Einsii wrote:
.
Ég er einfaldega sannfærður að hver sem er hversu "IceDev" sem hann getur orðið getur með opnum huga sannfærst um að nota mac og sér fljótlega það sem aðrir mac notendur sjá við þessar vélar, Ég kaupi mér ekki mac til að looka vel á kaffihúsi, ég kaupi hana því hún virkar og ég þarf ekki að prófa 10 mismunandi PC vélar (með sömu speca notabene) til að fynna kanski loksins þessa einu sem virkar og gerir það sem ég vil að hún geri vel.
..............
..............
Ef þú hefur ekki prófað og þá meina ég prófað meira en að fletta upp mbl í Apple búðinni þá er álit þitt ómarktækt að mínu mati!!
Ég get sagt þér það strax að ef að verðmunurinn væri ekki til staðar þá myndi ég ekki hika við að kaupa Apple. Fallegar vélar, gott lyklaborð ásamt trackpad, góður vélbúnaður í flestum tilvikum og Magsafe hleðslutækið sem btw er awesome. Það eina sem að stöðvar mig í að versla þær fram yfir t.d Toshiba, Asus eða Lenovo vélar er nákvæmlega það sem að Danni talaði um.
Ég myndi versla þær þótt að þær kostuðu 20% meira en sambærileg PC vél. Auðvitað myndi ég rönna Win 7 á henni en þetta sýnir kannski að ég sé enginn Apple hater. Mér þykir bara sárt að borga svo rosalegar upphæðir fyrir eitthvað sem að verður svo úrelt 2 árum seinna.
Ég hef notað Apple Macbook vélar, reyndar ekki í sambærilegan tíma og PC en fékk hana að láni í tvær vikur. Ég var svosem ekkert að installa mikið af forritum eða þessháttar en fékk nægan tíma til að kynnast viðmóti Mac OS X. Ég var ekki að fíla það, of mikið af húllumhæi, eitthvað.