hehe
nei sú er nú aldeilis ekki raunin, hvorki varðandi afköst sem bílasali né reynsluna, en það er bara hinsvegar þannig að bílaheimurinn hérna er mjög lítill, og á tímabili var afar mikið af áhugaverðum bílum hérna, og því þurfti engin kraftaverk eða vúdú galdra til að taka í helstu bíla flórunar,
þessi slyddujeppar voru nú í búntum hérna, RR,cayenne,ML,X5 og gengu á milli manna eins og gamalt klámblað á síðutogara, sama gildi um E60 E65, w220, w211 og flr bíla, svo var nú líka annað að flestir þessara bíla voru í braski, og voru oftar en ekki viðhaldsþurfi með meiru, og því var nú ansi auðvelt að fylla stæðið af hjálparvana stöðutáknum ef maður gat reddað mælaborðsljósum og flr
einnig vann ég nú hjá fleyri en einu fyrirtæki sem flutti inn bíla af yfirleitt ekki verstu sortunum, og þar af einu sem flutti inn aragrúa af lúxusjeppum, og var maður því með þessa umræddu bíla í höndunum allan daginn og þyrfti að vera heiladauður með meiru ef maður væri ekki búinn að mynda sér skoðun á bílunum og jafnvel bera þá saman og spá og spögulera, ég minnist einmitt m.a eftir að hafa oftar en einu sinni lent á löngum og skemmtilegum spjöllum við þig á bílasölum tombob, sem og pabba þinn reyndar líka, sem er i.m.o með meiri smekkmönnum á bifreiðar sem ég hef rekist á,
annars er þetta ekki í fyrsta skiptið sem þú nefnir þetta sveinbjörn, ef þetta fer eitthvað í taugarnar á þér eða veldur þér svefnleysi er þér velkomið að setjast niður yfir kaffibolla og spurja mig spjörunum úr..