bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 17:34

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 31 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Wed 27. May 2009 02:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég hef lengi verið haldinn gífurlegri hrifningu af húsum sem þessum,
finnst nútíma arktitektur mörgum skrefum á eftir, bókstaflega lekur af þessum húsum fágunin og stíllinn,

hér eru tvö hús sem ég rakst á, og finnst hálf sorglegt hvernig fyrir þeim fór.

Whitemarsh hall.

þetta hús var eign Edward T. Stotesbury, og var brúðargjöf til seinni konu hans,(edward var m.a meðeigandi í j.p morgan bankanum, sem rann síðar saman við chase manhattan þannig að þið getið ýmindað ykkur hversu ríkur maðurinn var) var í byggingu frá 1916-1921. og hefur oft ásamt hinu húsinu sem ég ærla pósta nefnt versalir bandaríkjana,
húsið var á 6 hæðum, flestum neðjanjarðar. 147 herbergi, 45 baðherbergi, aðalbyggingin sjálf var 9300 fermetrar, en einnig fylgdu húsinu gestahús og flr byggingar, ásamt einhverjum þeim vandaðasta skrúðgarði og innkeyrslu sem hefur sést utan evrópu,
flestar innréttingarnar og hönnunin á lóðini kom frá frakklandi, húsið var stútfullt af sögulegum listaverkum og list-munum, einnig var garður hússins allur útí styttum og flr listaverkum, og er þetta talið eitt vandaðasta hús sem var nokkurntíman byggt í bandaríkjunum, og handbragðið og útlitið á öllu bókstaflega ótrúlegt.

fyrstu 9 árin var húsið miðdepill heldri manna partýa og "social live" en eftir að kreppan skall á 1929 fór að draga úr partýstandinu, 1933 var edward svo gagnrýntur harkalega fytrir að lifa í vellistingum meðan aðrir þjáðust. hann lést árið 1938, kona hans eva lýsti því yfir að hún væri blönk, gaf mest af listmununum til listasafns, 3km löng girðingin í innkeyrlsu hússins var brædd niður í 18þús byssur eða svo, og eignin sett á sölu,
rekstrakostnaður á húsinu var 1milljón dollara á ári, á gengi þess tíma,
á stríðsárunum var húsið notað sem vörugeymsla af hernum, húsið seldist svo árið 1943 til einhver efnafyrirtækis sem hafði þar aðsetur til 1963, þegar efnafyrirtækið fór úr húsinu stóð það svo autt til 1980, og hafði þá orðið fyrir alskonar skemmdaverkum og flr leiðindum og var á endanum rifið árið 1980.

þvílík synd.. húsið stóð meira og minna autt frá 1938, þetta hús var bæði stærra og vandaðara en hvíta húsið.

Image
Image
Image
Image
Image

lynnewood hall
þesso "höll" er í raunini mjög svipuð þeirri að ofan, hönnuð af sama arkítekt, og er algjörlega í sama stíl. og af svipaðari stærðargráðu.
húsið var byggt fyrir Peter A. B. Widener árið 1897, en hann var m.a einn af eigendum white star line, sem m.a átti titanic, hann lést sjálfur í húsinu árið 1915, sonur hans og barnabarn sem einnig bjóu í húsinu létust þegar titanic sökk árið 1912,
húsið sjálft var 100 herbegja. og innihélt yfir 2000 fræg listaverk, og garð í stíl við efra húsið.
eftir andlát widener stóð húsið m.a tómt. herinn notaði lóðina til að þjálfa hunda, joseph sonur widener gaf mikið af listaverkunum á safn, húsið seldist svo til einhevrn sértrúarsöfnuðar árið 1952, sem hirti nánast allt sem hægt var að selja úr húsinu, og seldi flesta munina (styttur gosbrunni og flr) af lóðini,
húsið er núna í eigu the first korean curch of NY, og er í algjörri niðurníslu, en ennþá til,. og skylst mér að það sé nú planið af yfirvöldum að reyna varðveita húsið.

Image
Image
í dag
Image



gífurlega O/T þráður klárlega, en vonandi að einhverjir hafi gaman af þessu. manni finnst hálf skrítið að það geti farið svona fyrir svona höllum, sérstaklega þar sem eigandi whitemarsh hall var nú væntanlega einn af þeim sem komu kreppuni á, m.a í hvaða félagskap maðurinn var (rothcshild,rockefeller og flr)

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 03:05 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Posts: 952
Location: í hjólförum
góður discovery fílíngur í þessu, mætti allveg gera þátt um fræg svona hús sem hafa verið yfirgefin, hugsið ykkur peningana sem fóru til einskis


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 03:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
já það er víst verið að gera þætti um þessi tvö hús. og ég væri til í að sjá þá.

já manni finnst hálf ótrúlegt hvað það hefur mikið fé farið til spillis. þetta eru eflaust hús uppá einhverja miljarða í byggingu,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 07:03 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það er nóg til af herragörðum í Evrópu í þessu standi - þetta er endalaus hringrás enda eru svona hús gríðarleg peningahýt. Oft eru svona byggingar seldar á klink því það kostar svo mikið að reka þær. Mér er t.d. minnistæður kastali á Sardiníu sem ég sá þar á ferðalagi sem var til sölu á 1 evru :lol: - en auðvitað með því skilyrði að hann yrði endurbyggður á 10 árum ef ég man rétt.

Það sem mér finnst einna athyglisverðast í þessu er að í dag virðast jafnvel stórfyrirtæki ekki hafa efni á að reka svona byggingar. Þetta sýnir kannski hvað ríka fólkið á þessum tíma (þetta er undir lok síðustu alþjóðavæðingarinnar (Globalisation) sem var komin mun lengra með frelsið en sú sem við upplifum í dag) var ótrúlega ríkt á síns tíma mælikvarða.

Þú ættir að tékka á húsunum hjá Rothschild t.d. ég hef komið í tvö þeirra, og nokkrar fleiri svona hallir, og þrátt fyrir að annað hafi bara verið sumarbústaður þá var það samt á við góða höll!

Hér er sumarhúsið: Image

Á bakhliðinni er einn stærsti gluggi sem ég hef séð með útsýni yfir Frankfurt (eða hvort það var Dresden?) að mig minnir, eða allavega sveitirnar þar í kring...

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Last edited by bebecar on Wed 27. May 2009 07:14, edited 2 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 07:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Það er gríðarlega dýrt að vera ríkur.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 07:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bebecar wrote:
Það er nóg til af herragörðum í Evrópu í þessu standi - þetta er endalaus hringrás enda eru svona hús gríðarleg peningahýt. Oft eru svona byggingar seldar á klink því það kostar svo mikið að reka þær. Mér er t.d. minnistæður kastali á Sardiníu sem ég sá þar á ferðalagi sem var til sölu á 1 evru :lol: - en auðvitað með því skilyrði að hann yrði endurbyggður á 10 árum ef ég man rétt.

Það sem mér finnst einna athyglisverðast í þessu er að í dag virðast jafnvel stórfyrirtæki ekki hafa efni á að reka svona byggingar. Þetta sýnir kannski hvað ríka fólkið á þessum tíma (þetta er undir lok síðustu alþjóðavæðingarinnar (Globalisation) sem var komin mun lengra með frelsið en sú sem við upplifum í dag) var ótrúlega ríkt á síns tíma mælikvarða.

Þú ættir að tékka á húsunum hjá Rothschild t.d. ég hef komið í tvö þeirra, og nokkrar fleiri svona hallir, og þrátt fyrir að annað hafi bara verið sumarbústaður þá var það samt á við góða höll!


Þetta er svarið sem ég ætlaði einmitt að pósta.....

Á bretlandseyjum er til mýgrútur af þessu.......

en að kynda þetta osfrv.. er hrein bilun,

illa ,,,,,,, ef þá nokkuð einangrað :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 11:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
já ég hef einmitt oft dundað mér við að skoða eignirnar sem rothschild fjölskyldan byggði, þótt maður finni ekki jafn mikið af þeim á netinu og ég vildi, það eru 41 herragarður víðsvegar um evrópu í þeirra eigu, allt háflgerðar hallir, enda ættu þeir að hafa efni á því. en þaðer talið að þeir eigi 500 þúsund milljarða dollara, eða s.k sömu frétt. um helming allra fjármuna sem eru í gangi.

skemmtileg staðreynd líka að í napoleon stríðunum þá lánuðu rothschildarnir báðum stríðsaðilum alls 100þúsund sterlingspund, sem á þeim tíma var svo ógurleg upphæðað það er í raunini bara rugl. t.d voru menn sem áttu herragarða sem þessa og sumarhús jafnvel taldir þurfa að eiga í kringum 400sterlingspund (já fjögurhundruð)

í bna er eitt hús, nefnt biltmore húsið, byggt eftir höllini sem baron rotchshild átti í uk (held að það hafi verið sonur nathan's rothschild frekarn en hann sjálfur)
húsið er ennþá stæðsta einbýlishús í bandaríkjunum, og hefur verið það síðan það var bygt

Image
Image
Image

húsið er aðeins 16.300 fermetrar, og eru 250 svefnherbergi til að velja úr. húsið er ennþá í eigu sömu fjölskyldu og bygði það, og er ennþá búið í því.þótt það sé reyndar einniog opið gestum.

hérna er svo rothschild húsið sem var fyrirmyndin
Image

finn enga betri mynd., en húsið ersláandi líkt

einnig átti sonurinn sem sendur var til parisar alveg gífurlega höll þar,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 11:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Gaman að skoða svona stuff.

[nöldur]
En smá ábending.... setningar byrja á stórum staf og enda á punkti. Nöfn byrja á stórum staf.
[/nöldur]

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 12:43 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Klassa þráður, ég hef mjög gaman að svona!

Ég hafði samt ekki hugmynd um Rothschild fjölskylduna fyrr en ég las þennan þráð! Er að skoða þetta á wikipedia as we speak (yfirmaðurinn í sumarfríi :lol: ).

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 15:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
arnibjorn wrote:
Klassa þráður, ég hef mjög gaman að svona!

Ég hafði samt ekki hugmynd um Rothschild fjölskylduna fyrr en ég las þennan þráð! Er að skoða þetta á wikipedia as we speak (yfirmaðurinn í sumarfríi :lol: ).



það er ágætt að vita hver stjórnar leiknum :mrgreen:

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 15:47 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
íbbi_ wrote:
arnibjorn wrote:
Klassa þráður, ég hef mjög gaman að svona!

Ég hafði samt ekki hugmynd um Rothschild fjölskylduna fyrr en ég las þennan þráð! Er að skoða þetta á wikipedia as we speak (yfirmaðurinn í sumarfríi :lol: ).


það er ágætt að vita hver stjórnar leiknum :mrgreen:

Segðu!

Ríka fokking pakk maður, alveg magnaður skítur :)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 16:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
þess má geta að þegar fólk kvæsir Grimmur gyðingur.. þá er nú verið að vísa í þessa famelíu,

móðir bræðrana 5 lét hafa eftir sér að ef synir hennar vildi ekki stríð, þá væru engin stríð í heiminum

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 16:38 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
íbbi_ wrote:
þess má geta að þegar fólk kvæsir Grimmur gyðingur.. þá er nú verið að vísa í þessa famelíu,

móðir bræðrana 5 lét hafa eftir sér að ef synir hennar vildi ekki stríð, þá væru engin stríð í heiminum

:lol: :lol:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 18:09 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43
Posts: 253
Ryugyong hótelið í Norður-Kóreu er samt einna svakalegast.

Byrjað að byggja 1987 og hættu 1992 vegna fjármögnunarvandræða:

Image

28. hæsta bygging í heimi, 330 metrar á hæð. Átti að innihalda 3000 herbergi og átti upprunalega að opna 1989.

Á síðasta ári var byrjað að setja glugga á bygginguna til að gera hana "fallegri", enda í miðri borg. Það á að vera búið fyrir 100 ára afmæli Kim Il Sung.

Image

Leit svona út í febrúar sl. Líklega er hluti byggingarinnar skemmdur sökum þess að ekkert viðhald hefur verið á henni í um 17 ár.

Japanir áætla að kostnaður við bygginguna sé um 750 milljónir dollara. Ekki nema 60 milljarðar iskr á genginu 80.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 27. May 2009 18:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Tók einmitt eftir því í fréttum um daginn að það var búið að glerja hluta af hótelinu.

Annars eru þessir N-Kóreumenn algjörir húmoristar því að staðurinn sem þeir voru að sprengja
kjarnorkusprengju um daginn heitir "Kilju".

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 31 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 8 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group