Eins og fleiri eru búnir að segja hérna þá snýst þetta augljóslega um Passive mode.
FTP Clientinn sem þú ert að nota virðist nota Passive by default (enda oftast þægilegra), en ftp þjónustan á xboxinu hjá þér styður það ekki.
Ef þú ert hingað til að nota bara IE eða Firefox með
ftp://xbox slóð einhverri, þá myndi ég ráðleggja þér að sækja þér einhvern FTP client - til dæmis SmartFTP eða CuteFTP eða álíka. Í þeim geturu stillt hvort þeir nota Passive mode eða ekki.
Hitt ráðið sem þú fékkst að nota XBMC er auðvitað líka snilld, XBMC er langsamlega besta stýrikerfið/forritið til að keyra á xbox - til að hlusta á tónlist, skoða myndir, launcha leikjum, horfa á vídeó og allt þetta. XBMC styður að horfa á bíómyndir yfir windows file sharing svo þú þarft ekki að ftpa neitt inn á boxið.
Ég er til dæmis með litla tölvu heima með 500GB disk sem keyrir torrent client og deilir svo skránum, xboxið spilar beint þaðan.