Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby gunnar » Tue 19. Jan 2010 23:55

Fólk má heldur ekki gleyma því að á Íslandi geta margir hverjir alla vega reitt sig á aðstoð og velvild (ekki endilega peninga) frá vinum og vandamönnum sem getur reynst erfiðara úti í heimi.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby JOGA » Wed 20. Jan 2010 00:00

gunnar wrote:Fólk má heldur ekki gleyma því að á Íslandi geta margir hverjir alla vega reitt sig á aðstoð og velvild (ekki endilega peninga) frá vinum og vandamönnum sem getur reynst erfiðara úti í heimi.

Það er eimitt málið. Hér er líka auðveldara að redda hlutum. Allt til hér í Rvk og stutt að fara að sækja allt. Getur reddað notuðu þessu og hinu og rennt við og sótt það kviss bamm.

Það er allt svo FÁRÁNLEGA dýrt í Noregi líka. Lestarkort í mánuð kostaði mig ca. 27.000ISK. 1,5L af gosi vel rúmlega 400ISK. Líter af bensíni rúmlega 250ISK. Föt og raftæki eru það eina sem ég man eftir að hafa verið á ágætu verði.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby Joibs » Wed 20. Jan 2010 00:45

JOGA wrote:
gunnar wrote:Fólk má heldur ekki gleyma því að á Íslandi geta margir hverjir alla vega reitt sig á aðstoð og velvild (ekki endilega peninga) frá vinum og vandamönnum sem getur reynst erfiðara úti í heimi.

Það er eimitt málið. Hér er líka auðveldara að redda hlutum. Allt til hér í Rvk og stutt að fara að sækja allt. Getur reddað notuðu þessu og hinu og rennt við og sótt það kviss bamm.

Það er allt svo FÁRÁNLEGA dýrt í Noregi líka. Lestarkort í mánuð kostaði mig ca. 27.000ISK. 1,5L af gosi vel rúmlega 400ISK. Líter af bensíni rúmlega 250ISK. Föt og raftæki eru það eina sem ég man eftir að hafa verið á ágætu verði.

síðan koma plúsar líka við noreg, þú færð borgað fyrir að vera í skóla, ekkert mál að fá vinnu ef þú rét skilur eða nærð að útskíra hluti, fólkið hefur oftast ekkert á móti að hafa þig í landinu ef þú ert með vinnu eða ert í skóla, það er ekkert mál að taka auka vinnu til að fá eh eins og ef þú ert að bigja hús og vinnur við eh sem tengist mikið af spítum og svona þá er hægt að fara bara og díla viss mikið magn fyrir viss mikla vinnu :D (a.t.k. þetta er allt sem að frændi minn er búinn að segja mér, hann er núna búinn að búa þarna í 4-5 ár og er núna barí skóla og fær borgað fyrir það og er eini íslendingurinn til að keppa í hundasleða hlaupi :lol: )
afsakið allar stafsetningar villur (er lesblindur)
Image
BMW e36 325is "dundið" (seldur)
BMW e36 318is "daily"
BMW e32 730ia "sá fyrsti" (seldur :( )
User avatar
Joibs
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1204
Joined: Sat 11. Jul 2009 16:34

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby Alpina » Wed 20. Jan 2010 07:56

íbbi_ wrote:ég er búinn að vera spá í að fara út, noregur eða svíþjóð kæmu þá helst til greina, vill einhverja hluta vegna alls ekki fara til danmörku, líkar danir almennt ekki og hata tungumálið..

m.a við hvað það er auðvelt eða þannig að reka fjölskyldu hérna þegar maður vinnur vel yfir 200 tíma á mánuði, þá sé ég það bara ekki fyrir mér að það muni hreinlega ganga upp að fara klára skóla hérna heima, velferðakerfið þarna tekur líka allavega lágmarks tillit til þess að fók þurfi að lifa, og tekur tillit til barna, og þess að fólk þurfi nú að brauðfæða börnin sín,

svo er annað mál að það er bókstaflega orðið niðurdrepandi að búa hérna, það er ekkert lát á því hversu illa allt virðist ætla fara, ekkert er að breytast, stjórnmálaelítan virðist viljandi vinna gegn þjóðini, og allt bókstaflega að fara á hliðina, ég hef lengi tautað að ég ætli ekki að láta þetta ástand stela föðurarfinum frá mér, þ.e.a.s landinu okkar, sem við erum raunverulega svo heppin að eiga, en hversu lengi getur maður staðið í svona ástandi..

Þú færð ekki 200 klst löglega vinnu á Norðurlöndunum,, ef svo er ,, þá ertu skattpíndur og færð eflaust minna útborgað
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby fart » Wed 20. Jan 2010 08:10

Ég held að menn sjái oft útlönd í hillingum. Það er að sjálfsögðu margt frábært við að búa erlendis, en maður verður að gera ráð fyrir hlutum sem hafa verið taldir upp hér á þráðnum.

t.d.
-Dýrt húsnæði
-Dýrt rafmagn, gas, olía, vatn
-Dýrar bílatryggingar
-Dýr skólagjöld/leikskólagjöld.
-Sorphirðugjöld (já hljómar fáránlega)
-Matur er misdýr eftir löndum og oft ekkert ódýrari en á Íslandi, passa sig á því að horfa ekki of mikið á verð á áfengi/bjór/víni
-Bensín á Íslandi kostar c.a. 1.1 euro/L sem er sama verð og í Lúxemborg sem er 20% ódýrari en Þýskaland. Grunar að norðurlöndin séu síst ódýrari en Þýskaland þannig að bensín er dýrara en á Íslandi.
-Launin gætu verið hærri í grunninn (Gjaldmiðillxkrónur) en hverjum er ekki sama ef þú býrð erlendis, þá skiptir krónan engu máli enda öll útgjöld í gjaldmiðlinum og því bottom line (afgangur um mánaðarmót) sem skiptir máli.
-Skattar geta í mörgum tilvikum verið hærri.

Þetta voru peningalegu hliðarnar.

Svo kemur hitt
-tungumálavandamál. Sumstaðar er það þannig að ef þú talar ekki málið ertu fuckt
-Elsku mamma gengur ekki upp, því að mamma er á Íslandi, þannig að eitthvað fer í rugl, húsnæði, bíllinn bilar, passa krakkana eða whatever, þá ertu í mörgum tilvikum EINN á báti.
o.s.frv.

Að öllu þessu upptöldu, þá er ég ekki að leiðinni til Íslands. :alien:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby Giz » Wed 20. Jan 2010 08:26

fart wrote:Ég held að menn sjái oft útlönd í hillingum. Það er að sjálfsögðu margt frábært við að búa erlendis, en maður verður að gera ráð fyrir hlutum sem hafa verið taldir upp hér á þráðnum.

Margt ef ekki allt rétt sem áður hefur komið fram. Hitt er að ég skil hugsunina mjög vel, hef sjálfur búið meira að hálfpart æfi minnar erlendis mjög víða.

Varðandi Svíþjóð, þekki ég ekki atvinnuástandið hér nógu og vel til að útlista það per se, en Svíar eru um margt skrýtnir. Hafandi sagt það, myndi ég þó aldrei, aldrei, aldrei vilja búa í Noregi þar sem mér líkar ekki við þau grey!

Hitt er að hlutir kosta hérna, og það verulega, ég hef aldrei skilið að fólk um margt bauli um að það sé allt svo dýrt á Íslandi etc. Að fylla tank á M5 með V-Power kostar um sek 900.- eða um isk 16.000.-, minnir það hafi kostað um isk 11.000.- á Íslandi í sumar, tryggingar M5 kosta mig um sek 15.000.- pr ár og var með isk 90.000.- á M5 á Íslandi osfr. ég borga fyrir súper íbúð í góðu bryggjuhverfi í Stokkhólmi sek 12.000.- í leigu pr mán + sek 1.750.- í stæði í kjallara osfr osfr.

Það er að mörgu að huga í þessu öllu.

G
Last edited by Giz on Wed 20. Jan 2010 09:04, edited 1 time in total.
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby Kristjan » Wed 20. Jan 2010 08:40

Húsnæðið er dýr hér í svíþjóð. Upphitunin er vangefið dýr, 30 þúsund kall á mánuði fyrir einbýlishús bara í hita og rafmagn ef ég man rétt.

Maturinn er aðeins ódýrari hérna.

Ég er að bíða eftir leikskólaplássi fyrir strákinn minn, á meðan get ég ekki farið í skóla eða lært mikla sænsku.

Það eru ýmsir gallar við að búa erlendis, maður þekkir ENGANN á meðan maður er að finna sér vinnu eða skóla og þar að auki þá er frekar erfitt að kynnast svíum.

Við búum í sveit og ruslatunnan okkar er tæmd á 10 daga fresti! Við fórum mjög fljótt að flokka sorpið okkar.

Þetta er svona helsta sem mér dettur í hug í augnablikinu.

já p.s. allar útvarpsstöðvarnar hérna eru FM957 þannig að kauptu ipod í tollinum.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby gstuning » Wed 20. Jan 2010 10:14

Af því sem ég hef tekið eftir hérna í englandi er

Maður þekkir ekki kerfið þegar maður kemur
Það er ekki eins sveigjanlegt
Díesel er 220kall núna.
5-20mín commute í vinnuna er guðsgjöf.
Hiti og rafmagn er ekki svo dýrt
Maður verður að búa í landinu og vinna í 3ár til að komast í háskóla á local EU gjöldum(sparnaður uppá 12-16k pund í skólagjöld),.

Að keyra hægra meginn er alveg ótrúlega létt.
Með menntun er hægt að fá vel góð laun hérna. Enn ef um enga menntun er að ræða þá er frekar takmarkað launaþak almennt þar sem að mjög margir fá bara minimum wage 5.80pund/klst

Matur er í raun ekkert sérlega dýr ef maður fer í ASDA (við verslum fyrir cirka 50k á mánuði fyrir tvö) t.d. Enn 5000kall fyrir par í bíó ferð er alveg eðlilegt, 1600kall per miða og svo kostar nammi alveg geðveikt mikið í bíóinu. Ferð á pizza hut er 5kall lágmark fyrir par.

Þótt England virðist dýrt í krónum þá er verðlag lítið búið að breytast hérna síðan ég flutti út, þannig að um leið og maður fer að fá innkomu í pundum að ráði þá verður þetta auðveldar og í raun alveg lítið mál að búa hérna. Og bara að hafa 25k sem eru cirka grunnlaun fyrir engineering gráðu myndi alveg duga létt.

Háskólamenntun er engin miði uppá að fá gott job þegar menn labba úr skóla. Maður verður hreinlega að hafa gert meira á skólatímanum heldur enn bara að standast hann með glæsibrag, þetta er tuggið ofan í nemendur á fyrsta degi.

England getur verið ágætis staður að búa á ef maður er ekki nemandi að telja hvert pund sem maður eyðir.
Fullt FULLT af mótorsporti útum allt.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby Geirinn » Wed 20. Jan 2010 10:19

Skemmtilegar pælingar í gangi, gaman að fá upplýsingar beint frá þeim sem hafa prófað að búa í útlöndum. Sjálfur hef ég bara búið í útlöndum (Noregi) þegar ég hef ekki þurft að spá í hvað hlutir kosta, þ.e. var það ungur.

Smá dæmi:
Fór til Noregs í sumar og fór á pizzastað. Greiddi fyrir mat og drykk, tveir stórir bjórar, tvö gosglös, ein stór pizza og ein miðlungspizza (vorum 2 fullorðnir og 2 börn) um 730 NOK og gengið var um 20. Í þokkabót var þetta hádegismatur eftir ferðalagið frá Íslandi.

Mjög dýrt m.v. að mínar tekjur eru í ISK, ... töluvert dýrt fyrir Norðmann með tekjur í NOK, ... en ekkert rosalega langt frá því ef ég hefði farið á Pizza Hut á Íslandi með mínar ISK tekjur.

Ef maður byggir upp sjóð áður en maður fer út, þá fer sá sjóður, að manni finnst, "fyrir lítið". Hvort að hlutir eru dýrir fyrir mann eða ódýrir, er háð þeim tekjum sem maður hefur í viðkomandi landi (kaupmætti).

Það sem ég er að reyna að segja er að það er ekki alltaf lýsandi að umbreyta verðum á hinu og þessu í ISK til að sýna fram á að hlutir séu dýrir.

Það er hins vegar staðreynd að maður þarf að hugsa sig vel um á hvaða svæði maður fer þegar maður flytur erlendis. Orkureikningar eru t.d. oft mun dýrari en hér á Íslandi, svo og húsaleiga á þéttbýlum svæðum. Listinn sem fart setti fram er gott dæmi. Á öðrum stöðum er hægt að fá mjög góð kjör, einfaldlega vegna þess að það vantar fólk á svæðið.

Var að heyra fréttir af manni sem ég kannast vel við. Sá keypti sér nýlega húsnæði í Noregi á 1 NOK (tók vissulega yfir lán). Sá er að vinna dálítið frá því þar sem hann keypti hús, svo hann er ekki heima hjá sér nema fös.-sun. Hann fær bensínstyrk til að koma sér til og frá vinnu, sem og uppihald og gistingu á meðan hann er í vinnunni (mán.-fim.). Ofan á þetta væri hann mjög fín laun. Downside: Jú, hann er vissulega ekki heima hjá sér nema um helgar, en fær frí alla föstudaga. Maðurinn er smiður.

Var í Frakklandi í desember. Þar voru t.d. öll ljós slökkt, í öllum herbergjum nema þar sem fólk var. Það var til siðs að slökkva t.d. á tölvum á meðan borðað var. Svo var svo kalt inni að allir voru í skóm.

Félagi minn býr í Þýskalandi, er þar í skóla. Ég var að spyrja hann um daginn hvernig laun væru þar fyrir ungt fólk (sem er jafnvel í skóla). Þar má fólk vinna upp að einhverjum €639 á mánuði, án þess að borga tekjuskatt (og fyrsta þrepið þar eftir er 15% tekjuskattur + lögbundin gjöld). Fólk sem er að vinna í verslunum er með c.a. €9 á tímann, fólk sem er að vinna á veitingastöðum er með c.a. €10 á tímann + þjórfé, sem getur verið c.a. samtals €15-€20 á tímann (og þá þjórféð skattlaust) en sjálfur er hann að vinna hjá markaðsfyrirtæki við grafík og forritun með skóla og hefur c.a. €18 á tímann (byrjaði í €12 á tímann). Það er líka töluvert algent að eldri nemendur kenni yngri nemendum og hafa þeir c.a. €6 á tímann fyrir það (en það er vissulega ekki endalaus að gera í þeim "business"). Það skal tekið fram að það er ekki hlaupið að því að fá vinnu.

Skattkerfið í mörgum af löndunum í kringum okkur er líka letjandi, þ.e. þú þarft ekki að hafa neinar rosalegar tekur áður en skattman fer að taka meiri og meir skatt af tekjunum þínum. Á mörgum stöðum tíðkast heldur ekki að vinna yfirvinnu, einfaldlega vegna þess að það borgar sig ekki.

Síða í Danmörku sem útlistar viðmiðunarlaun m.v. menntun og starfsgrein: http://www.jobindex.dk/cgi/cv/salaryindex.cgi.

Mæli með því að þeir sem eru virkilega að spá í að flytja erlendis, kíki á þessa síðu:
http://ec.europa.eu/eures/main.jsp?acro=lw&lang=is&catId=490&parentId=0 (Búsetu- og starfsskilyrði).

Þarna er hægt að velja sér land og skoða upplýsingar um vinnumarkaðinn eða vinnuskilyrði og lífskjör.

Þeir sem hafa hug á því að flytja út... vandið ykkur og hugsið ykkur vel um. Það er ekkert "elsku mamma" þegar á hólminn er komið.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby JonHrafn » Wed 20. Jan 2010 10:30

Bjó í DK í einn vetur. Það sem pirraði mig mest var allur seinangangurinn í kerfinu. Maður sótti um að fá internetið. Ok , eftir 3 vikur komu menn og græjuðu tengingar og tengil. Þá sögðu þeir mér að það væri 2gja vikna biðtími áður en það yrði opnað fyrir netið, halló.

Þar sem ég bjó í kaupmannahöfn var hitað upp með svokölluðum fjarvarma, vatn hitað í sorpbrennslu, það var ekki há upphæð, litlu dýrara en á íslandi.

í dk er mjög ódýrt að versla nauðsynjar, flestar lágvöruverslanir gefa út bækling vikulega, ef maður skoðaði bara bæklingana og verslaði eftir þeim var þetta mjög ódýrt. Bæklingarnir réðu ss matseðli vikunnar.

DK er anti bílaland.

Almenningssamgöngu eru ekki dýrar, þá kostaði mánaðarkort 6000kall og maður gat ferðast í 1klst radíus frá miðborginni, ætli það sé ekki 10-12þús í dag.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby Maddi.. » Wed 20. Jan 2010 16:43

fart wrote:Ég held að menn sjái oft útlönd í hillingum. Það er að sjálfsögðu margt frábært við að búa erlendis, en maður verður að gera ráð fyrir hlutum sem hafa verið taldir upp hér á þráðnum.

t.d.
-Dýrt húsnæði
-Dýrt rafmagn, gas, olía, vatn
-Dýrar bílatryggingar
-Dýr skólagjöld/leikskólagjöld.
-Sorphirðugjöld (já hljómar fáránlega)
-Matur er misdýr eftir löndum og oft ekkert ódýrari en á Íslandi, passa sig á því að horfa ekki of mikið á verð á áfengi/bjór/víni
-Bensín á Íslandi kostar c.a. 1.1 euro/L sem er sama verð og í Lúxemborg sem er 20% ódýrari en Þýskaland. Grunar að norðurlöndin séu síst ódýrari en Þýskaland þannig að bensín er dýrara en á Íslandi.
-Launin gætu verið hærri í grunninn (Gjaldmiðillxkrónur) en hverjum er ekki sama ef þú býrð erlendis, þá skiptir krónan engu máli enda öll útgjöld í gjaldmiðlinum og því bottom line (afgangur um mánaðarmót) sem skiptir máli.
-Skattar geta í mörgum tilvikum verið hærri.

Þetta voru peningalegu hliðarnar.

Svo kemur hitt
-tungumálavandamál. Sumstaðar er það þannig að ef þú talar ekki málið ertu fuckt
-Elsku mamma gengur ekki upp, því að mamma er á Íslandi, þannig að eitthvað fer í rugl, húsnæði, bíllinn bilar, passa krakkana eða whatever, þá ertu í mörgum tilvikum EINN á báti.
o.s.frv.

Að öllu þessu upptöldu, þá er ég ekki að leiðinni til Íslands. :alien:

Solid svar, allt mjög góðir punktar. :thup:
En.. þetta er einmitt eitthvða sem fólk sem flytur til útlanda vegna þess að það heldur að það sé betra/auðveldara ætti að taka til sín.
Við erum einmitt ekkert að spá í þessu á þeim forsendum, lifum fínu lífi hérna heima - okkur langar bara að prufa eitthvað nýtt og fá þessa reynslu. :)
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby Tombob » Wed 20. Jan 2010 20:54

Held að það sé öllum nauðsynlegt að búa erlendis í einhvern tíma. Heimurinn er svo stór og fjölbreyttur, um að gera að sjá og upplifa eins mikið og hægt er. Þetta er takmarkaður tími sem við lifum, make the most of it.

kv,
Tombob
User avatar
Tombob
Kassabílstjóri
 
Posts: 198
Joined: Fri 01. Jun 2007 14:38

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby íbbi_ » Wed 20. Jan 2010 21:11

Alpina wrote:
íbbi_ wrote:ég er búinn að vera spá í að fara út, noregur eða svíþjóð kæmu þá helst til greina, vill einhverja hluta vegna alls ekki fara til danmörku, líkar danir almennt ekki og hata tungumálið..

m.a við hvað það er auðvelt eða þannig að reka fjölskyldu hérna þegar maður vinnur vel yfir 200 tíma á mánuði, þá sé ég það bara ekki fyrir mér að það muni hreinlega ganga upp að fara klára skóla hérna heima, velferðakerfið þarna tekur líka allavega lágmarks tillit til þess að fók þurfi að lifa, og tekur tillit til barna, og þess að fólk þurfi nú að brauðfæða börnin sín,

svo er annað mál að það er bókstaflega orðið niðurdrepandi að búa hérna, það er ekkert lát á því hversu illa allt virðist ætla fara, ekkert er að breytast, stjórnmálaelítan virðist viljandi vinna gegn þjóðini, og allt bókstaflega að fara á hliðina, ég hef lengi tautað að ég ætli ekki að láta þetta ástand stela föðurarfinum frá mér, þ.e.a.s landinu okkar, sem við erum raunverulega svo heppin að eiga, en hversu lengi getur maður staðið í svona ástandi..

Þú færð ekki 200 klst löglega vinnu á Norðurlöndunum,, ef svo er ,, þá ertu skattpíndur og færð eflaust minna útborgað

þú ert að miskilja mig, það er hérna heima sem ég er að vinna yfir 200 tíma á mánuði,

ég sé reyndar útlönd ekki í hyllingum, og langar reyndar ekkert til að flytja út, en ég hef verið að skoða "leigu" og flr í bæ í svíþjóð þar sem ættingi rekur fyrirtæki og getur komið mér að, og ég get ekki betur séð en að föst útgjöld vs laun séu minni prósenta af útborguðum launum þar heldur en hér,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby bebecar » Wed 20. Jan 2010 21:14

íbbi_ wrote:
Alpina wrote:
íbbi_ wrote:ég er búinn að vera spá í að fara út, noregur eða svíþjóð kæmu þá helst til greina, vill einhverja hluta vegna alls ekki fara til danmörku, líkar danir almennt ekki og hata tungumálið..

m.a við hvað það er auðvelt eða þannig að reka fjölskyldu hérna þegar maður vinnur vel yfir 200 tíma á mánuði, þá sé ég það bara ekki fyrir mér að það muni hreinlega ganga upp að fara klára skóla hérna heima, velferðakerfið þarna tekur líka allavega lágmarks tillit til þess að fók þurfi að lifa, og tekur tillit til barna, og þess að fólk þurfi nú að brauðfæða börnin sín,

svo er annað mál að það er bókstaflega orðið niðurdrepandi að búa hérna, það er ekkert lát á því hversu illa allt virðist ætla fara, ekkert er að breytast, stjórnmálaelítan virðist viljandi vinna gegn þjóðini, og allt bókstaflega að fara á hliðina, ég hef lengi tautað að ég ætli ekki að láta þetta ástand stela föðurarfinum frá mér, þ.e.a.s landinu okkar, sem við erum raunverulega svo heppin að eiga, en hversu lengi getur maður staðið í svona ástandi..

Þú færð ekki 200 klst löglega vinnu á Norðurlöndunum,, ef svo er ,, þá ertu skattpíndur og færð eflaust minna útborgað

þú ert að miskilja mig, það er hérna heima sem ég er að vinna yfir 200 tíma á mánuði,

ég sé reyndar útlönd ekki í hyllingum, og langar reyndar ekkert til að flytja út, en ég hef verið að skoða "leigu" og flr í bæ í svíþjóð þar sem ættingi rekur fyrirtæki og getur komið mér að, og ég get ekki betur séð en að föst útgjöld vs laun séu minni prósenta af útborguðum launum þar heldur en hér,

Búin að taka mið af sköttum og hærri gjöldum?

Það er frægt dæmi að Astrid Lindgren borgaði meira í skatta en hún fékk í laun í SE :D

http://en.wikipedia.org/wiki/Pomperipossa_in_Monismania
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Flytja út - Noregur vs. Danmörk

Postby gunnar » Wed 20. Jan 2010 22:24

Held að þessi þráður verði hin mesta nauðsyn og gott hjálpartæki þegar og ef maður flytur út í nám. Krafturinn býr oft yfir gífurlega nytsamlegri þekkingu á öðrum svæðum en BMW :thup: :thup:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests