bimmer wrote:bebecar wrote:Get nú ekki séð að það sé væl að segja að ríkisstjórnin hafi ekkert gert... hún hefur ekkert gert![]()
Það afsakar ekki aðgerðarleysið að hún hafi tekið við af annarri ríkisstjórn sem gerði heldur ekki neitt.
Fólk er að glíma við nákvæmlega sömu vandamálin núna og fyrir 18 mánuðum síðan... það hafa bara fleiri bæst í hópinn.
En með Icesave... þá er málið auðvitað flókið og ég var ekki að einfalda það (ég þekki málið MJÖG vel eftir 8 mánaða rannsóknarvinnu bara í því dæmi... og er eiginlega fyrir löngu komin með upp í kok af því máli). Hinsvegar var ég bara að benda á megin ástæðuna fyrir panikkinu hjá viðsemjendum okkar. Menn standa frammi fyrir kerfislegum vanda sem yrði öllum ljós ef fordæmið kæmi héðan fyrir því að neita að borga.
En er samt hægt að tala um að atkvæðagreiðslan snúist um að neita að borga vs. að
borga?
Það er reyndar alveg gild spurning. Þetta er hinsvegar túlkað á þann hátt erlendis... þannig að...


