Ég var einmitt í skúrnum áðan, gleymdi svo að taka með mér kremið sem ég nota við samsetninguna þannig að ég gerði voðalega lítið. Tók aðeins til að byrjaði að hreinsa alla fitu úr legusætum og þess háttar smotterí. En það er komið upp smá vesen, er líklegast að missa aðstöðuna núna um næstu mánaðarmót sem er alveg glatað því að ég hef enga aðra aðstöðu í augnablikinu. Kemur í ljós á morgun hvort ég geti framlengt um mánuð eða tvo, það væri nóg strax skárra því að þá hefði ég smá tíma til að finna annan skúr.
Ég er ekki búinn að fá heddið ennþá, það styttist hins vegar í það

kemur í ljós hvernig það verður tollað, vonandi verður það ódýrt. Veit ekki hvort ég sendi þeim mitt hedd til að fá Core-Charge endurgreitt, það er sjúklega dýrt að senda það og jafnvel meiri peningur í að selja það bar locally. En ég byrja hugsanlega annað kvöld á samsetningu, er að vona að ég hafi tíma til þess því að ég veit ekki enn hvort ég þurfi að fræsa úr fyrir stöngunum. Mér var sagt að þess ætti ekki að þurfa en það kemur vonandi í ljós á morgun, vill svo gjarnan sleppa við meiri blokkar-vinnu. En læt nokkrar myndir fylgja, var að fá sveifarásinn í dag og svinghjólið fylgdi med. Búið að taka MIKIÐ af því

eða það finnst mér allavega.




Er með nýjar legur og allt er klárt fyrir samsetningu þannig séð, er búinn að versla mér efni sem heitir Lindemann MP790 sem verndar legur og stærri slitfleti við fyrsta start. Núna vantar bara tíma og móð
