bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 21. Jun 2025 15:17

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Wed 11. Aug 2010 23:17 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49
Posts: 446
Þetta er í raun bara skandall.

Til að byrja með vil ég auðvitað segja að við á íslandi þurfum kannski ekki alveg að vera eins ströng á því hvort dekkin sem við erum með undir bílnum séu með hraðatakmörkun, speed rating t.d. H (210 km hraði) eða t.d. W (270 km hraði) eða þaðan af hærra þar sem yfirleitt er ekki ekið á mikið meira en 100 km hraða. Og veðurfar er líka yfirleitt frekar kalt svo það að pæla í speed rating og öllu því er kannski ekkert svo rosalega mikilvægt.
Og mikið um það hér heima að menn séu að kaupa notuð dekk t.d. hjá Vöku og fl. stöðum og yfirleitt er svosem ekkert að því.

En málið er svoleiðis að brósi og ég erum að fara til meginlandins, Þýskalands, á bílnum hanns (540iA ´96) og afturdekkin eru orðin slöpp og hann vildi helst að búið yrði að kaupa dekkin áður en langt væri af stað héðan.

Þannig ég fór að leita að dekkjum, með nokkrum smá kröfum.
*Að það sé að minnsta kosti Z (yfir 240 km hraði) speed rating, þar sem ég reikna fastlega með að það verði ekið á 200 km hraða þar sem það má og bíllinn er limiteraður á 250.
*Að dekkin séu tilturlega nýleg. Nýlega eru menn farnir að tala um það hér heima að dekk eigi helst ekki að vera eldri en 6 ára.
*Fá upplýsingar um UTQG eða Uniform Tire Quality Grading (bandarískur staðall fyrir endingu og grip) eða sambærilegar upplýsingar ef dekkin koma annarsstaðar frá, eins og t.d. evrópu.

Í fyrsta lagi er ég að leita að 255/40-17 sem er bara normal stærð á 17 dekkjum aftaná BMW 5-línu, og ég myndi telja þetta vera nokkuð algenga stærð.
Allavega kom mér verulega á óvart hvað í raun fáir eiga þess stærð til.
Svo þegar maður fór að spyrja út í slit-rating á dekkjunum fór menn bara að klóra sér í hausnum og sumir sem vildi meina að það væri aldrei gefið upp.

Svo kom að því versta í rauninni, aldur dekkjanna. Menn sem hafa unnið árum saman, og sumir hverjir áratugum saman í dekkjabissnisnum hér heima höfðu bara aldrei pælt í því að hægt væri að sjá á dekkjunum hvenær þau væru framleidd.
Ég fékk að sjá dekkin á nokkrum stöðum og þau voru bara orðin ansi gömul sumsstaðar. Í versta tilfellinu var verið að reyna selja með hágæða dekk á fullu verði (60 þús fyrir stykkið) sem framleitt var árið 2000, og ég spurði manninn áður en hann náði í dekkið hvort þau væri nokkuð orðin gömul, eitthvað sem væri búið að sita lengi inni á lager, og hann sagði að þau væri ný.
Á öðrum stað voru þau orðin 9 ára gömul, 7 á einum og 6 á enn öðrum og svo fann ég ein sem mér leist ekkert allt of ílla á en þau voru samt sem áður 4 ára gömul.
Það eitt og sér er í raun alveg nógu slæmt að kaupa dekk, dýr dekk í þokkabót, ætla sér að kaupa þau sem ný dekk en þau eru samt orðin 4 ára gömul.

Jú, jú ég veit alveg að það varð bankahrun hérna í haustmánuðum 2008 og lítið af performance dekkjum sem hefur verið flutt inn síðan þá, en common, 10 ára gömul dekk.
Og hvað á maður svo eftir að keyra lengi á þeim dekkjum 2-3 ár kannski, hvað eru þau þá orðin gömul.

Mér finnst þetta í rauninni það svívirðilegt að ég er að spá í því að senda FÍB nokkrar línur.

Ég er í rauninni bara að skrifa þetta hérna núna aðeins til að blása út og til að vekja ykkur hina til smá umhugsunar næst þegar þið kaupið ykkur dekk.
Ekki treysta á það að gaurarnir á dekkjaverkstæðunum viti eitthvað um þetta eða vilji segja ykkur rétt til. Kynnið ykkur þetta sjálf hvernig merkingarnar eru og hvernig þær virka og fáið að sjá dekkin áður en þið kaupið þau.

En við hverju á maður annars að búast þegar stór hluti ökumanna veit ekki einu sinni að það á að vera ákveðin loftpressa í dekkjunum undir bílnum hjá sér.

_________________
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 08:55 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Posts: 2725
Location: Hafnarfjörður
Ég hef einmitt tekið eftir þessu líka með aldur dekkja hjá starfsmönnum dekkjaverkstæða. En það er fleira, t.d. loftþrýstingur í dekkjum.

Í vor lét ég umfelga fyrir mig 15" undir bílinn hjá mér og það voru sett 28 psi í dekkin á verkstæðinu, sem er alveg fáránlega lágt finnst mér á 1.600 kg bíl. Sama dag fór ég út á land með fjölskylduna og fullt skott og tjaldvagn í eftirdragi. Ég hefði ekki viljað vera með 28 psi í dekkjunum í þeirri ferð uppá aksturseiginleika og bensíneyslu!

Samkvæmt manualnum á eiga að vera 33 að framan og 39 að aftan miðað við 3 persónur og smá farangur. Þegar hann er fullhlaðinn eiga að vera 35 að framan og 44 að aftan minnir mig (má reyndar draga allt að 4 psi frá ef ekki er farið yfir 200 km hraða).

Flestir pæla aldrei í þessu, láta bara umfelga og svo ekkert meir. Aðrir athuga þrýstinginn annað slagið og keyra alltaf með sama þrýsting óháð hleðslu, sem er í rauninni fáránlegt.

_________________
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 09:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Finnst líka alveg magnað að starfsmenn dekkjaverkstæða hafa ekki hugmynd um hvað litli málaði hringurinn á hlið dekkja merkir. Benti starfsmanni á dekkjaverkstæði einu sinni á það að ventillinn ætti að vera þar sem hringurinn er en hann horfði bara á mig eins og ég væri vangefinn og sagði að það skipti engu máli. Þá benti ég á honum að framleiðandi setti þennan hring á "miðju" dekkinu og með því að hafa ventilinn þarna þyrfti færri lóð, ergo meiri sparnaðuri fyrir alla. Þá fór hann að gera sig breiðan með því að tala um margra ára starfsreynslu á dekkjaverkstæði o.s.frv. þ.a. ég endaði með vitlaust mountað dekk einu sinni enn.

Ég treysti aldrei því sem er gert fyrir mig á dekkjaverkstæði og fer alltaf beint út á bensínstöð til að fara yfir dekkjaþrýsing og herði á öllum felgum. Hef nú ekki tekið eftir þessu með aldur á dekkjunum áður en mun hiklaust fylgjast vel með því næst.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 09:20 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24
Posts: 2195
:shock: Ég hef bara aldrei pælt í þessu. Vissi ekki einu sinni að hægt væri að sjá aldur dekkja, Hvar er hægt að sjá hvaða merkingar og annað þýðir á dekkjum, ég er allavega þeirra skoðunnar að það er bara af og frá að menn eigi að kaupa dekk sem ný.... en eru svo frammleidd fyrir 4-10árum síðan. Þetta er klárlega eitthvað sem menn ættu að pæla aðeins í.

ps: Dekk sem eru frammleidd árið 2000-2002 og er því tæknilega séð 8-10ára gömul, liggja uppí hillu á einhverju dekkja verkstæði, ég kaupi þau svo og læt setja þau undir bílinn hjá mér,, er hægt að búast við að þau endist styttra heldur en dekk sem frammleidd voru kannski 2009 eða jafnvel 2010 ?

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 12:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
gulli wrote:
:shock: Ég hef bara aldrei pælt í þessu. Vissi ekki einu sinni að hægt væri að sjá aldur dekkja, Hvar er hægt að sjá hvaða merkingar og annað þýðir á dekkjum, ég er allavega þeirra skoðunnar að það er bara af og frá að menn eigi að kaupa dekk sem ný.... en eru svo frammleidd fyrir 4-10árum síðan. Þetta er klárlega eitthvað sem menn ættu að pæla aðeins í.

ps: Dekk sem eru frammleidd árið 2000-2002 og er því tæknilega séð 8-10ára gömul, liggja uppí hillu á einhverju dekkja verkstæði, ég kaupi þau svo og læt setja þau undir bílinn hjá mér,, er hægt að búast við að þau endist styttra heldur en dekk sem frammleidd voru kannski 2009 eða jafnvel 2010 ?

Nokkrar leiðir til að finna aldurinn
http://www.speroforum.com/forum/topic.a ... C_ID=5813&

_________________
Carrera4 964 '91

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 12:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Ég hef verið að taka til í skúrnum hjá mér undanfarið og selja "gamla" semislikka (hálfnotaða) þar sem að dekk hafa líftíma, og slikkarnir mjög stuttann. Menn sem eru að kaupa spyrja alltaf um framleiðslumánuð.

Annars eru dekkjagaurarnir greinilega gallaðir víða, hérna úti var OEM 19" felga af E60M5 dæmd ónýt af dekkjaverkstæði, þangað til að ég fékk þá til að ballancera hana eina sér, þá var hún alveg 100% þá dæmdu þeir dekkið ónýtt.. en eftir miklar æfingar og nokkrar ferðir á dekkjaverkstæðið kom í ljós að þeir höfðu ekki hæfni til að koma dekkinu rétt upp á felguna.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 13:08 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Posts: 952
Location: í hjólförum
Flott að benda á eitt hérna, ég pantaði mér dekk að utan í vor. og þau voru framleidd í 11 mánuði 09. semsagt ný

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 13:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Hvar pantaðiru og var mikill munur á verðinu?

_________________
Fullt af CF sem rúllar

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 16:19 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Posts: 952
Location: í hjólförum
Pantaði af lagersölu sem ég fann í gegnum nissan spjall, þetta borgaði sig töluvert. var að fá öll 4 á undir 200þ 245 framan 275 aftan í 19"

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 18:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Svessi wrote:
Í fyrsta lagi er ég að leita að 255/40-17 sem er bara normal stærð á 17 dekkjum aftaná BMW 5-línu, og ég myndi telja þetta vera nokkuð algenga stærð.
Allavega kom mér verulega á óvart hvað í raun fáir eiga þess stærð til.
Svo þegar maður fór að spyrja út í slit-rating á dekkjunum fór menn bara að klóra sér í hausnum og sumir sem vildi meina að það væri aldrei gefið upp.

Eftir að hafa unnið á dekkjaheildsölu í 5 ár þá veit ég nú orðið þokkalega mikið um dekk.
255/40 R 17 er bara LANGT frá því að vera algeng stærð.
Það er hægt að telja það á puttum beggja handa hversu margir gangar af svona dekkjum eru seldir árlega hér á landi.

Það er mjög erfitt að lagera sig af dekkjum fyrir hverja törn, með þessa hugsun.
Hvað á þá að gera, panta bara einn gang af einhverri "óalgengri" stærð (sbr þín stærð),,,og hvað á svo að gera þegar maður no 2 vil kaupa alveg eins dekk?
Innkaup á dekkjum eru alltaf miðuð við sölu síðustu 2-3 ára aftur í tímann og það er keypt inn eftir því.
Sala á svona dekkjum er mjög rokkandi,,,,þegar dollarinn lækkaði fyrir nokkrum árum þá fóru allir að flytja inn dekk sjálfir af ebay/tirerack o.s.frv.
Þá auðvitað sátu eftir dekk sem höfðu verið pöntuð inn það árið hjá öllum heildsölunum og fengu bara að liggja þar næstu árin á meðan menn voru ennþá að flytja dekk inn sjálfir.
Svo hrynur allt gengi og menn "neyðast" til þess að fara versla hérlendis og þá allt í einu fara menn að væla yfir því að dekkin sem sitja eftir á lagerum dekkjaheildsalann séu orðin gömul.

Og ps, slitrating er ekki neitt sem er gefið upp öllu jafna.

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 19:29 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Posts: 2518
Location: sniffa lím
srr wrote:

Þú hljómar alveg hrikalega pussyhurt út í þá sem nýttu sér gott gengi og spöruðu fullt af þúsundköllum á að flytja sjálfir inn dekk, hver hefði ekki gert það sama ? Og það er enginn að væla yfir því að dekkin séu orðin gömul, heldur að það sé verið að selja þau dýrum dómum sem ný dekk, sem er auðvitað enganveginn ásættanlegt.

_________________
vti

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 12. Aug 2010 20:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
birkire wrote:

Nei alls ekki, ég flutti inn dekk sjálfur :mrgreen:

En ég skil hvað þú meinar.
Því miður mun raunin samt aldrei verða sú að dekk verði lækkuð í verði út af aldri, amk ekki svona stærðir.

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 13. Aug 2010 00:05 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53
Posts: 764
Það er alger svívirða af menn eru vísvitandi að ljúga að kúnnanum, að um ný dekk sé að ræða! Hvernig eiga menn líka að treysta því að dekk sem er orðið eldgamalt hafi verið geymt rétt allan tíman?
Sömuleiðis skil ég ekki afhverju það er eitthvað fráleitt að selja svona gömul dekk sem einhverja "B" vöru á lægra verði. Það er ekkert endalaust hægt að pranga þessu út sem glænýjum dekkjum, það hljóta að teljast vörusvik að selja 5 ára gömul dekk sem ný....

En er ekki lang best fyrir ykkur bræður að rúlla á næsta dekkjaverkstæði í DE þegar þið komið út og fá ný dekk ??

_________________
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 13. Aug 2010 09:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Mér finnst eiginlega hlægilegt að það sé ekki fylgst með þessu hjá hjólbarðaverkstæðum. Það ætti að vera bannað að selja dekk sem ný eftir einhvern ákveðinn tíma.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 14. Aug 2010 13:47 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Posts: 952
Location: í hjólförum
Erlendis er bannað að selja 4 ára gömul dekk sem ný dekk og 6 ára dekk í nokkrum löndum á að fara að gera óskoðunarhæf

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 88 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group