ESB vangaveltur

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

ESB vangaveltur

Postby Zed III » Sat 07. Aug 2010 09:52

Ég er leiður á óupplýstri umræðu um ESB. Up front er ég ekki hrifin af apparati sem setur reglur um hversu beinar agúrkur þurfa að vera og eins hversu bognir bananar eigi að vera. Það eru samt nokkur mikilvæg atriði sem ég er ekki viss um.

T.d. um tollar og vörugjöld af innfluttum vörum frá löndum ESB. Falla þessi gjöld niður og ég get þá keypt mér dót frá þessum löndum án þess að þurfa að tvöfalda verðið?

Er þannig almennt vöruverð að fara að lækka hérna og veður ríkið samhliða af þessum tolla tekjum og verða þá aftur að hækka skatta ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: ESB vangaveltur

Postby gardara » Sat 07. Aug 2010 11:24

Við erum í EES og nú þegar er enginn tollur á vörum framleiddum innan EES/ESB. Svo að það er bara rukkaður virðisaukaskattur fyrir þær vörur.

Mig minnir að virðisaukaskatturinn haldist sama þótt við séum í esb eða ekki, svo að ég held að svarið sé nei gjöld á vörum framleiddum innan ees/esb lækka ekki.
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: ESB vangaveltur

Postby Zed III » Sat 07. Aug 2010 12:02

gardara wrote:Við erum í EES og nú þegar er enginn tollur á vörum framleiddum innan EES/ESB. Svo að það er bara rukkaður virðisaukaskattur fyrir þær vörur.

Mig minnir að virðisaukaskatturinn haldist sama þótt við séum í esb eða ekki, svo að ég held að svarið sé nei gjöld á vörum framleiddum innan ees/esb lækka ekki.


Það hafa nú verið tollar/vörugjöld á varahlutum sem maður hefur verið að flytja inn frá uk og þýskalandi.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: ESB vangaveltur

Postby gardara » Sat 07. Aug 2010 12:24

Zed III wrote:
gardara wrote:Við erum í EES og nú þegar er enginn tollur á vörum framleiddum innan EES/ESB. Svo að það er bara rukkaður virðisaukaskattur fyrir þær vörur.

Mig minnir að virðisaukaskatturinn haldist sama þótt við séum í esb eða ekki, svo að ég held að svarið sé nei gjöld á vörum framleiddum innan ees/esb lækka ekki.


Það hafa nú verið tollar/vörugjöld á varahlutum sem maður hefur verið að flytja inn frá uk og þýskalandi.



Ef þeir eru framleiddir innan EES þá á svoleiðis ekki að vera... Gildir ekki um vörur sem eru aðfluttar inn á EES svæðið og sendar þaðan áfram til íslands.

Myndi tala við tollinn næst þegar þú lendir í þessu.
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: ESB vangaveltur

Postby gstuning » Sat 07. Aug 2010 18:07

Tollur er eitt

Vörugjöld annað.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: ESB vangaveltur

Postby iar » Sat 07. Aug 2010 21:35

gstuning wrote:Tollur er eitt

Vörugjöld annað.


Og svo kemur líklega bara það þriðja í stað hinna tveggja þegar ekki má lengur leggja þau gjöld á.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: ESB vangaveltur

Postby Zed III » Sat 07. Aug 2010 22:08

ok, þá er þessi liður ekki að fara að fá mig á ESB vagninn.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: ESB vangaveltur

Postby íbbi_ » Mon 09. Aug 2010 16:53

það eina sem ég sá við ESB var einmitt hugsanleg lækkun á hlutum frá öðrum ESB löndum..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: ESB vangaveltur

Postby Zed III » Mon 09. Aug 2010 20:52

Það er alveg magnað hvað umræðan um þetta mál er á lágu plani.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: ESB vangaveltur

Postby íbbi_ » Mon 09. Aug 2010 21:11

umræðan um þetta er á ömurlegu plani, það er búið að snúa umræðuni upp í hvort maður hati útlendinga eða sé föðurlandssvikari.

ég væri einmitt til í málefnalegari umræðu, ég persónulega er meira á móti en fylgjandi, en vill engu síður fá að fræðast meira um hvað þetta þýðir í raun og veru

ég get til dæmis ekki séð að það sé neinn valkostur yfir höfuð að fá undanþágu varðandi fiskveiðilögsöguna,

menn hafa verið að nefna að við missum umboð til milliríkja samninga, þar sem ESB komi til með að semja fyrir okkar hönd? menn hafa fært rök fyrir ókostum þess,

menn hafa nefnt að vægi okkar á evrópuþinginu myndu vera um 0.45%, þ.a.e.s 6 þingsæti af 781 e-h álíka,

einnig vildi ég einmitt heyra meira um hvernig tollamálum verður háttað varðandi ýmsa vöruflokka, ég heyrði að ríkin hefðu sjálf völd yfir því, eru ekki tollar varðandi bifreiðar og hluti í þær mjög ólíkir í t.d svíþjóð eða danmörku?

verður raunveruleg lækkun á matvörum?

heyrði mann í útvarpsviðtali um daginn tala um að það væri skylda okkar sem þjóðar að hugsa frekar um hagsmuni heildarinnar heldur en okkar sjálfra, og leggja okkar af mörkum við að vinna að jafnari lífskjörum 500 milljón manna...
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: ESB vangaveltur

Postby Bjarkih » Mon 09. Aug 2010 21:24

Eins og ég sé þetta þá eru fjölmargir punktar bæði með og á móti. Í raun get ég ekki tekið afstöðu fyrr en samningur liggur á borðinu og hægt er að meta plúsa og mínusa. Það sem ég sé samt jákvætt við ESB er betri neytendavernd, strangara eftirlit gegn spillingu í viðskiptalífi, betri byggðastefna en rekin hefur verið hérlendis og mörg atriði í viðbót.
Á móti kemur "báknið", áhrifaleysi Íslands, yfirráð yfir auðlindum og sennilega ýmislegt annað sem ég er ekki að muna eftir.
Það breytir ekki því að ég held að matvöruverð komi til með að lækka ef við göngum í ESB, það er einhver ástæða fyrir því að norðmenn flykkjast til Svíþjóðar til að kaupa í matinn.
Svo í framhjáhlaupi má velta því fyrir sér hvort hægt sé að stjórna hlutum verr en gert hefur verið hér á landi undanfarna áratugi þannig að hagur okkar geti varla versnað við að ganga í þetta bandalag. Heimurinn er líka að þróast þannig að við einfaldlega getum ekki haldið úti sjálfstæðum gjaldmiðli, það kostar okkur óhemju fjárhæðir á ári eins og flestir vita.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: ESB vangaveltur

Postby SteiniDJ » Mon 09. Aug 2010 21:46

íbbi_ wrote:heyrði mann í útvarpsviðtali um daginn tala um að það væri skylda okkar sem þjóðar að hugsa frekar um hagsmuni heildarinnar heldur en okkar sjálfra, og leggja okkar af mörkum við að vinna að jafnari lífskjörum 500 milljón manna...


Sannkallaður kommúnisti sá maður. :? Persónulega hef ég engan áhuga á að bæta lífskjör þeirra sem ég mun aldrei sjá, heyra af eða kynnast á nokkurn hátt. Ég er eigingjarn og ósanngjarn, en ég er bara í takt við heiminn.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: ESB vangaveltur

Postby gardara » Mon 09. Aug 2010 21:55

1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: ESB vangaveltur

Postby Hannsi » Mon 09. Aug 2010 21:58

SteiniDJ wrote:
íbbi_ wrote:heyrði mann í útvarpsviðtali um daginn tala um að það væri skylda okkar sem þjóðar að hugsa frekar um hagsmuni heildarinnar heldur en okkar sjálfra, og leggja okkar af mörkum við að vinna að jafnari lífskjörum 500 milljón manna...


Sannkallaður kommúnisti sá maður. :? Persónulega hef ég engan áhuga á að bæta lífskjör þeirra sem ég mun aldrei sjá, heyra af eða kynnast á nokkurn hátt. Ég er eigingjarn og ósanngjarn, en ég er bara í takt við heiminn.


Sem er að mínu mati versti galli mannkynsins, við viljum að okkur líði vel og er skít sama um fólkið sem hefur ekkert því við þekkjum það ekkert.

Sama hvað þið seigið þá er þetta bara bláköld staðreynd.
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Re: ESB vangaveltur

Postby SteiniDJ » Mon 09. Aug 2010 22:18

Hannsi wrote:
SteiniDJ wrote:
íbbi_ wrote:heyrði mann í útvarpsviðtali um daginn tala um að það væri skylda okkar sem þjóðar að hugsa frekar um hagsmuni heildarinnar heldur en okkar sjálfra, og leggja okkar af mörkum við að vinna að jafnari lífskjörum 500 milljón manna...


Sannkallaður kommúnisti sá maður. :? Persónulega hef ég engan áhuga á að bæta lífskjör þeirra sem ég mun aldrei sjá, heyra af eða kynnast á nokkurn hátt. Ég er eigingjarn og ósanngjarn, en ég er bara í takt við heiminn.


Sem er að mínu mati versti galli mannkynsins, við viljum að okkur líði vel og er skít sama um fólkið sem hefur ekkert því við þekkjum það ekkert.

Sama hvað þið seigið þá er þetta bara bláköld staðreynd.


Ég myndi ekki segja að mér væri skítsama, heldur breytir það litlu fyrir mig. Þrátt fyrir það vil ég þeim ekkert illt en eins og staðan er í dag þá varðar það mig ekkert hvernig aðrir fyrir utan landsteina okkar hafa það. Við ættum að einbeita okkur að okkur og hugsa um aðra þegar við getum hugsað um okkur sjálf.

Galli eða ekki galli, myndi segja að þetta væri hvorugt. Við eigum við stærri vandamál að stríða sem eru í mínum augum stærri galli. Hinir hæfustu lifa af, þannig hefur það alltaf verið og mun alltaf vera. Það er líka bláköld staðreynd.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests