bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 20. Jun 2025 13:44

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 14:13 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Sælir og gleðilegt nýtt ár.

E39 1999 540 bíllinn minn fór að láta illa fyrir jól og tók upp á að drepa á sér statt og stöðugt. Það fór versnandi og bíllinn varð nánast alveg óökuhæfur því hann hélst ekki í gangi og krafturinn mjög mismikill. Ég fór í Eðalbíla, lét lesa af honum og niðurstaðan var sú að MAF sensorinn sýndi alveg tvöfalt meira en hann átti að gera (man ekki tölurnar) og Bjarki sagði að ég þyrfti að skipta um MAF.

Ókei, ég útvegaði mér nýjan alvöru Bosch MAF og skipti um áðan. Þegar ég startaði honum hélst hann í gangi, en rosalega var hann tæpur á að drepa á sér. Þegar ég tók smá rúnt til að leyfa bílnum að hita, eins og það skipti máli, þá drap hann á sér við hvert einasta tækifæri þegar ég sleppti bensíngjöfinni.

Í stuttu máli:
MAF sensorinn var í ólagi og ég er núna kominn með nýjan sem *ætti* að vera í lagi. Hvað annað gæti ollið þessu ? Ég tók vídeó af hvernig bíllinn var að láta til að sýna ykkur:

http://www.youtube.com/watch?v=U_T0N00Z9lg

Eru ekki einhverjir snillingar þarna sem kannast við svona stæla ? Endilega spyrjið ef þið þurfið frekari upplýsingar um hegðun bílsins.

_________________
1999 e39 540 4,4l V8
Image


Last edited by geirisk8 on Wed 05. Jan 2011 13:08, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 16:21 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 04. Jan 2009 22:15
Posts: 152
getur verið vacum leki, léleg kerti, fær ekki neista, dregur falskt loft, allavega svona mínar hugmyndir :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 17:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58
Posts: 1965
hægagangsmótorinn? :thup:

_________________
BMW 528Ia


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 17:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06
Posts: 2687
BMW_Owner wrote:
hægagangsmótorinn? :thup:


Lenti í því sama á mínum (svipað allavega), kom í ljós að það þurfti að skipta um
soggreinapakkningar og þennan hægagangsmótor svo ég myndi skoða hægagangsmótorinn.

_________________
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 19:19 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43
Posts: 2186
Ég held að það sé ekkert að hjá þér.

Einfaldlega málið sé að tölvan í bílnum kunni ekki að bregðast við nýjum gildum frá loftflæðimælirnum og þurfi að endurstilla lærðu gildin í tölvunni.
Þetta ætti að jafna sig á löngum tíma en sneggsta leiðin til að finna útur því er að láta tengja hann við tölvu og endursetja adaption values.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 19:26 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sun 03. Oct 2010 17:03
Posts: 504
Location: Vestmannaeyjar
Þetta hljómar nú einsog dyrari typan af mínu veseni þegar MAFin var ónytur, drap á sér á gatnamótum, rokkaði upp og niður í lausagangi og var kraftlaus á háum snúning. Er hann örugglega í lagi sá nýji ?

_________________
    E39 540i "00
    RAV4 "96
    R6 "04
Gamalt.
    Corsa gsi
    Astra gsi
    Kadett gsi
    Calibra
    Conquest tsi
    Formula 400
    Nova SS
    Vetta pacecar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 20:34 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
skulzen wrote:
getur verið vacum leki, léleg kerti, fær ekki neista, dregur falskt loft, allavega svona mínar hugmyndir :)


Geturðu útskýrt vacum leka betur ?

Það er séns að kertin séu orðin eldgömul. Ég hef ekki athugað það ennþá og ætla að gera það bráðlega!

BMW_Owner wrote:
hægagangsmótorinn? :thup:


Bjarki hjá Eðalbílum nefndi þetta við mig þegar þetta var að byrja að gerast. Þá drap bíllinn einstaka sinnum á sér en núna er það krónískt.

kalli* wrote:
BMW_Owner wrote:
hægagangsmótorinn? :thup:


Lenti í því sama á mínum (svipað allavega), kom í ljós að það þurfti að skipta um
soggreinapakkningar og þennan hægagangsmótor svo ég myndi skoða hægagangsmótorinn.


Mikill kostnaður/vesen ? Er hægt að DIY ?

slapi wrote:
Ég held að það sé ekkert að hjá þér.

Einfaldlega málið sé að tölvan í bílnum kunni ekki að bregðast við nýjum gildum frá loftflæðimælirnum og þurfi að endurstilla lærðu gildin í tölvunni.
Þetta ætti að jafna sig á löngum tíma en sneggsta leiðin til að finna útur því er að láta tengja hann við tölvu og endursetja adaption values.


Sko þegar ég fór í Eðalbíla þá prófaði hann að endursetja adaption values á s.s. ónýta MAF. Síðan keyrði ég vestur og bíllinn hefur verið lagður síðan þá. Þannig að eftir að adaption values voru endursett þá var bíllinn keyrður um 600km. MAF'inn sem ég keypti er splunkunýr Bosch og *ætti* að vera í lagi en ég get náttúrulega ekki fullyrt það fyrr en ég tengi við DIS sjálfur.

_________________
1999 e39 540 4,4l V8
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 03. Jan 2011 23:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06
Posts: 2687
Hægargangsmótorinn kostaði 2000 en veit ekkert hverning þetta er í e39 (e36 compact hjá mér), með vinnu þar að meðal soggreinapakkningsvinnunna og finna út í rauninni hvað var að bílnum fyrst þá var þetta í heild eitthvað um 100 þúsund.

Ath ,, allt verð hjá TB.

_________________
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 04. Jan 2011 00:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Athugaðu hvort þú sért kannski með staðsetningabúnað víraðann við bensíndælurelayið. Það var vandamálið hjá mér. :lol:

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 04. Jan 2011 01:10 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Hægagnagsmótor, er hægt að skipta um svoleiðis auðveldlega sjálfur ? Ég veit ekki hvað hann heitir á ensku og get því ekki flett upp upplýsingum um hvernig eigi að skipta um svoleiðis. Hjálp ?

_________________
1999 e39 540 4,4l V8
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 04. Jan 2011 01:21 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 29. Apr 2003 19:16
Posts: 881
geirisk8 wrote:
Hægagnagsmótor, er hægt að skipta um svoleiðis auðveldlega sjálfur ? Ég veit ekki hvað hann heitir á ensku og get því ekki flett upp upplýsingum um hvernig eigi að skipta um svoleiðis. Hjálp ?



ICV - idle control valve

_________________
E28 518i 1986
E28 518i 1986
E28 518i 1986
E30 318i 1986
ofl...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 04. Jan 2011 01:22 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Tóti wrote:
geirisk8 wrote:
Hægagnagsmótor, er hægt að skipta um svoleiðis auðveldlega sjálfur ? Ég veit ekki hvað hann heitir á ensku og get því ekki flett upp upplýsingum um hvernig eigi að skipta um svoleiðis. Hjálp ?



ICV - idle control valve


Takk!

edit: ætla að prófa þetta: http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... p?t=589747

Læt vita á morgun hvernig heppnast!

Edit2: Aðeins 97 og 98 bílar (pre-vanos) eru með ICV. Ég veit því ekkert hverju ég á að leita eftir.

_________________
1999 e39 540 4,4l V8
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 04. Jan 2011 16:26 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Jæja, ég hélt að ég yrði kannski heppinn, því bíllinn er framleiddur 02/99, og vonaðist eftir að sjá hægagangsmótor en ég athugaði og það er enginn svoleiðis mótor í mínum bíl þannig að ég þarf að leita að einhverju öðru sem er ekki í lagi. Gaman!

_________________
1999 e39 540 4,4l V8
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 05. Jan 2011 13:08 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
En skrýtið, eftir að ég setti nýja MAF í þá gekk bíllinn ekkert betur en ég ákvað að taka round 2 í gærkvöldi til að vera alveg viss um að ekkert hafi lagast og viti menn; hann gengur eins og nýr núna! Það er greinilegt að gamli MAF'inn var ónýtur og olli þessu. Þegar ég setti nýja í þá tók lengri tíma en ég bjóst við fyrir bílinn að jafna sig.

So far þá er allt í lagi með hann og mörg söknuð hestöfl komin aftur! Ég ætla samt sem áður að hafa augun opin fyrir öllum öðrum möguleikum sem geta valdið svona truflunum.

_________________
1999 e39 540 4,4l V8
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 05. Jan 2011 21:58 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43
Posts: 2186
slapi wrote:
Ég held að það sé ekkert að hjá þér.

Einfaldlega málið sé að tölvan í bílnum kunni ekki að bregðast við nýjum gildum frá loftflæðimælirnum og þurfi að endurstilla lærðu gildin í tölvunni.
Þetta ætti að jafna sig á löngum tíma en sneggsta leiðin til að finna útur því er að láta tengja hann við tölvu og endursetja adaption values.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group