fart wrote:Zed III wrote:Svona í ljósi þess að stjórnvöld og fjármögnunarfyrirtæki telji þetta sanngjarna niðurstöðu, skýtur ekki skökku við að þeir heimti að tilteknir samningar eigi að innheimtast eins og áður ?
Væri ekki einfaldast að menn yfirfærðu bara þessa sanngjörnu niðustöðu á húsnæðislán snöggvast og komast hjá öllum málaferlum (utan það að enginn tekur húsnæðislán á óverðtryggðum vöxtum).
Þokkalega rétt það, enda grunar mig að þegar dómstólar verða búnir að skera úr um þetta í öllum tilvikum, mun ríkisstjórnin setja lög sem milda þetta gagnvart neytendum á kostnað fjármögnunarfyrirtækjanna. Held reyndar að ríkinu sé slétt sama hvort að fjármögnunarfyrirtækin lifa af eða ekki, þeir vilja hinsvegar halda bönkunum lifandi.
Mér sýnist nú á ummælum fjámálaráðherra að hann sé byrjaður að undirbúa jarðveginn
fyrir lagasetningu:
"Fari mörg ágreiningsmál skuldara og lánveitenda um gengistryggð lán fyrir dómstóla gæti úrlausn þeirra orðið „heilmikill frumskógur“ og ójafnræði skapast meðal skuldara að mati fjármálaráðherra"
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... rumskogur/




