skulzen wrote:
getur verið vacum leki, léleg kerti, fær ekki neista, dregur falskt loft, allavega svona mínar hugmyndir

Geturðu útskýrt vacum leka betur ?
Það er séns að kertin séu orðin eldgömul. Ég hef ekki athugað það ennþá og ætla að gera það bráðlega!
BMW_Owner wrote:
hægagangsmótorinn?

Bjarki hjá Eðalbílum nefndi þetta við mig þegar þetta var að byrja að gerast. Þá drap bíllinn einstaka sinnum á sér en núna er það krónískt.
kalli* wrote:
BMW_Owner wrote:
hægagangsmótorinn?

Lenti í því sama á mínum (svipað allavega), kom í ljós að það þurfti að skipta um
soggreinapakkningar og þennan hægagangsmótor svo ég myndi skoða hægagangsmótorinn.
Mikill kostnaður/vesen ? Er hægt að DIY ?
slapi wrote:
Ég held að það sé ekkert að hjá þér.
Einfaldlega málið sé að tölvan í bílnum kunni ekki að bregðast við nýjum gildum frá loftflæðimælirnum og þurfi að endurstilla lærðu gildin í tölvunni.
Þetta ætti að jafna sig á löngum tíma en sneggsta leiðin til að finna útur því er að láta tengja hann við tölvu og endursetja adaption values.
Sko þegar ég fór í Eðalbíla þá prófaði hann að endursetja adaption values á s.s. ónýta MAF. Síðan keyrði ég vestur og bíllinn hefur verið lagður síðan þá. Þannig að eftir að adaption values voru endursett þá var bíllinn keyrður um 600km. MAF'inn sem ég keypti er splunkunýr Bosch og *ætti* að vera í lagi en ég get náttúrulega ekki fullyrt það fyrr en ég tengi við DIS sjálfur.