gulli wrote:
Smá offtopic hérna... það tala margir um að sleppa því að versla coilovers nema "maðurinn" ætli sífelt að vera að hækka og lækka, eru menn bara að þessu allt sumarið ??? þeas að lækka fyrir drift, hækka eftir drift, lækka fyrir spyrnu, hækka eftir spyrnu osfv... Er þetta ekki smá aðgerð að vera að fikta í hæðarstillingunum á þessu.
Misjafnt hversu mikið vesen þetta er.
En núna er ég með svona coilover kerfi í E30 hjá mér, er alveg sáttur með mitt kerfi per say, en er samt á því að ég hefði átt að fara í fasta lækkun frá KW/Bilstein og gott og simpelt kerfi.
Auðvitað er þægilegt að geta ákveðið hvað þú ætlar að lækka mikið, í mínu tilfelli lækkaði ég þangað til það fór að röbba og hækkaði hann svo aðeins til að losna við það.
Hugsa að eina tilfellið sem ég færi að hræra í þessu hjá mér ef ég ætlaði í ferðalag á bílnum og væri hræddur við að reka hann undir, væri gott að geta hækkað bílinn alveg í botn ef maður ætlaði í annan Euro-tour eða eitthvað slíkt.