Bensínsparnaður með cyclone.

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby SteiniDJ » Mon 12. Oct 2009 09:04

gunnar wrote:Ef ég sem sagt set 15x svona í 328 hjá mér verður þá bara tornado í manifoldinu hjá mér og allt í einu bara svaka power ? :lol: :lol: :lol:


Nei Gunnar, ofuröflin sem myndast við það myndu kljúfa Ísland í sundur.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby Logi » Mon 12. Oct 2009 09:31

Ég get nánast lofað því að þetta virkar ekki í bensín BMW.

Ég hef heyrt sögur af því að þetta virki vel í ódýrari vélum (sem eru kannski 50-60hö/l) smbr. eldri Subaru. En ég hef ekki trú á því að þetta virki vel í vélum sem eru betur hannaðar með t.d. loftflæði í huga.
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby gunnar » Mon 12. Oct 2009 11:00

Ég gæti alveg trúað því að þetta gæti gert örlítinn mun á gömlum dísel mótorum og slíku. Toyota Hilux, Patrol, Volvo (B20) etc.

Menn sem hafa verið að ferðast með mér hafa verið að finna einhvern mun með þessu á gömlum dísel mótorum. En eins og sagt hefur verið, maður veit ekki hvort menn keyri bara léttar til að fá grennri eyðslu.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby Aron Andrew » Mon 12. Oct 2009 12:10

Ég á svona til sölu!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby Jón Ragnar » Mon 12. Oct 2009 12:31

Aron Andrew wrote:Ég á svona til sölu!



Bíllinn hans Andew fór að eyða meiru eftir að hann tók þetta úr!


True story

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby SævarSig » Sat 17. Oct 2009 12:18

Ég þekki aðeins til kauða sem er með þetta umboð, og er hann að selja þetta mjög mjög mikið.
Og segir hann að fólk sé mjög ánægt með þetta og þetta sé að virka. En ef maður hugsar aðeins út í þetta,
þá er hugmyndin á bakvið þetta ekki svo galin og ætti tæknilega séð að virka.
En fyrir mitt leiti er þetta svolítið vitlaust því þetta á að fá loftið til að snúast meira og mynda "hvirfil" og þar af leiðandi koma meira lofti inn á cylender. En þar sem þetta er alltaf sett á undan soggrein, að þá huga ég að þessi "hvirfill" sem eigi að myndast sé nánast bara búin þegar loftið loksins kemst inn á vélina.

En eins og ég segi þá er hugmyndin á bakvið þetta mjög sniðug og getur vel verið að þetta virki.
BMW E30 325i
SævarSig
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 389
Joined: Tue 14. Apr 2009 18:41

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby bimmer » Sat 17. Oct 2009 13:42

Get ekki séð að þetta komi meira lofti inn því að græjan er auka viðnám
og dregur því úr loftflæði ef eitthvað er.

Það eina sem þetta gæti gert er að blanda betur eldsneyti við loftið en fjandinn,
ef þetta virkar þá væri þetta í öllum bílum frá framleiðanda. Þeir eru með heilu
deildirnar í því að hanna mótora með sem besta nýtni og væru komnir með þetta
ef þetta er málið.

Get samt alveg trúað að þetta virki til að minnka eyðslu, en þá er það bara vegna
þess sem aðrir hafa bent á - sá sem kaupir þetta verður léttari á gjöfinni.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby gstuning » Sat 17. Oct 2009 13:52

Eina sem þetta gæti remotely gert er að bæta mixun á bensíni og lofti áður enn það fer ofan í vélina.
Sem vélin gerir anyways ofan í stimpilrýminu(squish, swirl og tumble).

Þetta er engann veginn þess virði að eyða tíma í að kaupa og prufa.
Það sem vélahönnuðir í dag eru að vinna í hafa ekkert með svona að gera.

Nokkur atriði sem maður vill EKKI í vélinni.

Bensín snerti cylender veggina, hedd domið, stimpilinn, ventalanna.
Það sem vélar í dag snúast um er að bein innspýtting þannig að allt bensínið er vel mixað utan um kertið og helst hvergi annarstaðar í rýminu því að því lengra sem bensínið er frá kertinu því verri verður nýtnin og bruninn

Innspýttingar í dag á GT keppnis bílum eru að runna 120BÖR bensín þrýsting.

Þetta hefur líklega verið hannað í þeim tilgangi að vera sett fyrir framann blöndunga.

Líkurnar á því að þetta virki á díesel bíll er enn ólíklegra því að díeselið fer beint ofan í stimpilrýmið.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

Postby sosupabbi » Sat 17. Oct 2009 16:13

Meiri kraftur svo mykill að þú finnur vel fyrir
auknu togi frá vél !


Flott síða.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests