by íbbi_ » Mon 09. Aug 2010 21:11
umræðan um þetta er á ömurlegu plani, það er búið að snúa umræðuni upp í hvort maður hati útlendinga eða sé föðurlandssvikari.
ég væri einmitt til í málefnalegari umræðu, ég persónulega er meira á móti en fylgjandi, en vill engu síður fá að fræðast meira um hvað þetta þýðir í raun og veru
ég get til dæmis ekki séð að það sé neinn valkostur yfir höfuð að fá undanþágu varðandi fiskveiðilögsöguna,
menn hafa verið að nefna að við missum umboð til milliríkja samninga, þar sem ESB komi til með að semja fyrir okkar hönd? menn hafa fært rök fyrir ókostum þess,
menn hafa nefnt að vægi okkar á evrópuþinginu myndu vera um 0.45%, þ.a.e.s 6 þingsæti af 781 e-h álíka,
einnig vildi ég einmitt heyra meira um hvernig tollamálum verður háttað varðandi ýmsa vöruflokka, ég heyrði að ríkin hefðu sjálf völd yfir því, eru ekki tollar varðandi bifreiðar og hluti í þær mjög ólíkir í t.d svíþjóð eða danmörku?
verður raunveruleg lækkun á matvörum?
heyrði mann í útvarpsviðtali um daginn tala um að það væri skylda okkar sem þjóðar að hugsa frekar um hagsmuni heildarinnar heldur en okkar sjálfra, og leggja okkar af mörkum við að vinna að jafnari lífskjörum 500 milljón manna...
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll