///M wrote:Alveg eðlilegt að farið sé yfir málin eftir að svona dómur fellur.
Það þarf að tryggja að fjármálakerfi landsins haldist áfram starfshæft og því mikilvægt að flýta sér hægt.
Þau fjármálafyrirtæki sem eru með þessi lán hjá sér ætla til dæmis ekki að senda út rukkun um mánaðarmótin þannig að það er nú eitthvað að gerast.
Það má segja undir rós að "verið sé að fara yfir málin" en sannleikurinn er að það eina
sem bankarnir eru núna að spá er hvernig þeir geta reddað sér út úr því klúðri sem
þeir komu sér í. Þeir leita nú allra leiða til að fá aðra vexti en voru í samningunum
þó að engin forsenda sé fyrir slíku.
Það hefur þegar komið fram að bankakerfið fer ekki á hliðina og engin hætta á að það
verði ekki áfram starfshæft. Það eru kannski smærri félög eins og Lýsing sem fara en
það er bara allt í lagi - farið hefur fé betra.
Það er satt að ekki fer út rukkun fyrir bílalánin en mér skilst að fasteignalánin verði
rukkuð eins og ekkert hafi gerst.



