Það sem fer mest í taugarnar á mér er hugmyndaleysi ríkisstjórnarinnar sem og stjórnarandstöðu og þeirra aðila sem núna ættu að vera á fullu í því að reyna að finna lausnir til að koma atvinnulífinu af stað.
Menn rífast um hitt og þetta út í eitt. Sumir vilja virkjanir og svo álver, en slíkt tekur tíma og er umdeilt, aðrir vilja gagnaver, tollfrjálst svæði og ýmislegt annað, sem er allt gott og gilt... en.... ég er búinn að vera að suða um sama hlutinn í tvö ár núna og er orðinn þreyttur á því að segja þetta, kanski er hugmyndin mín svona öfgavitlaus.. but here goes nothing.
Ísland: Helsta eign er fiskurinn, orka og svo mikil víðátta af náttúru sem varla fyrirfinnst annarstaðar og er dásömuð fyrir fegurð og fjölbreytileika. Við erum að nýta fiskinn, við erum líka að nýta orkuna töluvert. Það sem við erum EKKI að nýta sem skildi er Íslensk náttúra.
Þar þarf nákvæmlega ekkert að byggja, setja í umhverfismat eða neitt annað. Verksmiðjan Ísland er til nú þegar. Eina sem vantar er hráefnið (túristarnir). Túristabransi er gríðarlega gjaldeyrisskapandi, á mjög mörgum sviðum. Túristar sem koma til Íslands eru ekki að koma til að vera í einhverri veðurparadís. Stór hluti þerra túrista sem kemur til Íslands eru ekki bundnir við að ferðast á háannatíma. Þetta eru oftar en ekki sigle fólk, efnað fólk og eldra fólk.
Túristabransinn skapar gríííðiarlega atvinnu. Hótel, veitingastaðir, bílaleigur, leigubílar, rútur, leiðsögumenn, verslanir og svo má lengi telja þurfa öll á mannafli að halda. Ekkert af þessu gengur vel án þess að fólk sé þar við vinnu. Hótel: Almennt vannýtt á lágannatímum Bílaleigur: ekkert nýttar á lágannatímum Veitingastaðir: oft tómir á kvöldin, og ég fullyrði að á íslandi er þéttasta safn af topp veitingastöðum á t.d. 1km radíus í heiminum. Svo mætti lengi telja.
Af hverju ekki að nýta þessa maskínu??? Af hverju hefur ríkið ekki farið í átak til að fá gjaldeyri til landsins með því að moka inn fólki. Jújú það var farið í þessa herferð á youtube.. en hvað svo?? ekkert.
Af hverju niðurgreiðir ríkið ekki ferðir til Íslands, slíkt þekkist allstaðar í heiminum. Af hverju hvetja menn ekki Icelandair/Express fengin til að fljúga fleiri ferðir, ríkið borgar X tölu fyrir hvern útlending sem félögin koma með til Íslands. Annað sem væri hægt að gera væri að ríkið færi hreinlega í útboð á t.d. 100,000 miðum til (og frá) Íslandi, fá BA, Lufthansa, KLM, SAS, AA og alla þessa risa til að bjóða í þetta og MOKA fólki inn í landið.
Þetta er tækifæri sem er til staðar, allt facility, engin kostnaður eða uppbyggingatími!
EDIT:
Gleymdi að það er ALLTOF dýrt að fljúga til Íslands, en þegar til Íslands er komið er bara frábærlega ódýrt að vera þar. Útlendingarnir horfa rosalega í kostnaðinn við að koma sér á staðinn.
_________________
E36 M3GTtt
|