ég hef lengi verið haldinn gífurlegri hrifningu af húsum sem þessum,
finnst nútíma arktitektur mörgum skrefum á eftir, bókstaflega lekur af þessum húsum fágunin og stíllinn,
hér eru tvö hús sem ég rakst á, og finnst hálf sorglegt hvernig fyrir þeim fór.
Whitemarsh hall.
þetta hús var eign Edward T. Stotesbury, og var brúðargjöf til seinni konu hans,(edward var m.a meðeigandi í j.p morgan bankanum, sem rann síðar saman við chase manhattan þannig að þið getið ýmindað ykkur hversu ríkur maðurinn var) var í byggingu frá 1916-1921. og hefur oft ásamt hinu húsinu sem ég ærla pósta nefnt versalir bandaríkjana,
húsið var á 6 hæðum, flestum neðjanjarðar. 147 herbergi, 45 baðherbergi, aðalbyggingin sjálf var 9300 fermetrar, en einnig fylgdu húsinu gestahús og flr byggingar, ásamt einhverjum þeim vandaðasta skrúðgarði og innkeyrslu sem hefur sést utan evrópu,
flestar innréttingarnar og hönnunin á lóðini kom frá frakklandi, húsið var stútfullt af sögulegum listaverkum og list-munum, einnig var garður hússins allur útí styttum og flr listaverkum, og er þetta talið eitt vandaðasta hús sem var nokkurntíman byggt í bandaríkjunum, og handbragðið og útlitið á öllu bókstaflega ótrúlegt.
fyrstu 9 árin var húsið miðdepill heldri manna partýa og "social live" en eftir að kreppan skall á 1929 fór að draga úr partýstandinu, 1933 var edward svo gagnrýntur harkalega fytrir að lifa í vellistingum meðan aðrir þjáðust. hann lést árið 1938, kona hans eva lýsti því yfir að hún væri blönk, gaf mest af listmununum til listasafns, 3km löng girðingin í innkeyrlsu hússins var brædd niður í 18þús byssur eða svo, og eignin sett á sölu,
rekstrakostnaður á húsinu var 1milljón dollara á ári, á gengi þess tíma,
á stríðsárunum var húsið notað sem vörugeymsla af hernum, húsið seldist svo árið 1943 til einhver efnafyrirtækis sem hafði þar aðsetur til 1963, þegar efnafyrirtækið fór úr húsinu stóð það svo autt til 1980, og hafði þá orðið fyrir alskonar skemmdaverkum og flr leiðindum og var á endanum rifið árið 1980.
þvílík synd.. húsið stóð meira og minna autt frá 1938, þetta hús var bæði stærra og vandaðara en hvíta húsið.





lynnewood hall
þesso "höll" er í raunini mjög svipuð þeirri að ofan, hönnuð af sama arkítekt, og er algjörlega í sama stíl. og af svipaðari stærðargráðu.
húsið var byggt fyrir Peter A. B. Widener árið 1897, en hann var m.a einn af eigendum white star line, sem m.a átti titanic, hann lést sjálfur í húsinu árið 1915, sonur hans og barnabarn sem einnig bjóu í húsinu létust þegar titanic sökk árið 1912,
húsið sjálft var 100 herbegja. og innihélt yfir 2000 fræg listaverk, og garð í stíl við efra húsið.
eftir andlát widener stóð húsið m.a tómt. herinn notaði lóðina til að þjálfa hunda, joseph sonur widener gaf mikið af listaverkunum á safn, húsið seldist svo til einhevrn sértrúarsöfnuðar árið 1952, sem hirti nánast allt sem hægt var að selja úr húsinu, og seldi flesta munina (styttur gosbrunni og flr) af lóðini,
húsið er núna í eigu the first korean curch of NY, og er í algjörri niðurníslu, en ennþá til,. og skylst mér að það sé nú planið af yfirvöldum að reyna varðveita húsið.


í dag

gífurlega O/T þráður klárlega, en vonandi að einhverjir hafi gaman af þessu. manni finnst hálf skrítið að það geti farið svona fyrir svona höllum, sérstaklega þar sem eigandi whitemarsh hall var nú væntanlega einn af þeim sem komu kreppuni á, m.a í hvaða félagskap maðurinn var (rothcshild,rockefeller og flr)