bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 18. Jun 2025 08:09

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject: Re: X6 M drag race
PostPosted: Wed 20. Jan 2010 22:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
slapi wrote:
íbbi_ wrote:
ég vildi helst ML63, en myndi eflaust alltaf taka cayenne turbo, að segja að það sé óheillandi akstursbíll get ég bara ekki samþykt, cayanne turbo er með handling í öðrum flokki en flest allt sem sést hefur í þessum þyngdarflokki



Hef aldrei prófað ML63 en er með miklar væntingar við hann , sagt er að hann sé þrususkemmtilegur.


En varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég keyrði Cayenne Turbo , þetta er vonlaust , built quality er bara útur korti fyrir bíl í þessum verðflokki , ótrúlega innréttingar brak og marr í öllum þeim bílum sem ég hef prófað.
Sjálfskiptingin er sú óhlýðnasta sem ég hef prófað , vill ekkert gera fyrir mann þó maður sé innan skinsamlegra marka.
Ótrúlegt hvað bíllinn hoppar fram og aftur við , full load , 4500-5000 rpm ,,,,,,, no load. Shaken baby not stirred.


já sjálfskipting fer líka í 6 gír á 30 km/h

:lol:

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: X6 M drag race
PostPosted: Sat 23. Jan 2010 14:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
hef ekki orðið var við þetta með skiptinguna,

marrið í innrétinguni á þeim er reyndar alveg true, sérstaklega í 03 árgerðum, maður sem er búinn að flytja inn mikið af þessum bílum vildi meina að þetta væri lagað í að mig minnir 05 árgerð?ég varð ekki var við innrétinga marri í hans bíl, sem var 06 árg af turbo,

en það sem að heillar mig með cayenne er hversu sportlegur hann er þegar maður fer að þjarma af honum, gaman að finna hann lækka sig, stýrið þyngjast og flr þegar maður setur í sport, ég keyrði rvk-hveragerði fram og til baka í vinnuna eina vinnuviku, og ég hef ekki farið hraðar upp eða niður kambana,
svo er bara hálf fyndið að sjá hvernig 2650kg bíll fer á hlið og kveikir í ölum fjórum og fer að sýna af sér hegðun sem ætti betur heima í evo eöh álíka, þegar maður fer að þjarma af honum,

ML63 er ekki jafn mikil græja, mér finns thann fallegri bæði að innan sem og utan, og mér finnst þeir reyndar einstaklega þægilegir í akstri, en aksturseiginleikalega séð er hann varla samkepnishæfur,og ég myndi telja að aflið væri ekki alveg á pari heldur,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: X6 M drag race
PostPosted: Sat 23. Jan 2010 20:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Íbbi,,

þú hljómar eins og einhver MEGA reynslubolti í test drive,, og umhirðu ,, ásamt innkaupum og ég veit ekki hvað varðandi marga af einhverju mest ofurbílum sem hafa komið til landsins



ps,, er ekki að gera lítið úr einu eða neinu .. en ég er búinn að gera MARGT,, en telst þó hreinlega



mega wannabe varðandi þig

:shock: :shock: :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Last edited by Alpina on Sun 24. Jan 2010 20:53, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: X6 M drag race
PostPosted: Sun 24. Jan 2010 20:13 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Fri 01. Jun 2007 14:38
Posts: 198
Ég hefði talið að það væri augljóst. Maðurinn er búinn að vera afkastamikill bílasali akkúrat á þeim tíma þegar við vorum Dubai norðursins.

Þegar ég þarf að vita eitthvað um bíl þá yfirleitt slæ ég á þráðinn til Bæza. Það er varla til sá bíll sem hann hefur ekki reynslu af :)
Mig langaði oft að vera bílasali á þessum tíma, virkaði eins og skemmtilegt djob :thup:

kv,
Tombob


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: X6 M drag race
PostPosted: Tue 26. Jan 2010 17:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
hehe :lol:

nei sú er nú aldeilis ekki raunin, hvorki varðandi afköst sem bílasali né reynsluna, en það er bara hinsvegar þannig að bílaheimurinn hérna er mjög lítill, og á tímabili var afar mikið af áhugaverðum bílum hérna, og því þurfti engin kraftaverk eða vúdú galdra til að taka í helstu bíla flórunar,

þessi slyddujeppar voru nú í búntum hérna, RR,cayenne,ML,X5 og gengu á milli manna eins og gamalt klámblað á síðutogara, sama gildi um E60 E65, w220, w211 og flr bíla, svo var nú líka annað að flestir þessara bíla voru í braski, og voru oftar en ekki viðhaldsþurfi með meiru, og því var nú ansi auðvelt að fylla stæðið af hjálparvana stöðutáknum ef maður gat reddað mælaborðsljósum og flr :roll:

einnig vann ég nú hjá fleyri en einu fyrirtæki sem flutti inn bíla af yfirleitt ekki verstu sortunum, og þar af einu sem flutti inn aragrúa af lúxusjeppum, og var maður því með þessa umræddu bíla í höndunum allan daginn og þyrfti að vera heiladauður með meiru ef maður væri ekki búinn að mynda sér skoðun á bílunum og jafnvel bera þá saman og spá og spögulera, ég minnist einmitt m.a eftir að hafa oftar en einu sinni lent á löngum og skemmtilegum spjöllum við þig á bílasölum tombob, sem og pabba þinn reyndar líka, sem er i.m.o með meiri smekkmönnum á bifreiðar sem ég hef rekist á,

annars er þetta ekki í fyrsta skiptið sem þú nefnir þetta sveinbjörn, ef þetta fer eitthvað í taugarnar á þér eða veldur þér svefnleysi er þér velkomið að setjast niður yfir kaffibolla og spurja mig spjörunum úr..

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: X6 M drag race
PostPosted: Tue 26. Jan 2010 17:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
Tombob wrote:
Mig langaði oft að vera bílasali á þessum tíma, virkaði eins og skemmtilegt djob :thup:kv,Tombob


bílasölustarfið sem slíkt á þessum tíma og geirinn í kringum það var eflaust skemmtilegasta umhverfi fyrir bíladellumann sem hefur skapast hérna,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group