Var að fá þetta e-mail frá Nova.. langaði að deila með ykkur
Kæri viðskiptavinur,
Leiðrétting. Síminn býður ekki ódýrustu farsímaþjónustu á Íslandi skv. Póst- og fjarskiptastofnun.
Í fjölmiðlum undanfarið hefur verið til umfjöllunar verðsamanburður á farsímaþjónustu á Íslandi í tenglsum við undirbúning Póst- og fjarskiptastofnunar á reiknivél fyrir símaþjónustu.
Bæði fréttir og auglýsingar um að Síminn bjóði ódýrustu GSM áskriftina er hrein blekking. Annars vegar er um að ræða ályktanir sem eru dregnar af gögnum sem enn eru á vinnslustigi en ekki er síður alvarlegt að Síminn miðaði við þjónustuleiðir sem neytendum stóð ekki til boða.
Stöð 2 fjallaði um þennan verðsamanburð í fréttum miðvikudaginn 25. nóvember og aftur í fréttum fimmtudaginn 26. nóvember. Í fréttum Stöðvar 2 fimmtudaginn 26. nóvember kemur eftirfarandi fram: Þau þrjú farsímatilboð hjá Símanum sem sögð voru lægst voru ekki í boði fyrir viðskiptavini þegar fréttastofa spurðist fyrir um þau en tilboðin voru gerð aðgengileg eftir að fréttastofa spurðist fyrir um málið. Í ljósi þess að tekið var mið af tilboðsleiðum sem ekki eru í boði fyrir viðskiptavini er ljóst að reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar er ekki tilbúin og því ekki hægt að treysta upplýsingum sem þaðan koma.
Þrátt fyrir þetta auglýsir Síminn að fullum krafti í útvarpi og dagblöðum ódýrustu farsímaþjónustu á Íslandi vitandi að verðsamanburðinn er rangur. Síminn var samkvæmt þessu ódýrastur í farsímaþjónustu sem ekki var til.
Það hefur einnig komið fram í fjölmiðlum undanfarið að Síminn hefur aldrei misst fleiri viðskiptavini frá sér frá því að Nova opnaði. Síminn er í fyrsta skipti kominn undir 50% markaðshlutdeild. Viðskiptavinum Nova hefur á sama tíma fjölgað hratt og eru viðskiptavinir fyrirtækisins í dag hátt í 60.000 talsins. Viðskiptavinum Nova hefði ekki fjölgað svona hratt á stuttum tíma ef ekki væri fyrir hagstæðara verð á farsímaþjónustu.
0 kr. Nova í Nova er ekki tímabundið tilboð heldur grunnurinn að lágri verðlagningu fyrirtækisins. Við ætlum okkur EKKI að hætta með 0 kr. Nova í Nova, það hefur aldrei staðið til þrátt fyrir orðróm þess efnis. Hjá Nova þarf ekki heldur að borga fyrir 0 kr. Nova í Nova - en hjá samkeppnisaðilum er algengt að 0 kr. símtöl fáist eingöngu gegn lágmarks-viðskiptum á mánuði. Hjá Símanum þarf t.d. að borga 990 kr. eða 1.990 kr. á mánuði til að fá 0 kr. símtöl en hjá Nova kostar 0 kr. Nova í Nova - 0 kr. í frelsi. Mánaðargjald í áskrift hjá Nova er 490 kr. og þá fylgir líka netið í símann með (250 MB á mánuði).
Í ljósi fallandi markaðshlutdeildar, notfærði Síminn sér að fara út með rangar upplýsingar í nafni Póst- og fjarskiptastofnunar.
Er það von Nova að endanleg útgáfa af reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar verði betur unnin og varpi ljósi á hið rétta í þessu máli.
Liv Bergþórsdóttir
Framkvæmdastjóri Nova.
27. nóvember 2009
Yfirlýsing frá Póst og fjarskiptastofnun
Vegna frétta sem birtar hafa verið á Stöð 2 og Vísi.is og auglýsinga Símans undanfarna daga þar sem vitnað er til úttektar og reiknivélar Póst- og fjarskiptastofnunar vill stofnunin taka fram:
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki birt úttekt um verðsamanburð milli fjarskiptafyrirtækjanna nema þann mánaðarlega verðsamanburð sem birtur er á vef stofnunarinnar sem PDF skjöl.
Fréttir og auglýsingar um slíka úttekt eru rangar og ekki á ábyrgð PFS. (sjá,
http://www.postogfjar.is)