Jón Bjarni wrote:
Það hefur nú verið svolíð oft sett út á dómgæslu í driftinu í sumar.
Ég hef verið dómari og lent í því að keppni sem ég dæmdi raðaðist niður á fáranlegan hátt og mér fannst úrslitin vera asnaleg.
Það er held ég allveg auðséð að ef menn ætla að halda áfram með íslandsmót í þessari grein þá þarf að breyta þessu stigakerfi og setja eitthverjar skýrari reglur um dómgæslu.
Ég get ekki skilið afhverju þeir sem stjórna driftdeildinni tóku sig ekki til og skoðuð hvernig þessum málum er háttað út í heimi áður en þeir hófu íslandsmót í greininni hérna heima.
Það hlýtur að vera hægt að finna reglur og annað sem er notað úti og nota það hérna heima.
En það er samt eitt sem spilar mikið inni í þetta og það er dómarinn.
Stigagjöf í drifti er huglæg.
það sem einum finnst flott getur næsti maður sett út á.
Þess vegna held ég að það sé mikilvægt að vera með sama fólkið í dómarastörfunum út sumarið.
Það gæti hjálpað eitthvað við að ná þessum huglæga þátti niður.
Þetta eru hlutir sem mér finnst að verið að laga fyrir næsta ár hjá ykkur og setja regluverkið á netið.
Það er betra fyrir alla að geta skoðað hvað er dæmt eftir og hvaða reglum er farið eftir við dómarastörf.
En svona í lokin.
þá óska ég sigurvegurum dagsins til hamingu.
Einnig á stjórn driftdeildar AÍH hrós skilið fyrir að nenna að halda þetta íslandsmót þrátt fyrir allt þetta nöldur sem hefur verið um það á netinu.
Kv
Jón Bjarni
Hvernig færðu þetta eiginlega út????
Það er dæmt eftir ákveðnum hlutum og það er alveg á kristaltæru hvaða hlutir þessu eru. Það er farið yfir þessa hluti bæði með dómurum og keppendum.
Það er verið að dæma eftir sömu hlutum hjá okkur og "útí heimi" eins og þú segir. Hjá okkur er bara einn bíll í brautinni og dómarar þurfa bara að gefa stig og meta það hvernig þeim fannst hvert rönn.
Ofast þegar er verið að keppa í drifti eru þetta tandem drift þar sem að tveir eru að keyra í einu og annar vinnur, hinn tapar. Ekki huglæg stigagjöf dómara.
Þetta er fyrsta svona mótröðin sem hefur verið haldin og þetta er búið að heppnast ótrúlega vel miðað við fyrsta skipti. En auðvitað eru alltaf einhverjir sem eru ekki sammála og vilja kvarta og það er bara allt í góðu. Bara svo lengi sem að þetta er uppbyggileg gagnrýni sem hægt er að vinna út frá. Ekki bara "þetta er ömurlegt, fáránlegt, helvítis kjaftæði".
Við erum strax byrjuð að hugsa úti næsta sumar og koma með hugmyndir hvernig er hægt að gera þetta betra/öðruvísi.
Allar uppástungur eru líka vel þegnar
