///MR HUNG wrote:
Vargur wrote:
Vissulega bannað en það held ég að sé aðallega vegna ónæðis sem fólk getur orðið fyrir þegar þessir bílar eru gangsettir td snemma morguns.
Ég skil reyndar ekki þetta hatur á vörubílum, af hverju á fólksbíll að vera eitthvað rétthærri en vörubíll og af hverju er ökumaðurinn drulluhali ?
Menn meiga ekki gleyma því hvað þessir bílar gera fyrir okkur. það væri td gaman að sjá mannskapinn keyra efnið upp úr og í sökkla á nýbyggingum með leigukerru frá Shell.
Hvað ertu að rugla?
Maður vill ekki hafa þessa bíla í íbúðagötum í fyrstalagi vegna þess að ég kæri mig ekki um að börnin mín séu í hættu á að vera flött út af svona hlúnk.
0g auðvitað fylgja þessu læti líka og þessir menn geta alveg labbað nokkra metra fyrst þeir þurfa að koma á þessu heim.
Hvað meinar þú með rugla, hvaða dónaskapur er þetta ?
Eins og ég sagði þá er það vissulega bannað að leggja vörubílum í íbúðargötum en ég skil ekki þetta hatur á vörubílum hjá sumum eins og að kalla ökumanninn drulluhala (sem reyndar er búið að útskýra núna) og svo það að sumir telji fólksbíla eitthvað merkilegri í umferðinni en vöru og flutningabíla.
Ég vil taka fram að ég er ekki vörubílstjóri og reyndar ekki einu sinni með meirapróf.
Sem dæmi þá var ég stopp á ljósum um daginn og á undan mér var sportlegur fólksbíll, fyrir framan hann var fulllestaður vörubíll sem sennilega var að keyra upp úr grunni. Allir ætluðum við að beygja til vinstri á ljósunum. Þegar kemur grænt þá fer vörubíllinn af stað og auðvitað silast áfram í fyrstu, bíllinn á eftir fer þá að flauta ógurlega og steyta hnefan, innan við 10 sekúndum síðar eru allir bílarnir komnir yfir gatnamótin og vörubíllinn fer beint á hægri akrein og flautarinn þeysist fram úr með tilheyrandi flauti og dekkjaískri.