Aulahúmor en ég hló
Þeir sveitungar, Kálbjörn og séra Jimmy, sáu að þeir voru komnir á endastöð í lífinu og ákváðu að fara í skóla til að komast eitthvað áfram. Séra Jimmy er sennilega búinn að missa brauðið, fyrir margvísleg ljót brot gagnvart sóknarmeðlimum. Þeir byrja á því að fara til námsráðgjafa og Kálbjörn fer inn fyrstur.
Námsráðgjafinn ráðleggur Kálbirni að taka stærðfræði, sögu og rökfræði.
"Hvað er rökfræði?" spyr Kálbjörn.
Námsráðgjafinn svarar: "Leyfðu mér að koma með dæmi. Áttu sláttuvél?"
"Hana á ég," svarar Kálbjörn.
"Þá geri ég ráð fyrir; og nota rökfræði, að þú eigir garð," svarar námsráðgjafinn.
"Mjög gott," segir Kálbjörn hrifinn.
Námsráðgjafinn hélt áfram, "rökfræðin segir mér líka, að fyrst þú átt garð, þá áttu líka hús."
Yfir sig hrifinn hrópar Kálbjörn: "FRÁBÆRT!"
"Og fyrst þú átt hús, þá má jafnvel giska á að þú eigir konu."
"Hana Miu! Þetta er ótrúlegt!"
"Og að lokum, fyrst þú átt konu, þá er rökrétt að gera ráð fyrir að þú sért gagnkynhneigður," segir námsráðgjafinn.
"Það er alveg hárrétt! Þetta er það magnaðasta sem ég hef nokkurn tíma heyrt! Ég get ekki beðið eftir að byrja í rökfræði."
Að því búnu fer Kálbjörn fram þar sem séra Jimmy bíður ennþá.
"Hvaða fög tekurðu?" spyr séra Jimmy.
"Stærðfræði, sögu og rökfræði," svarar Kálbjörn.
"Hvað í veröldinni er rökfræði?" spyr séra Jimmy.
"Leyfðu mér að koma með dæmi. Áttu sláttuvél?" spyr Kálbjörn.
"Nei." Segir séra Jimmy.
"já ok,,, þú ert hommi er það ekki?" segir Kálbjörn.