by JOGA » Sat 15. May 2010 18:16
Sælir,
Tók eftir því í dag þegar ég lét setja felgurnar undir að ballansstangar endinn/tengingin (swaybar link) er brotinn af niðri við spyrnu.
Þegar ég fékk bílinn var þetta laust og ég festi það aftur. Fannst reyndar vera skekkja á þessu þegar ég setti þetta saman. Þ.e. það þurfti rosaleg átök til að ná að bolta þetta fast við spyrnuna. Virtist ekki vera alveg á sama stað miðað við hinu megin.
Held þetta hafi brotnað út af þessari spennu.
Hvað getur orsakað það að spyrnan er ekki alveg á réttum stað eða swaybar dótið? Fóðringarnar virðast fínar að öðru leiti.
Fer að enda með því að ég panti tíma í Eðalbílum og biðji þá um að bilanagreina þetta fyrir mig.
Held þetta tengist þessum víbring þegar ég bremsa.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir