saemi wrote:
Ussss þetta er ljótt að sjá.
En svona er að vera í team turbo. Það er ekki að ástæðulausu sem menn eru að blueprinta allt draslið í keng þegar þeir fara út í svona (ekki að þú hafir ekki gert það).
Það þarf ekki nema smá óheppni og þá gerist svona.
Ég ætla að giska á spíss sem gaf veikari blöndu á þessa 2 heldur en hina, of lean bruni og voila, einn brunninn ventill eða stimpill á 0-1-i.
Annars getur þetta verið svo margt. Hvernig spíssar voru aftur í þessu, var þetta nýtt og eða flow-matchað?
Núna man ég ekki hversu snemma þetta byrjaði hjá honum, enn varla hefur þetta verið svona þegar hann setti MLS og ARP í.
Við vitum af því að það er eitthvað issue með spíssanna uppá lengdina hjá þeim þannig að þeir eru líkast til að sprauta hluta af mixtúrunni ekki neitt .
Ertu með mynd af spíssunum og hvernig þeir sitja í soggreininni?
Með svona gat á stimpili þá hefði bílinn átt að vera töluvert öflugari BTW.
EDIT :
Ef þú merkir þá vel þannig að þú vitir hverjir sátu fyrir ofan stimplanna sem brunnu þá geturru sent mér þá(þurfa bara að komast til Skúla) og ég get flæðimælt spíssanna til að sjá hvort það sé eitthvað issue þar. Við erum með ANSU flæðibekk í vinnunni. Þeir gætu verið komnir aftur tilbaka fyrir lok Jan.
Þegar við vorum að tjúna þá hegðaði þetta sér svona sem dæmi
Lambda 1.0 = lélegur lausagangur og frekar truntulegur
Lambda 0.72-0.74 (10.6-10.9:1 AFR) = 100% NEW BMW IDLE, enn svartur reykur ,
Ef við gerum okkur eitt scenario sem væri þannig að þessir tveir þarna séu minni enn hinir og að þegar stærri hafi verið í 0.73 lambda þá hafi minni verið í kringum 0.95 lambda , þannig að undir boosti þá voru stóru í 0.78-0.8 eins og er best. Enn
minni hafa þá verið í Lambda 1.01 , sem útskýrir vel að stimlarnir séu bráðnaðir.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
