hjálp fólk :/

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

hjálp fólk :/

Postby OM530 » Tue 22. Feb 2011 01:50

Góðan daginn fólk, ég ætlaði að ath hvort að þið gætuð aðeins hjálpað mér :/ stend í smá veseni með bimmann minn :(, hann ofhitar sig og missir allt vatn á einhvern hátt.. en það lekur samt ekki stanslaust undan honum, kom bara fyrir 1x áðan.. og svo núna vill hann ekki ganga í lausagang og það kom eitthvað svaðalegt píp í honum þegar ég reyndi að starta honum. Hann var fylltur af Olíu og vatni í gær, en einhvern vegin hvarf allt vant af honum og það þarf endalaust að vera bæta á hann :/.. ef einhver getur komið með skýringu á þessu eða sagt mér nákvæmlega hvað þetta er væri það alveg æðislegt :) og ef þið viljið spurja að einhverjum frekari spurningum þá er það í lagi líka :)..

Bára
OM530
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 22. Feb 2011 01:19

Re: hjálp fólk :/

Postby Danni » Tue 22. Feb 2011 02:49

Ég myndi segja miðað við þessa lýsingu að það er að öllum líkindum farin heddpakkning. Hann hefur ofhitnað og sprengt heddpakkninguna og jafnvel heddið líka. Þá smitast vatnið í olíuganginn og svona gerist, olían verður full af vatni kælivatnið hverfur af honum.

Hvernig BMW er þetta?

*Edit: Miðað við notendanafnið þá er þetta 320i sjálfskiptur árgerð 1995, stemmir það?
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: hjálp fólk :/

Postby OM530 » Tue 22. Feb 2011 03:25

Danni wrote:Ég myndi segja miðað við þessa lýsingu að það er að öllum líkindum farin heddpakkning. Hann hefur ofhitnað og sprengt heddpakkninguna og jafnvel heddið líka. Þá smitast vatnið í olíuganginn og svona gerist, olían verður full af vatni kælivatnið hverfur af honum.

Hvernig BMW er þetta?

*Edit: Miðað við notendanafnið þá er þetta 320i sjálfskiptur árgerð 1995, stemmir það?



jem það stemmir, en hann hefur ekkert ofhitnað af viti, ig að olían er ekki full af vatni eða neitt þannig dót :/ ..
OM530
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 22. Feb 2011 01:19

Re: hjálp fólk :/

Postby JonHrafn » Tue 22. Feb 2011 07:15

Já hedd eða heddpakkning er það fyrsta sem manni dettur í hug. Pústar hann hvítum reyk?

Annars væri byrjunin bara að láta hann á lyftu og reyna koma auga á leka.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Re: hjálp fólk :/

Postby OM530 » Tue 22. Feb 2011 15:15

JonHrafn wrote:Já hedd eða heddpakkning er það fyrsta sem manni dettur í hug. Pústar hann hvítum reyk?

Annars væri byrjunin bara að láta hann á lyftu og reyna koma auga á leka.



Hann hefur ekki pústað hvítum reyk svo ég hafi tekið eftir eða nokkur annar :/.
OM530
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 22. Feb 2011 01:19

Re: hjálp fólk :/

Postby Danni » Tue 22. Feb 2011 17:15

Ég misskildi aðeins þegar ég las þetta fyrst, þegar þú sagðir að það var fyllt á olíuna og vatnið þá las ég sem að olían væri full af vatni.

Hversu hratt tæmir hann vatnið af sér og var alveg pottþétt loftæmt rétt þegar það var fyllt á?

Er einhverstaðar smit að sjá á vélinni eða í kringum vatnskassann? Ef vatnið er ekki að hverfa mjög hratt getur verið lítill leki sem er svo hægur að vatnið nær að þorna áður en það byrjar að dropa undan honum, það getur verið mjög óþægilegt ef að lekinn er á einhverjum stað sem sést ekki.

En fyrst að það er búið að leka eitthvað vatn af honum, í þetta eina skipti (ef ég skildi þetta rétt) þá hlýtur bara að vera að það er leki einhverstaðar á kerfinu.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: hjálp fólk :/

Postby OM530 » Wed 23. Feb 2011 00:38

Danni wrote:Ég misskildi aðeins þegar ég las þetta fyrst, þegar þú sagðir að það var fyllt á olíuna og vatnið þá las ég sem að olían væri full af vatni.

Hversu hratt tæmir hann vatnið af sér og var alveg pottþétt loftæmt rétt þegar það var fyllt á?

Er einhverstaðar smit að sjá á vélinni eða í kringum vatnskassann? Ef vatnið er ekki að hverfa mjög hratt getur verið lítill leki sem er svo hægur að vatnið nær að þorna áður en það byrjar að dropa undan honum, það getur verið mjög óþægilegt ef að lekinn er á einhverjum stað sem sést ekki.

En fyrst að það er búið að leka eitthvað vatn af honum, í þetta eina skipti (ef ég skildi þetta rétt) þá hlýtur bara að vera að það er leki einhverstaðar á kerfinu.


Um ég veit ekki nákvæmlega hversu hratt hann tæmir vatnið :/ en það gæti verið að það þurfi að loftæma þetta betur, svo er dælan víst farin hjá mér samkvæmt félaga mínum. Þetta kemur svosem betur í ljós á morgun, er að spá í að henda bílnum inná verstæði og byðja þá um að skoða bílinn fyrir mig og athuga hvað er að angra hann :).
OM530
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 22. Feb 2011 01:19


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 4 guests