T.d. í Noregi þá er löglegt að skipta um boddý ef bíllinn tjónast ákveðið mikið. Þ.e. að halda samt skráningunni.
Þá þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Allt úr upprunalega bílnum þarf að fara í nýtt boddý. Hver einasti bolti og skrúfa.
Mér þykir þetta svolítið áhugavert.
Hér er í raun búið að uppfylla þau skilyrði. Búið er að skipta út skemmdum hluta bílsins og allt notað úr þeim gamla.
Svo er annað mál að mér finnst nauðsynlegt að þetta komi skýrt fram við sölu. Einnig er ég forvitinn að vita hvort þessi bíll er enn með RU skráninguna. Ef ekki lítur þetta svolítið öðruvísi við.
En annars virkilega flottur og eigulegur bíll



