegar ég las þetta fyrst, þegar þú sagðir að það var fyllt á olíuna og vatnið þá las ég sem að olían væri full af vatni.
Hversu hratt tæmir hann vatnið af sér og var alveg pottþétt loftæmt rétt þegar það var fyllt á?
Er einhverstaðar smit að sjá á vélinni eða í kringum vatnskassann? Ef vatnið er ekki að hverfa mjög hratt getur verið lítill leki sem er svo hægur að vatnið nær að þorna áður en það byrjar að dropa undan honum, það getur verið mjög óþægilegt ef að lekinn er á einhverjum stað sem sést ekki.
En fyrst að það er búið að leka eitthvað vatn af honum, í þetta eina skipti (ef ég skildi þetta rétt) þá hlýtur bara að vera að það er leki einhverstaðar á kerfinu.
Um ég veit ekki nákvæmlega hversu hratt hann tæmir vatnið :/ en það gæti verið að það þurfi að loftæma þetta betur, svo er dælan víst farin hjá mér samkvæmt félaga mínum. Þetta kemur svosem betur í ljós á morgun, er að spá í að henda bílnum inná verstæði og byðja þá um að skoða bílinn fyrir mig og athuga hvað er að angra hann

.