Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby Grétar G. » Mon 30. Nov 2009 16:19

Var að fá þetta e-mail frá Nova.. langaði að deila með ykkur :D


Kæri viðskiptavinur,

Leiðrétting. Síminn býður ekki ódýrustu farsímaþjónustu á Íslandi skv. Póst- og fjarskiptastofnun.

Í fjölmiðlum undanfarið hefur verið til umfjöllunar verðsamanburður á farsímaþjónustu á Íslandi í tenglsum við undirbúning Póst- og fjarskiptastofnunar á reiknivél fyrir símaþjónustu.

Bæði fréttir og auglýsingar um að Síminn bjóði ódýrustu GSM áskriftina er hrein blekking. Annars vegar er um að ræða ályktanir sem eru dregnar af gögnum sem enn eru á vinnslustigi en ekki er síður alvarlegt að Síminn miðaði við þjónustuleiðir sem neytendum stóð ekki til boða.

Stöð 2 fjallaði um þennan verðsamanburð í fréttum miðvikudaginn 25. nóvember og aftur í fréttum fimmtudaginn 26. nóvember. Í fréttum Stöðvar 2 fimmtudaginn 26. nóvember kemur eftirfarandi fram: Þau þrjú farsímatilboð hjá Símanum sem sögð voru lægst voru ekki í boði fyrir viðskiptavini þegar fréttastofa spurðist fyrir um þau en tilboðin voru gerð aðgengileg eftir að fréttastofa spurðist fyrir um málið. Í ljósi þess að tekið var mið af tilboðsleiðum sem ekki eru í boði fyrir viðskiptavini er ljóst að reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar er ekki tilbúin og því ekki hægt að treysta upplýsingum sem þaðan koma.

Þrátt fyrir þetta auglýsir Síminn að fullum krafti í útvarpi og dagblöðum ódýrustu farsímaþjónustu á Íslandi vitandi að verðsamanburðinn er rangur. Síminn var samkvæmt þessu ódýrastur í farsímaþjónustu sem ekki var til.

Það hefur einnig komið fram í fjölmiðlum undanfarið að Síminn hefur aldrei misst fleiri viðskiptavini frá sér frá því að Nova opnaði. Síminn er í fyrsta skipti kominn undir 50% markaðshlutdeild. Viðskiptavinum Nova hefur á sama tíma fjölgað hratt og eru viðskiptavinir fyrirtækisins í dag hátt í 60.000 talsins. Viðskiptavinum Nova hefði ekki fjölgað svona hratt á stuttum tíma ef ekki væri fyrir hagstæðara verð á farsímaþjónustu.

0 kr. Nova í Nova er ekki tímabundið tilboð heldur grunnurinn að lágri verðlagningu fyrirtækisins. Við ætlum okkur EKKI að hætta með 0 kr. Nova í Nova, það hefur aldrei staðið til þrátt fyrir orðróm þess efnis. Hjá Nova þarf ekki heldur að borga fyrir 0 kr. Nova í Nova - en hjá samkeppnisaðilum er algengt að 0 kr. símtöl fáist eingöngu gegn lágmarks-viðskiptum á mánuði. Hjá Símanum þarf t.d. að borga 990 kr. eða 1.990 kr. á mánuði til að fá 0 kr. símtöl en hjá Nova kostar 0 kr. Nova í Nova - 0 kr. í frelsi. Mánaðargjald í áskrift hjá Nova er 490 kr. og þá fylgir líka netið í símann með (250 MB á mánuði).

Í ljósi fallandi markaðshlutdeildar, notfærði Síminn sér að fara út með rangar upplýsingar í nafni Póst- og fjarskiptastofnunar.

Er það von Nova að endanleg útgáfa af reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar verði betur unnin og varpi ljósi á hið rétta í þessu máli.

Liv Bergþórsdóttir
Framkvæmdastjóri Nova.

27. nóvember 2009
Yfirlýsing frá Póst og fjarskiptastofnun

Vegna frétta sem birtar hafa verið á Stöð 2 og Vísi.is og auglýsinga Símans undanfarna daga þar sem vitnað er til úttektar og reiknivélar Póst- og fjarskiptastofnunar vill stofnunin taka fram:
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki birt úttekt um verðsamanburð milli fjarskiptafyrirtækjanna nema þann mánaðarlega verðsamanburð sem birtur er á vef stofnunarinnar sem PDF skjöl.
Fréttir og auglýsingar um slíka úttekt eru rangar og ekki á ábyrgð PFS. (sjá, http://www.postogfjar.is)
E30 M20B25 TÚRBÓ
E36 ///M3 Daytona Violet
E65 735i LOADED
Range Rover Sport Supercharged
Yamaha YZF R6 '07
E39 ///M5 & Evo V & E60 545i & 300C SRT-8 (Seldir)
User avatar
Grétar G.
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2287
Joined: Tue 13. May 2008 01:10
Location: Ghettó BRH

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby SteiniDJ » Mon 30. Nov 2009 16:58

Ég er hjá símanum og er bara mjög sáttur. Ekkert rugl eða vesen, þannig þeir fá mín viðskipti áfram.

Þetta snýst ekki alltaf um einhverja smápeninga.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby Birgir Sig » Mon 30. Nov 2009 17:17

ég nennti nú ekki að lesa þetta en heitir konan liv? eða er þetta stafsetningarvilla?

Liv Bergþórsdóttir
Framkvæmdastjóri Nova.
Birgir Sigurðsson: 8487958

BMW e21 '82
BMW e30 '88
BMW e30 cabrio '89
BMW e53 4.4 '01
BMW e46 '02 M-tech
User avatar
Birgir Sig
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2018
Joined: Wed 16. May 2007 20:55

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby tinni77 » Mon 30. Nov 2009 18:11

birgir_sig wrote:ég nennti nú ekki að lesa þetta en heitir konan liv? eða er þetta stafsetningarvilla?

Liv Bergþórsdóttir
Framkvæmdastjóri Nova.


jebb
BMW E30 325i Coupe
Image
User avatar
tinni77
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2822
Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Location: 112 RVK, E30 city

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby Aron Fridrik » Mon 30. Nov 2009 19:00

Hringdu í þjónustuverið hjá nova og fáðu þetta staðfest..

Æjj nei það svarar enginn þar..


Ég er alveg til í að borga 990 fyrir betra samband og einhverja þjónustu
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby Aron Andrew » Mon 30. Nov 2009 19:09

Aron Fridrik wrote:Hringdu í þjónustuverið hjá nova og fáðu þetta staðfest..

Æjj nei það svarar enginn þar..


Ég er alveg til í að borga 990 fyrir betra samband og einhverja þjónustu


Ekki vera með þetta bull!

Ég hef hringt nokkrum sinnum í þjónustuverið hjá Nova og alltaf er svarað fljótt.

Ég er búinn að þvælast mikið um núna í haust og hef tekið eftir því á tveimur stöðum að ég var með símasamband en ekki aðrir sem eru hjá Vodafone og Símanum. Þetta var í bröttubrekku og austur í möðrudalsöræfum.

Og svo talandi um þjónustu, síminn hjá kærustunni bilaði í gær, við fórum í Nova í dag, fengum lánssíma og hinn á að koma úr viðgerð eftir viku.

Ég er búinn að kaupa inneignir fyrir undir 10k kr á þessu ári og borga ekki krónu í mánaðargjald, þetta er alltaf ódýrara en önnur fyrirtæki!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby SteiniDJ » Mon 30. Nov 2009 19:21

Ég hef ekki prófað Nova, en mikið fara hljóðin sem maður þarf að hlusta á ef maður hringir í þá í taugarnar á mér. Finnst líka alveg absúrd hvað það er dýrt að hringja í Nova númer.

Hef prófað Vodafone, var ekki sáttur og fór aftur í Símann. Mín reynsla hefur alltaf verið no nonsense og það hefur gengið eftir.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby Mazi! » Mon 30. Nov 2009 19:25

ég hef verið hjá Símanum, vodafone og svo nova núna í ca ár


og Nova er bara það besta sem ég hef nokkurntímann vitað, er ekki búinn að kaupa mér inneign í ár :thup:

semsagt ég tala við alla þá sem ég þarf að tala við í síma FRÍTT.


ef einvher er ekki hjá nova sem ég þarf að ná í sem gerist verulega sjaldan þá sendi ég bara SMS
(hringdu og símanúmer. og sendi í 1900) þá fær sá aðilli skilaboð um að hringja í mig :mrgreen:

svo er líka hægt að nota heimasímann bara hehe..


ég er allaveganna alveg að fýla það að borga ekki krónu í síma inneign eða áskrift, svo er þjónustan hjá nova bara mjög góð

hinsvegar er þjónustuverið hjá símanum alveg ein skita, þar þarf maður einmitt að bíða og bíða og bíða og einhver leiðindi
Last edited by Mazi! on Mon 30. Nov 2009 19:26, edited 1 time in total.
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby ///M » Mon 30. Nov 2009 19:26

Aron Andrew wrote:Ég er búinn að þvælast mikið um núna í haust og hef tekið eftir því á tveimur stöðum að ég var með símasamband en ekki aðrir sem eru hjá Vodafone og Símanum. Þetta var í bröttubrekku og austur í möðrudalsöræfum.



Vodafone og Nova hafa samið um samnýtingu farsímakerfa hvors annars og hafa stjórnir félaganna þegar samþykkt samning þess efnis. Samningurinn felur í sér að Vodafone fær aðgang að nýju dreifikerfi Nova fyrir þriðju kynslóð farsíma (3G) og Nova fær aðgang að GSM farsímakerfi Vodafone.
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby Kristjan » Mon 30. Nov 2009 19:44

Liv er sænskt nafn. Borið fram Lív. :thup:
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby bimmer » Mon 30. Nov 2009 19:53

SteiniDJ wrote:Finnst líka alveg absúrd hvað það er dýrt að hringja í Nova númer.


Er það semsagt þannig sem allt þetta fría hjá Nova er fjármagnað????
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby gulli » Mon 30. Nov 2009 20:24

Að hafa lag í staðinn fyrir "BÍÍÍB-BÍÍÍB" er bara mjög skemmtilegt finnst mér..... og eða eitthverja fyndna rulu :D

það er dýrt fyrir fólk sem ekki er í viðskiptum hja Nova að hringja i Nova,,, en er það þá ekki bara fyrirtækinu sem sá aðili er í sem er um að kenna? eða er það kannski rangt hjá mér :? allavega er þetta LANGBESTA gsm þjónusta sem ég hef verið hjá, og ekki skemmir fyrir að það eru meiri en helmingurinn af fólkinu sem maður hefur hvað mest samband við líka hjá Nova :thup:
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby arnibjorn » Mon 30. Nov 2009 20:27

Nova er bara algjörlega málið.

Símreikningurinn minn var alltaf í kringum 10k á mánuði hjá Vodafone.

Fór yfir í Nova og núna eru nánast allir vinir mínir í Nova og ég er að borga eitthvað klink í símreikning! :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby Aron Andrew » Mon 30. Nov 2009 20:33

///M wrote:
Aron Andrew wrote:Ég er búinn að þvælast mikið um núna í haust og hef tekið eftir því á tveimur stöðum að ég var með símasamband en ekki aðrir sem eru hjá Vodafone og Símanum. Þetta var í bröttubrekku og austur í möðrudalsöræfum.



Vodafone og Nova hafa samið um samnýtingu farsímakerfa hvors annars og hafa stjórnir félaganna þegar samþykkt samning þess efnis. Samningurinn felur í sér að Vodafone fær aðgang að nýju dreifikerfi Nova fyrir þriðju kynslóð farsíma (3G) og Nova fær aðgang að GSM farsímakerfi Vodafone.


Þetta var samt sem áður málið.

Vegna þess að ég náði sambandi þá ákváðum við að reyna að komast yfir á, við festumst og ég gat hringt í gaur til að draga okkur upp :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ?

Postby SteiniDJ » Mon 30. Nov 2009 20:37

bimmer wrote:
SteiniDJ wrote:Finnst líka alveg absúrd hvað það er dýrt að hringja í Nova númer.


Er það semsagt þannig sem allt þetta fría hjá Nova er fjármagnað????


Þeir gætu vel gert það, enda kostar 28 krónur að hringja í Nova úr Símanum, en 23.5 krónur í öll önnur kerfi (fyrir utan í Símann, þá kostar það 11.9 krónur ef þú ert ekki í Ring).
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 44 guests