Var lúði og nennti ekki að læra. Svo ég er frekar ómenntaður.
Hef verið tölvunörd síðan ég var svona 11 ára, að verða 20 ár síðan..
Vinn í tölvudeild Olís og er búinn að vera þar í einhver 4 ár en er samt búinn að vera á leiðinni í nám í mörg ár
Stefni á eitthvað allt annað, 20 ár af tölvum er alveg nóg..
Umhverfis- og Orkufræði í Háskólanum á Akureyri heillar mjög! En ég þarf þá að taka stúdentinn fyrst býst ég við, eða háskólabrú. En þessi blessaða háskólabrú kostar litlar 800.000 krónur svo ég veit ekki hvað ég geri.
Ég prófaði að sækja um í Umhverfis og orkufærði á Akureyri upp á djókið..
Í svarinu sem ég fékk var skrifað "ENGIN MENNTUN" og strikað yfir það með neontúss.. og mér sagt að gleyma því

Spurning, ef maður skellir sér bara í fjarnám eða kvöldnám í menntaskóla, hvaða braut ætti maður að fara á? hmmm..
EDIT:
Stefni á Cisco gráðu/r og Microsoft gráðu/r... Undirbúnirbúningur fyrir það byrjar í næstu viku
