Nokkuð skondið með lögguna, ég er nú búinn að eiga nokkra sportbíla síðustu 10 árin eða svo. Hér er smá samanburður í lögregluathygli
Sunni GTi, var oft stoppaður, tókst einu sinni að vera stoppaður tvisvar sama daginn, keyrði samt alltaf skynsamlega og var ekki með nein asnaskap. Mjög vinsæll "löggubíll"....
Mitsubishi3000GT, það var bókstaflega erfitt að eiga við lögregluna á þessum bíl. Ég var margoft stoppaður að ástæðulausu. En eins og með Sunnyin, bíllin bauð upp á þetta...
Fyrsta kvöldið sem ég átti hann var ég stoppaður. Fyrsta sem ég spurði þegar ég kom í lögreglubílinn var "Er það bíllinn?" þeir játuðu þessari spurningu. Ég var "aðeins" tekin tvisvar í þau tæpu þrjú ár sem ég átti hann, fékk engar sektir.
Annars finnst mér ósanngjarnt að sakast við lögregluna í þessum efnum, þeir eru einfaldlega að vinna sína vinnu. Lögreglan er mannleg og gerir allskyns vitleysur eins og allir aðrir, sumir reyndar fara langt yfir "dominate" mörkin.... Spurning um að setja sig í þeirra spor, lögreglustarfið er oft ekki öfundsvert.
Annars langar mér að bæta einu við hérna, þegar ég seldi 3000GT tók ég upp í Daihatsu Charade, sem var heil 44 hestöfl, ég keyrði eins og fáviti á þessum bíl í eitt ár, eins og druslan dró !! Aldrei var ég stoppaður
