Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby Misdo » Sat 26. Jun 2010 17:35

srr wrote:
Misdo wrote:kláraði Húsasmiðinn núna í vor, er að klára stúdentinn í FB núna á 1 önn eftir :D
og svo stefni ég á að taka mér frí í 1 önn og taka svo Ba próf í einhverju og fara svo í fréttamennsku/fjölmiðlafræði

Svo er ég að vinna hjá símanum og er sölumaður þar

Út af því að þú notaðir stórt H í "Húsasmiðinn" þá las ég fyrst....
"kláraði Húsasmiðjuna núna í vor..." :lol:
Skildi ekkert hvað þú varst að meina með því :lol:


Haha :lol: smá stafsetningarvilla :oops:
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby Jón Bjarni » Sat 26. Jun 2010 19:05

Kláraði sveinspróf í rafvirkjun 2009 og vinn við að setja upp endabúnað fyrir ljósleiðara...
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:
Jón Bjarni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 523
Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Location: Rvk

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby kalli* » Sat 26. Jun 2010 19:06

Þriðja ári í Tækniskólanum / IKEA 8)
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i
User avatar
kalli*
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2687
Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby ValliFudd » Sat 26. Jun 2010 20:06

Var lúði og nennti ekki að læra. Svo ég er frekar ómenntaður.
Hef verið tölvunörd síðan ég var svona 11 ára, að verða 20 ár síðan..
Vinn í tölvudeild Olís og er búinn að vera þar í einhver 4 ár en er samt búinn að vera á leiðinni í nám í mörg ár :oops:

Stefni á eitthvað allt annað, 20 ár af tölvum er alveg nóg..
Umhverfis- og Orkufræði í Háskólanum á Akureyri heillar mjög! En ég þarf þá að taka stúdentinn fyrst býst ég við, eða háskólabrú. En þessi blessaða háskólabrú kostar litlar 800.000 krónur svo ég veit ekki hvað ég geri.
Ég prófaði að sækja um í Umhverfis og orkufærði á Akureyri upp á djókið..
Í svarinu sem ég fékk var skrifað "ENGIN MENNTUN" og strikað yfir það með neontúss.. og mér sagt að gleyma því :)

Spurning, ef maður skellir sér bara í fjarnám eða kvöldnám í menntaskóla, hvaða braut ætti maður að fara á? hmmm..

EDIT:
Stefni á Cisco gráðu/r og Microsoft gráðu/r... Undirbúnirbúningur fyrir það byrjar í næstu viku 8)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby JOGA » Sat 26. Jun 2010 20:13

ValliFudd wrote:Spurning, ef maður skellir sér bara í fjarnám eða kvöldnám í menntaskóla, hvaða braut ætti maður að fara á? hmmm..


Hef heyrt ágæta hluti um undirbúningsnámið hjá bæði Bifröst og HR. Veit ekki hvað þeir kalla það en það væri fínn undirbúningur fyrir nám í þeim skólum.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby Steini B » Sat 26. Jun 2010 21:08

ValliFudd wrote:Var lúði og nennti ekki að læra. Svo ég er frekar ómenntaður.

Sama hérna... :?
Þannig að ég vinn bara á bensínstöð núna að temja slöngur...
Já og svo fara í ferðir með útlendinga á fjórhjólum.

Langar samt að fara að byrja að taka einhver fög í fjarnámi, til þess að hafa einhverja meiri menntun.


Eina menntunin sem mér finnst standa uppúr hjá mér er að ég er með réttindi á byggingarkrana :lol:
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby Cavalier » Sat 26. Jun 2010 21:47

útskrifaðist sem stúdent 2007

útskrifaðist sem bifreiðasmiður 2010

var að klára sveinsprófið í bifreiðasmíði

vinn hjá Toyota sem bifreiðasmiður :D
Mk1 Golf 1800GTi Cabriolet Wolfsburg Edition (árg: 1985) project
Cavalier
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Thu 20. Mar 2008 23:39
Location: heima

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby ömmudriver » Sat 26. Jun 2010 21:56

Ég er nokkurn veginn ómenntaður en ég fór í framhaldsskóla og var þar of lengi að drepast úr leiðindum og áhugaleysi með meiru þannig að ég er búinn að vera á vinnumarkaðnum síðan.

Ég er með meiraprófið og má keyra rútu, leigubíl, trukk og trukk með vagn. Einnig er ég með lyftarapróf og A.D.R. réttindi en A.D.R. er skammtöfun yfir franskt nafn á réttindum til þess að flytja hættuleg efni eins og t.d. eldsneyti og sprengiefni.

Ég hef unun af því að keyra trukka og þá aðallega treiler og flytja allkyns dót og tæki á milli staða en ég bjóst ekki við því að hafa svona gaman af þessu þegar ég fór í meiraprófið :lol:

Framtíðaráformin mín voru að verða flugmaður en því fylgdi of mikið nám þannig að ég nennti því ekki, svo ætlaði ég að verða hótelstjóri en ég missti áhugan á því vegna þess hversu dýrt námið var :roll:

Ég er mjög óakveðinn með hvað ég vill gera í framtíðinni en á borðinu er að læra eitt af eftirfrarandi; húsamíði, bifvélavirkjan, flugvirkjan, vélstjóran eða skipstjóran.

Núna er ég í tímabundnu starfi sem hlaðmaður hjá IGS ehf. en í því fellst að afhlaða og hlaða frakt/farangri á flugvélar og ýta þeim út af stæðum og sækja þær út á flubraut ef þær bila :D
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby B4ldur » Sat 26. Jun 2010 22:05

Ég kláraði húsasmiðí ásamt stúdentsprófi í vor. Er núna í Noregi að vinna sem smiður.
Veit ekki alveg hvað ég geri í haust. Er með inngöngu í HR og HÍ en langar að safna smá pening og fara á flakk. Asía, Indland er ofarlega á listanum. Hugsa að ég láti verða af því :)
Image
B4ldur
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 17
Joined: Tue 01. Dec 2009 11:01

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby jon mar » Sat 26. Jun 2010 22:17

Fór í framhaldsskóla í einhverjar 4 annir á félagsfræðibraut. Nennti því ekki þó svo mér hafi gengið ágætlega og fór að vinna til að eignast einhverja aura. Hef alltaf ætlað aftur í skóla til að læra eitthvað skynsamlegt og skemmtilegt en nærri 10 ár hafa liðið án þess að ég hafi nokkuð aðhafst í því. ÉG SKAL einhvertíman!

Er með meiraprófið, vörubíl, rútu, leigubíl og eftirvagn.

Mestmegnis búinn að vera að vinna hjá Íslandspósti síðustu 6-7 árin, með hléum inná milli við að gera eitthvað allt annað, ss keyra búkollur og trailera og þesslags ævintýramennsku. Síðustu 4 árin hef ég verið að keyra bíl fyrir póstinn á milli byggðalaga í Eyjafirði. Þar áður í að þjónusta fyrirtæki á Akureyri.
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby jens » Sat 26. Jun 2010 22:23

Tók sveinspróf í rafvirkjum 1990 og vann við það til 2006.
Skráði mig í fjarnám í Háskóla Reykjavíkur 2005 og útskrifaðist
sem Rafiðnfræðingur 2008 en byrjaði að vinna sem slíkur 2006
á stórri verkfræðistofu.

Er einnig með eitthvað að öðrum réttindum eins og t.d
Meistararéttindi í rafvirkjun, meira prófið, vinnuvélaréttindi
og fl. Einnig er ég með Löggildingu sem slökkviliðsmaður,
en það Diploma sem ég er mest stoltur af er viðurkenning
sem ég fékk í Finnlandi fyrir að stunda sauna og stinga mér
í ísköld vötn eins og innfæddur Finni :D
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby eiddz » Sun 27. Jun 2010 03:06

Er að læra bifvélavirkjun í borgó og að vinna sem kokkur á T.G.I Friday's
Kveðja, Eiður
8665409

BMW E30 325i '87 [FCKJDM]
BMW E30 300i '87

Image
eiddz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 956
Joined: Wed 07. Jun 2006 01:11

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby bErio » Sun 27. Jun 2010 13:43

eiddz wrote:Er að læra bifvélavirkjun í borgó og að vinna sem kokkur á T.G.I Friday's

Flengdu Elísu frá mér :mrgreen:
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.
User avatar
bErio
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3691
Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby íbbi_ » Sun 27. Jun 2010 15:40

já gaman að sjá hvað menn eru að gera, og hvað þeir eru lærðir

sjálfur hefði ég áhuga á að læra stjórnmálafræði eða hagfræði, jafnvel sálfræði. en þjáist hinsvegar af svo gífurlegri bíladellu að hún mengar allt annað,

löngunin er að fara út að læra eitthvað sérhæfðara tengdu vélum/bílum, og hef ég svosum ekki lokað á það, en ég hugsa að ég klári e-h bíl-iðn námið sem er í boði hérna heima fyrst ég er kominn með fjölskyldu og svona.

annars vann ég fyrstu vinnu árin í fiski, og á sjó fyrir vestan, fluttist svo í bæinn og hef eiginlega bara unnið í bílatengdum störfum síðan, verkstæði,partasölu,bílaumboði, bílasölum þangað til hrunið varð,

annars vinn ég hjá össur HF í dag, en er svo í e-h monkey buisnes sjálfur.. halda við e-h bílgörmum fyrir vini og vandamenn,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Við hvað vinnuru / Hvað ertu að læra?

Postby jeppakall » Sun 27. Jun 2010 16:30

Er í hátækniverkfræði í HR

Vinn við að setja upp öryggiskerfi og endabúnað fyrir ljósleðara.
jeppakall
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 292
Joined: Thu 13. Jul 2006 12:08

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 8 guests