Víbringur þegar bremsað er [E36]

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

Postby birkire » Tue 06. Apr 2010 00:58

JOGA wrote:Málið er bara að þetta kemur svolítið og fer. Það er ástæðan fyrir því að mér finnst diskar ólíklegir. Hefði haldið að þetta væri nokkuð konstant ef þetta væru diskar.


disknar hitna og kólna alveg on og off.. myndi allavega mæla kastið á þeim til að útiloka þá
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

Postby Energy » Tue 06. Apr 2010 05:44

En dekkin sjálf?
Energy
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Mon 29. Jun 2009 23:20

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

Postby Axel Jóhann » Wed 07. Apr 2010 19:04

JOGA wrote:Skreið undir og tók mynd af fóðringunni.

Get ekki betur séð en að þetta sé nánast nýtt. Hvað annað getur orsakað svona. Var búinn að heyra að stirður eða fastur stimpill í dælu gæti orsakað svona. Myndi það stemma við þetta? Tek líka eftir því að þetta minnkar ef ég bremsa fast úr svolitlum hraða. Mest við lítið átak.

[img]http://i249.photobucket.com/albums/gg201/jongardar/328i%20Touring/DSC09059.jpg?t=1270508217[img]




Þetta er nákvæmlega eins og hjá mér.


Hjá mér er fóðringin orðin aðeins léleg h/m og ein ballansering datt af felgunni.



Láttu ballansera frammfelgurnar og ef þetta lagast við það þá er þetta nákvæmlega sama og er að hjá mér. Var í góðu lagi með nýballanseraðar felgur að framan en svo datt ein af hægri felgunni og þá byrjaði þetta að leita aðeins út í fóðringuna og byrjaði þar af leiðandi að víbra!
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

Postby JOGA » Sat 15. May 2010 18:16

Sælir,

Tók eftir því í dag þegar ég lét setja felgurnar undir að ballansstangar endinn/tengingin (swaybar link) er brotinn af niðri við spyrnu.
Þegar ég fékk bílinn var þetta laust og ég festi það aftur. Fannst reyndar vera skekkja á þessu þegar ég setti þetta saman. Þ.e. það þurfti rosaleg átök til að ná að bolta þetta fast við spyrnuna. Virtist ekki vera alveg á sama stað miðað við hinu megin.

Held þetta hafi brotnað út af þessari spennu.

Hvað getur orsakað það að spyrnan er ekki alveg á réttum stað eða swaybar dótið? Fóðringarnar virðast fínar að öðru leiti.

Fer að enda með því að ég panti tíma í Eðalbílum og biðji þá um að bilanagreina þetta fyrir mig.
Held þetta tengist þessum víbring þegar ég bremsa.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

Postby Axel Jóhann » Mon 17. May 2010 23:57

Segi aftur, minn bíll var svona bara víbríngur annað slagið þegar ég bremsaði svo skipti ég um alla spindla(í þeim voru spyrnufóðringar) og þá hætti þetta alveg. :)



Btw þá kosta þessar fóðringar bara 4000kr hjá AB varahlutum. ;) Og easy að skipta um sjálfur.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

Postby arnibjorn » Tue 18. May 2010 08:23

Þetta er einmitt sama vandamál og í mínum Compact.

Þegar maður bremsar laust þá titrar hann allur en ef maður stígur svo fastar þá minnkar titringurinn.

Ætli það séu ekki bara einhverjar fóðringar orðnar slappar :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

Postby jonthor » Tue 18. May 2010 11:29

Maddi.. wrote:
///M wrote:Lennti jon[eitthvað] ekki í þessu með e36 323i? Var búinn að skipta nánast út öllu nema boddyi þegar hann fann hvað var að :o


http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=9107


Tjah, eins og má sjá af þessum skrifum mínum skipti ég bókstaflega um allt sem gæti valdið titringi frá framenda bílsins. Þetta lagaði samt ekki vandamálið alveg. Það sem vantar í þráðinn að eftir að ég kom með bílinn heim árið 2006 að þá skipti ég um diskana að aftan og þá endanlega fór allur titringur úr bílinum.

Ég var í raun búinn að útiloka að það væri að valda svona miklum titringi þar sem þetta virtist augljóslega vera að koma að framan. Ég mæli amk með því að menn geri ekki lítið úr því hversu mikill titringur getur komið fram í gegnum verpta afturdiska. Það er mín reynsla að slíkan titring má nánast leggja að jöfnu við verpta diska að framan.

Svolítið magnað að komast að þessu eftir að hafa skipt um bókstaflega allt frá nafi að felgum að framan :oops:
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests