drolezi wrote:
batti wrote:
drolezi wrote:
Í dag, hálfum mánuði seinna, er ekkert bréf komið. Ég hringdi því í SP og fékk það svar að ég ætti að eiga von á bréfinu um mánaðamótin. Það ætti að líða fljótt enda komið sumarfrí...
Þessar fregnir fékk ég fyrir örugglega mánuði síðan að ég ætti von á bréfi og gat konan sem ég ræddi við hjá SP ekki gefið mér nánari upplýsingar þar sem hvert lán fyrir sig væri í einhverskonar reikningsferli, skiljanlega enda misjafn hvaða lausnir hver og einn hefur nýtt sér. En mér skildist að ég ætti von á endurgreiðslu og hef ég dundað mér á að reikna það út og ætti ég að fá ca. 300.000kr fyrir rang greiddar afborganir auk leiðréttingar á því sem ég greiddi þegar lánið var greitt upp við sölu á bílnum. En hún gat ekkert staðfest neitt og gaf mér loðin langlokusvör um hvernig og hvenær þetta myndi allt gerast og fann ég að hún var ekkert rosalega vel upplýst um málið á þessu tíma. Ekki mun ég borga fullan skatt af þessari endurgreiðslu með bros á vör ef hún verður að veruleika. Trúi því ekki að það geti orðið svoleiðis
Mér þætti vænt um að vita hvernig þú reiknaðir það út.
Mér þykir líklegast að þeir verði að reikna út lánið líkt og ég hafi tekið íslenskt verðtryggt lán. Því eflaust væri það of gott ef þeir ætla að hugsa þetta út frá myntkörfuvöxtunum og verðtryggingarleysinu sem þau höfðu.
Setti dæmið upp eins og ég hefði tekið á sama tíma samskonar lán bara í íslenskum krónum, með þá vexti í huga sem bjóðast á slíkum lánum. Mismunurinn í mínu tilfelli var sirka þessi tala. Ég nýtti mér engar frystingar eða slíkt og borgaði því alltaf bara upp í topp. Tók þá ákvörðun þrátt yfir að vera námsmaður í hlutastarfi allan tímann frá hruni og fram í janúar sl. þegar ég seldi bílinn. Ef ég fæ þetta borgað til baka þá var þetta rosalega góður skyldusparnaður fyrir námsmann

Ég hinsvegar fór ekki mikið út í það að velta fyrir mér hver höfuðstóll lánsins væri í dag miðað við allt sem hefur gengið á varðandi verðbólgu og þess háttar. Ég er hættur að syrgja þá peninga sem fóru í það að borga niður lánið og allt sem ég fæ, ef e-ð er bara plús. Best að búast við sem minnstu.