bimmer wrote:Usss hvað Sljóhanna og Seingrímur hljóta að vera pirruð núna
ójá mig hlakkar svo til að sjá viðbrögð þeirra í kvöldfréttum.
þetta er farið að verða eins og Sápuópera á RÚV nema þetta er spennandi.
bimmer wrote:Usss hvað Sljóhanna og Seingrímur hljóta að vera pirruð núna
Bjarkih wrote:Ok, allir voða happy yfir því að þurfa að lesa Icesave samninginn. Nema þeir ætli bara að kjósa án þess að kynna sér málið. En það hefur enginn getað svarað einu: Af hverju eru allir að pirrast út í Icesave og heimta kosningar en enginn mótmælir því að borga jafnvel hærri upphæðir fyrir ástarbréfin frægu? Eða er ég bara að bulla? Af hverju segir enginn neitt við því???

jeppakall wrote:
jeppakall wrote:að vísu, en í guðanna bænum förum að klára þetta helvítis mál og snúa okkur að öðru!

fart wrote:Ég vill að við förum "all in" og látum dómstóla dæma um þetta.
Niðurstaðan gæti orðið skelfileg, en þá þurfum við allavega ekki að segja um ókomna framtíð "hvað ef við hefðum farið dómstólaleiðina".
Að semja er kanski lang glæfralegasta leiðin.

JonHrafn wrote:Þetta er nú ljóta ruglið að ætlast til þess að hluti skattekna minna, út starfsævina, fari í að borga þetta klúður. Svo ekki sé minnst á börnin og barnabörnin.
Flott move hjá Ólafi og í raun það eina sem hann gat gert ef maður horfir til fyrri ákvarðana hans í þessu.
Er það fullmikil einföldun hjá mér að segja, ef Landsbankinn dugir ekki til að borga kröfur, þá bara tough luck fyrir kröfuhafa?
fart wrote:JonHrafn wrote:Þetta er nú ljóta ruglið að ætlast til þess að hluti skattekna minna, út starfsævina, fari í að borga þetta klúður. Svo ekki sé minnst á börnin og barnabörnin.
Flott move hjá Ólafi og í raun það eina sem hann gat gert ef maður horfir til fyrri ákvarðana hans í þessu.
Er það fullmikil einföldun hjá mér að segja, ef Landsbankinn dugir ekki til að borga kröfur, þá bara tough luck fyrir kröfuhafa?
Sko..... Já og nei.
Vandamálilð í þessu eru líka neyðarlögin sem Geir H. og félagar settu. Það ruglaði allri röð kröfuhafa, og tryggði innstæður á Íslandi að fullu. Eins mikil snilld og sumir vilja meina að þau hafi verið þá gætu þau kostað Ísland slatta.
Gunni wrote:fart wrote:JonHrafn wrote:
Það er nú einmitt heila málið. Hluti skattgjalda hans Jons Hrafns hefur nu þegar verið þjóðnýttur í að "borga" íslendingum allar
innstæður yfir Evróputryggingunni, án þess að nokkur maður hafi sagt múkk.
Þessi Icesave samningur snýst "bara" um það að greiða út lögbundna tryggingu sem er sama fjárhæð allsstaðar í Evrópu. Þessi
upphæð er meira að segja fest í lög á Íslandi. Þar sem Íslendingar fengu sína tryggingu og gott betur þá er óhjákvæmilegt að
það þurfi að greiða öðrum líka, ekki satt?
Ég er nú ekki lögfræðimenntaður, en ég sé ekki rökin fyrir því að dómstólar ættu að dæma Íslandi í vil. Líklegri niðurstaða yrði
frekar að Ísland þyrfti að greiða út heildarupphæð fyrir erlenda ríkisborgara eins og gert var fyrir þá íslensku. Þetta apparat var
jú sett upp samkvæmt Evrópureglum af því að við vorum hluti af því öllu, það er því tæpt að ætla ekki einusinni að greiða lögbundnu
trygginguna fyrir innstæðurnar.


Users browsing this forum: No registered users and 43 guests