BMW 540 e39 Shadowline | 18" komnar frá Pólýhúðun!

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby SteiniDJ » Tue 02. Nov 2010 12:35

Hvernig gerðirðu þetta?! Ég á PS2 sem er _aldrei_ notuð og væri feitt til í svona mix. :lol:

Heitir skjárinn okkar ekki annars MkIII og sá stærri MkIV?
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby geirisk8 » Tue 02. Nov 2010 22:39

SteiniDJ wrote:Hvernig gerðirðu þetta?! Ég á PS2 sem er _aldrei_ notuð og væri feitt til í svona mix. :lol:

Heitir skjárinn okkar ekki annars MkIII og sá stærri MkIV?


Ég er ekki alveg klár á hver munurinn er á milli MK1,2,3,4 en ég held samt að MK2 og ofar séu 16:9 skjáirnir, en mismunandi kynslóðir navigation. En eins og ég segi, ekki alveg með þetta á hreinu.

Hvernig tengdi ég PS2 ? Skítlétt!

1. Keypti þetta: http://www.toysinyourcar.com/acatalog/bmw_av.html

2. Tengdi við TV tækið í skottinu, skítlétt, fer þar sem hvíti plöggurinn (minnir mig, eða blái) fer og virkar sem millistykki.

3. Þræddi RCA snúru fyrir vídeó og mono audio úr skottinu, fram í bílstjóramegin, bakvið miðstöðina og meðfram þarna "miðjunni" á milli sætanna og út undir farþegasætinu þar sem tölvan er staðsett.

4. Keypti þetta: http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-Auxi ... 516wt_1167

5. Tengdi í hanskahólfinu ásamt PS2 straumbreyti fyrir bíl og kom fyrir í hanskahólfinu (nota það hvort eð er aldrei).

6. Þræddi niður úr hanskahólfinu og á bakvið allt shittið þar til ég tók út við hliðina á farþegasætinu þar sem RCA snúran kemur. Það fer undir sætið og tengist við tölvuna.

7. Útvegaði mér þráðlausri PS2 fjarstýringu og viola! Fer í Television í sjónvarpinu og vel AUX rásina, virkar perfectly!

Ég skal taka myndir af þessu við tækifæri en ekki núna því bíllinn er megaskítugur að innan jafnt sem utan og mikil óreiða vegna tímaleysis.

-----

ps. er að vinna í að laga 18" felgurnar. Ætla að þrífa mjög ítarlega, hreinsa allt af þannig að aðeins álið stendur eftir, spastla, pússa það upp, grunna sprauta og lakka. Ég hafði hugsað mér að hafa þær ekki eins bjartar og þær eru heldur svona reyklitaðar, en ekki of dökkar samt sem áður.


Lélegar símamyndir en felgan til vinstri lítur talsvert betur út þrifin en sú hægra megin, óþrifin! Þessar sem standa ennþá eru ósnertar í bili.
Image

Image
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby íbbi_ » Tue 02. Nov 2010 22:41

2001 bílar eru með stóra skjánum, en sama viðmóti og í þeim litlu, en að ég held "seinniparts" 2002 eru svo með viðmóti líkara lúkkinu í I-Drive
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby SteiniDJ » Tue 02. Nov 2010 23:19

Má ég ekki koma bara með bílinn + parta til þín? :mrgreen: Var ekkert mál að þræða þetta dót?

Annars hljómar það vel að taka felgurnar í gegn, jafnvel bara að taka þær vel að innan.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby srr » Tue 02. Nov 2010 23:28

Voða er allt eitthvað skítlétt shitt hjá þér....

Kyssiru mömmu þína með þessum sorakjaft? :lol:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby geirisk8 » Sat 13. Nov 2010 22:21

SteiniDJ wrote:Má ég ekki koma bara með bílinn + parta til þín? :mrgreen: Var ekkert mál að þræða þetta dót?

Annars hljómar það vel að taka felgurnar í gegn, jafnvel bara að taka þær vel að innan.


Hah já veistu ef ég byggi nú fyrir sunnan þá myndi ég kíkja á þetta en ég bý á Ísafirði :D Já veistu ég er dauðspenntur fyrir að klára felgurnar og hef allan veturinn í að klára.

srr wrote:Voða er allt eitthvað skítlétt shitt hjá þér....

Kyssiru mömmu þína með þessum sorakjaft? :lol:


Hahahaha! Kannski túlka ég orðið "skítlétt" öðruvísi en aðrir, mér finnst gaman að hafa fyrir hlutunum og dunda mér. Þegar ég segi að hlutirnir séu ekki skítléttir þá er það einfaldlega vegna þess að ég bara get ekki gert þá á eigin spýtur.

Ég keypti mér Dension Gateway Lite til að tengja iPhone og iPod í stað geislasdiska en helvítis draslið virkar ekki! Ég er búinn að skoða hljóðkerfið aftur í skotti alveg ítarlega og gera ýmsar tilraunir en græjurnar mínar virðast vera eitthvað fáránlega settar upp, ekki eins og OEM þó þetta sé ALLT OEM tæki. Ég get ekki útskýrt en það er eitthvað mjög fishy við uppsetninguna...

Ein mynd í lokin:

Image
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby geirisk8 » Tue 16. Nov 2010 22:06

Helvítis maður! Þetta þykir mér mjög skrýtið því eftir að ég keypti mér framljósin frá Ümnitza þá hafa BÆÐI ballöstin skemmst. Ég er búinn að fá nýtt eitt skipti og er núna að bíða eftir næsta. Upphaflega þegar ég pantaði þá bað ég ekki um slim ballöst en fékk þau samt og svo þegar ég hafði samband og fékk nýtt þá var það ekki slim.

Ég pantaði mér capacitor til að koma í veg fyrir flökti í xenon og vona að það hjálpi til.
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby SteiniDJ » Tue 16. Nov 2010 23:46

Nú man ég ekki, en varstu með OEM xenon? Er bara að pæla hvort það sé eitthvað vesen að keyra um með þessi ljós.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby geirisk8 » Wed 17. Nov 2010 11:33

SteiniDJ wrote:Nú man ég ekki, en varstu með OEM xenon? Er bara að pæla hvort það sé eitthvað vesen að keyra um með þessi ljós.


Upphaflega OEM já en skipti síðan út öllu ljósadótinu fyrir vörum frá Ümnitza. Ég veit ekki hvort ég fékk bara einhver vitlaus ballöst eða eitthvað. Ég ætla að sjá hvernig þetta þróast. Það kom aldrei upp neitt error eða neitt.
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: BMW 540 e39 Shadowline | Ný mynd! PlayStation 2

Postby geirisk8 » Wed 15. Dec 2010 19:26

Rosa-update:

Bæði framljós allt í lagi núna og virka fínt, skulum vona að ballöstin endist eitthvað í þetta skipti.

Ég var að spila á rokksýningu og balli hérna seinustu helgi og geymdi bílinn á bílastæði yfir nóttina. Haldiði að ég hafi ekki komið að bílnum þar sem búið var að klessa á afturbrettið hægra megin þannig að bæði brettið og hurðin, rétt fyrir neðan handfangið, var beyglað! Sem betur fer voru vitni sem sáu þetta og allt gekk vel, fór í gegnum tryggingarnar og búið er að laga bílinn.

Ég græddi svolítið á þessu því akkurat á þessum stað var farið að myndast smá ryð í brettiskantinum og það var lagað í leiðinni, snilld!

Annað mál í fréttum að þá var ég að kaupa mér Dice Silverline Pro með DSP tengingu svo ég geti loksins losnað við geisladiskamagasínið og tengt iPod við. Kannski maður selji spilarann ef einhver hefur áhuga ?

Eftir langan tíma hef ég _vonandi_ loksins komist að því hvað er að hrjá bílinn minn. Það er líklegt að tengingarnar á bensíndælunni sé orðin slöpp eða eitthvað í kringum það. Ég var að lesa þennan þráð: http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... ?t=1571798 og ef þið lesið hvernig hann lýsir bílnum sínum að þá er minn nákvæmlega akkurat eins. Ég ætla að fara í það fljótlega og sjá hvort bíllinn lagist eitthvað við það!

Á meðan bimminn var í viðgerð fékk ég þetta hræ til að keyra um á:
Image

2010 Toyota Auris.

Ekki láta mig byrja að telja upp hvað er rangt við þennan bíl..
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: BMW 540 e39 Shadowline | ákeyrsla o.fl!

Postby SteiniDJ » Wed 15. Dec 2010 20:39

Fúlt að heyra en gott að allt fór vel. Væri snilld ef þú myndir vilja mynda tengingarnar aftan á magasíninu þínu og senda mér hana, vantar annað magasín. Hlakka til að sjá hvernig Dice kemur út. Er smeykur við það, vil helst fá iPod interface í navi.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW 540 e39 Shadowline | ákeyrsla o.fl!

Postby geirisk8 » Wed 15. Dec 2010 21:52

SteiniDJ wrote:Fúlt að heyra en gott að allt fór vel. Væri snilld ef þú myndir vilja mynda tengingarnar aftan á magasíninu þínu og senda mér hana, vantar annað magasín. Hlakka til að sjá hvernig Dice kemur út. Er smeykur við það, vil helst fá iPod interface í navi.


Sjálfsagt mál! Ég skal taka myndir á morgun, ef ég fer í þetta þá, og senda þér. Það er eitt við þessa, eða þennan, spilara að hann er bæði með tengi fyrir DSP og non-DSP kerfi. Það er svona grönn snúra með hringlaga plöggi sem fer í DSP magnarann en svo er líka 6-pinna snúra sem fer í útvarpið á þeim bílum sem eru ekki með dsp. Seinasta snúran er i-bus snúran sem gefur tækinu einnig straum.
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: BMW 540 e39 Shadowline | ákeyrsla o.fl!

Postby SteiniDJ » Wed 15. Dec 2010 22:20

geirisk8 wrote:
SteiniDJ wrote:Fúlt að heyra en gott að allt fór vel. Væri snilld ef þú myndir vilja mynda tengingarnar aftan á magasíninu þínu og senda mér hana, vantar annað magasín. Hlakka til að sjá hvernig Dice kemur út. Er smeykur við það, vil helst fá iPod interface í navi.


Sjálfsagt mál! Ég skal taka myndir á morgun, ef ég fer í þetta þá, og senda þér. Það er eitt við þessa, eða þennan, spilara að hann er bæði með tengi fyrir DSP og non-DSP kerfi. Það er svona grönn snúra með hringlaga plöggi sem fer í DSP magnarann en svo er líka 6-pinna snúra sem fer í útvarpið á þeim bílum sem eru ekki með dsp. Seinasta snúran er i-bus snúran sem gefur tækinu einnig straum.


Hmm, sérstakt. Held að mitt sé non-DSP, þarf að skoða það nánar.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW 540 e39 Shadowline | ákeyrsla o.fl!

Postby geirisk8 » Wed 15. Dec 2010 22:48

Það er rosalega einfalt að komast að því hvort þú sért með DSP. Ertu með 16:9/4:3 skjá ? Ef svo þá er þarna "DSP" valmöguleiki í menuinu. Ef þú ert með business cd þá er líka takki á spilaranum sem á stendur "DSP". Ef þú ert með innbyggt bassabox sem er skrúfað upp undir í skottinu þá ertu með DSP, þar sem það er hluti af því kerfi.

Ég er samt nokkuð viss um að þessi spilari eigi að virka hjá bæði DSP og non-DSP.

Láttu mig vita og við getum hugsanlega græjað eitthvað :wink:
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: BMW 540 e39 Shadowline | ákeyrsla o.fl!

Postby SteiniDJ » Wed 15. Dec 2010 23:32

geirisk8 wrote:Það er rosalega einfalt að komast að því hvort þú sért með DSP. Ertu með 16:9/4:3 skjá ? Ef svo þá er þarna "DSP" valmöguleiki í menuinu. Ef þú ert með business cd þá er líka takki á spilaranum sem á stendur "DSP". Ef þú ert með innbyggt bassabox sem er skrúfað upp undir í skottinu þá ertu með DSP, þar sem það er hluti af því kerfi.

Ég er samt nokkuð viss um að þessi spilari eigi að virka hjá bæði DSP og non-DSP.

Láttu mig vita og við getum hugsanlega græjað eitthvað :wink:


Non-DSP it is!
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 49 guests