Bjarkih wrote:
drolezi wrote:
bimmer wrote:
Ef þessi geðveiki er í gangi þarna þá getur það bara vel passað að þessi
skapgerðareinkenni eigi við fólkið.
Það er bara magnað að þú getir afgreitt þetta allt sem bull.
Kannski þarf þetta að stigmagnast í meira og alvarlegra ofbeldi - jafnvel mannsdráp til
þess að þetta sé nógu borðleggjandi.
Það er auðsjáanlegt hversu lituð frásögnin er og því ómarktæk. Ef hún er ómarktæk þá er hún bull. Það má vel vera að þetta sé allt satt, en meðan þetta er skrifað á þennan hátt þá myndi ég ekkert mark taka á þessu.
Nógu borðleggjandi? Nógu borðleggjandi fyrir hvað? Lituð bloggfærsla um manndráp er alveg jafn ómarktæk og lituð bloggfærsla um heiftúðlegar nágrannaerjur og því ekkert meira borðleggjandi.
Við skulum hafa það hugfast að ég er búinn að vera að vitna í þá tengla sem fram hafa komið á spjallinu. Ég er semsagt að leggja mat á frásögn sem þar kemur fram. Svo það fari ekki á milli mála þá tengist ég málinu ekki á neinn hátt.
Er þetta lituð frásögn?
http://eyjan.is/2010/07/22/fjolskylda-i-gardabaenum-flyr-heimili-sitt-vegna-ofbeldis-fra-nagronnum/þarna er tekin upprunalega frásögnin og fegruð.
nákvæmlega sama sem að er tekið fram þarna.
en já, ég ákvað að sleppa alveg að bera upp einhverja hleypidóma um þetta mál.
man alveg eftir lúkasarmálinu á bíladögum fyrir 2 eða 3 árum.
þar sem að mannorð 2 eða 3 stráka (og sértsaklega eins þeirra) var gersamlega myrt.
fyrir að drepa og sparka í hund og henda honum í sjóinn.
það vissu ALLIR að þeir hefðu gert það, einmitt vegna þess að það var fjallað um það á netinu, rosa vond og ljót saga um einhverja drengfávita.
á hverju endaði það.
kellingin hafði bara týnt hundinum sem að kom fram lifandi nokkrum vikum seinna
samt vissu allir rétt áður að strákarnir væru dýranýðingar.