Alpina wrote:fart wrote:Ég næ allavega ekki túrbínuhúsinu af án þess að taka manifoldið af. Tók ekki nema 10mín að ná þessum 12 boltum sem halda manifoldinu, það sem ég hata mest af öllu er að liggja undir bílnum, en það þarf að gerast til að ég geti aftengt downpipe frá pústi.. þá er þetta líklega laust frá.
http://www.FARTmechanic.lux
Nokkuð ljost að draumahúsið inniheldur bílskúr með lyftu (eða gryfju í versta falli).
Hata það meira en allt að liggja undir bílnum.
Það er síðan spurning hvort að ég skipti ekki bara báðum túrbínunum út fyrst að ég er byrjaður á þessu, og það eru tvær á leiðinni.
Svo þarf að komast að því hvort að það er einhver olíustífla í gangi. Bíllinn var fínn í nokkra daga eftir rebuild, og ég ger ekki annað en hallast að því að ég hafi gert einhver mistök við install, kanski er vírofna olíuslangan klemmd, eða þá feedið frá Olíuhita/Þrýstingi ekki að virka sem skildi. Þannig að ég þarf að aftengja báðar olíuslöngurnar við turbos og cranka bílinn til að sjá hvort að það kemur olía (just to be sure).


