Mótorhjól fyrir rookie

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Mótorhjól fyrir rookie

Postby Angelic0- » Wed 11. Mar 2009 13:02

Supermoto 8)
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Re: Mótorhjól fyrir rookie

Postby Leikmaður » Thu 21. May 2009 13:37

Sælir.

Jæja, allt í lagi að endurvekja þennan þráð, þó svo að hann hafi aðeins vaknað við fyrir tveimur mánuðum eða svo :)

Þannig er mál með vexti að ég keypti mér Kawasaki Ninju ZX-6R 2007 í fyrra - orange fire á litinn - gríðarlega fallegt hjól. Fannst það svoldið mikið race-ready, stíft og aggressíft - en engu að síður hrikalega skemmtilegt. Ég fór síðan í skiptinám í haust til Suður-Kóreu og seldi hjólið nokkrum dögum fyrir þá reisu - sé eiginlega helv. mikið eftir hjólinu - sérstaklega í ljósi þess að hjólið hefði beðið eftir mér út í bílskúr. Annað en andvirði þess sem fór beint í ginnungargap bankanna :lol:

En nú er ég kominn í sömu stöðu og í fyrra, þ.e.a.s. kominn aftur á klakann og er hjólalaus - er að verða rétt rúmlega geðveikur á því. Ég lofaði sjálfum mér að kaupa mér ekki aftur racer, þar sem maður var orðinn hálf smeykur við sjálfan sig á Ninjunni og aggressívleikanum sem það bauð upp á. Engu að síður toga racer-arnir í mann aftur, og áður en ég vissi af þá var ég kominn aftur í að skoða þá deild.

Ég rétt missti af Ducati Monster hjóli, á góðu verði, sem ég var mjög heitur fyrir. Síðan stendur mér líka til boða Buell Firebolt XB12R hjól sem mér finnst hrikalega spennandi. En mér finnst það samt svoldið mikill ,,pakki" - það er að segja, það er tiltölulega dýrt miðað við nýrri 600 racera og það eru líka fágæt hjól - viðhald+kostnaður eykst. Síðast í gær var ég hársbreidd frá því að fá mér R6 '08 hjól en það strandaði á klinki þar sem hvorugur vildi gefa sig á endanum.

Hvað segja bændur - einhverjar ráðleggingar eða menn í svipuðum hugleiðingum?
Jóhann Karl Hermannsson

BMW 520D F10 ´13
Kawasaki KX450f ´07
8 Ball Lowrider 20"
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Re: Mótorhjól fyrir rookie

Postby bebecar » Thu 21. May 2009 15:06

Ég myndi kíkja á Buell - það er ekki svo dýrt að panta varahluti frá USA í það samanborið við Japan eða Evrópu t.d.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Mótorhjól fyrir rookie

Postby Kristjan PGT » Thu 21. May 2009 16:56

Eg hef lesið slæma hluti um nýlegu R6..það sé mjög tricky og refsi manni hressilega. Sem sagt ekki mjög Reykjarvíkurvænt hjól...
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests