Ok, fullt af fólki langar í M5, en vel sortaður 540 með supercharger er sko ekkert til að fussa yfir, og allar líkur eru á því að slík græja myndi taka M5, eins og sumir hafa sagt.
Staðreyndin er sú, hér er maður sem _Á_ 540 bimma, og langar að gera hann kraftmeiri, 4.4lítra V8 + 9psi = madhouse, það er engin spurning, en þetta kostar frekar mikið.
Ég myndi athuga hvort það séu ekki einhverjir ruglaðir kanar sem hafa fundið einhvern góðan supercharger og skellt ágætis centrifugal supercharger á 540 bimma. Ég myndi athuga með VF-Engineering (vf-engineering.com, þarf að senda þeim e-mail), og Race Marque Systems (racemarque.com, þarf líka að senda þeim e-mail), bæði þessi fyrirtæki eru með centrifugal supercharger setup fyrir 540.
Gangi þér vel
