Svessi wrote:
Í fyrsta lagi er ég að leita að 255/40-17 sem er bara normal stærð á 17 dekkjum aftaná BMW 5-línu, og ég myndi telja þetta vera nokkuð algenga stærð.
Allavega kom mér verulega á óvart hvað í raun fáir eiga þess stærð til.
Svo þegar maður fór að spyrja út í slit-rating á dekkjunum fór menn bara að klóra sér í hausnum og sumir sem vildi meina að það væri aldrei gefið upp.
Eftir að hafa unnið á dekkjaheildsölu í 5 ár þá veit ég nú orðið þokkalega mikið um dekk.
255/40 R 17 er bara LANGT frá því að vera algeng stærð.
Það er hægt að telja það á puttum beggja handa hversu margir gangar af svona dekkjum eru seldir árlega hér á landi.
Það er mjög erfitt að lagera sig af dekkjum fyrir hverja törn, með þessa hugsun.
Hvað á þá að gera, panta bara einn gang af einhverri "óalgengri" stærð (sbr þín stærð),,,og hvað á svo að gera þegar maður no 2 vil kaupa alveg eins dekk?
Innkaup á dekkjum eru alltaf miðuð við sölu síðustu 2-3 ára aftur í tímann og það er keypt inn eftir því.
Sala á svona dekkjum er mjög rokkandi,,,,þegar dollarinn lækkaði fyrir nokkrum árum þá fóru allir að flytja inn dekk sjálfir af ebay/tirerack o.s.frv.
Þá auðvitað sátu eftir dekk sem höfðu verið pöntuð inn það árið hjá öllum heildsölunum og fengu bara að liggja þar næstu árin á meðan menn voru ennþá að flytja dekk inn sjálfir.
Svo hrynur allt gengi og menn "neyðast" til þess að fara versla hérlendis og þá allt í einu fara menn að væla yfir því að dekkin sem sitja eftir á lagerum dekkjaheildsalann séu orðin gömul.
Og ps, slitrating er ekki neitt sem er gefið upp öllu jafna.