bimmer wrote:drolezi wrote:bimmer wrote:Ef þessi geðveiki er í gangi þarna þá getur það bara vel passað að þessi
skapgerðareinkenni eigi við fólkið.
Það er bara magnað að þú getir afgreitt þetta allt sem bull.
Kannski þarf þetta að stigmagnast í meira og alvarlegra ofbeldi - jafnvel mannsdráp til
þess að þetta sé nógu borðleggjandi.
Það er auðsjáanlegt hversu lituð frásögnin er og því ómarktæk. Ef hún er ómarktæk þá er hún bull. Það má vel vera að þetta sé allt satt, en meðan þetta er skrifað á þennan hátt þá myndi ég ekkert mark taka á þessu.
Nógu borðleggjandi? Nógu borðleggjandi fyrir hvað? Lituð bloggfærsla um manndráp er alveg jafn ómarktæk og lituð bloggfærsla um heiftúðlegar nágrannaerjur og því ekkert meira borðleggjandi.
Við skulum hafa það hugfast að ég er búinn að vera að vitna í þá tengla sem fram hafa komið á spjallinu. Ég er semsagt að leggja mat á frásögn sem þar kemur fram. Svo það fari ekki á milli mála þá tengist ég málinu ekki á neinn hátt.
Halló??? Þarf þetta að vera framsett á fallegu stofnanamáli til að þetta sé marktækt???
Skiptir innihaldið engu máli heldur framsetningin til að þú takir afstöðu????
Ég er ekki að segja að þetta sé fullt af stafsetningavillum. Það sem ég kaupi eru staðreyndir. Ef einhver segir mér að "helvítis fíflið hann Jón lamdi elsku Gunnar" þá get ég strax sagt mér að það séu meiri líkur en minni á að sögumaður bæti í eyður, fegri hlut Gunnars og/eða ófegri hlut Jóns. Ekki er þar með sagt að sögumaður hafi rangt fyrir sér varðandi helstu staðreyndir en líklegt gæti talist að þær séu ekki að fullu í samræmi við sannleikann. Þessi texti sem ég er búinn að vitna í er uppfullur af svona lituðum lýsingum og því tek ég ekki afstöðu.
Þannig að nei, þetta þarf ekki að vera á fallegu stofnanamáli, þó það sé kostur. Innihaldið skiptir öllu máli, sem og framsetningin.



