Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Bílalánið mitt er:

Er með lán í frystingu
14
12%
Er með lán í vanskilum
3
3%
Er með lán í skilum en ófryst
38
34%
Er ekki með lán
58
51%
 
Total votes : 113

Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby bebecar » Sun 17. May 2009 14:10

Ég rak augun í frétt í Morgunblaðinu um frystingu á bílalánum en þar er talað um að 25-30 þúsund manns hafi nýtt sér frystingu.

Ef rétt er þá eru þetta svakalegar tölur, sérstaklega þegar haft er í huga að höfuðstóllinn stendur í stað (ef gengið helst óbreytt) á meðan bíllinn lækkar stanslaust í verði.

Manni leikur því forvitni á að vita hvort þetta sé virkilega svona? Var svona mikið um að fólk keypti nýlega bíla á eins miklu láni og hægt var að fá á þá?

Nú er þetta kannski ekki rétti staðurinn til að spyrja enda mikið af fólki hér sem á skuldlausa bíla sem ekki er einu sinni hægt að fá lán á....

En smá könnun allavega... (takið líka mið af því ef þið eruð með lán áhvílandi á fasteign eða með annarri ábyrgð sem var tekið til að kaupa bíl, þó það hvíli ekki á bílnum, að þá ætti að svara eins fyrir slík lán eins og þau hvíli í raun á bílnum.

Er mikið um svona dæmi eins og nefnd eru á Eyjunni:
Hví sjá ráðamenn ekki hvílík glórulaus vitleysa þetta er orðin.
Keypti bíl í góðri trú 2007 á 4 millur á myntkörfuláni, er búinn að borga 2 milljónir síðan, lánið stendur nú í 6,7 milljónum, þ.e. 8.7 milljónir fyrir þessa bíltík, kalla hana fátækragildru, sem ég gæti hugsanlega selt á 2,5 í dag.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby Aron Fridrik » Sun 17. May 2009 14:47

Image
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby DABBI SIG » Sun 17. May 2009 14:52

Ætla lítið að tjá mig um lán, vanskil, frystingu og fleira eða hvort það sé sniðugt og svo framvegis þar sem ég er ekkert í þeim pakka. En hinsvegar með könnunina þá held ég að hún verði seint marktæk.
Aðallega vegna þess að þeir sem í raun eru með eitthvað af ofantöldu, öðru en ekkert lán, þeir nenna ekki að svara svona könnun og vilja ekkert vera lýsa því yfir hvernig lánið stendur hjá þeim. Eða einhvernveginn allavega grunar mig það...
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
Image
User avatar
DABBI SIG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 377
Joined: Fri 27. Apr 2007 00:51
Location: tja...einhversstaðar að leika mér:D

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby 98.OKT » Sun 17. May 2009 18:24

Ég er nú svo ótrúlega heppinn að ég var að selja bíl sem var með láni, lánið var íslenskt og í góðum gír þannig að ég gat losnað nokkuð auðveldlega frá því, en bíllinn sem ég átti á undan honum var þrískipt, s.s jen,frankar og íslenskt, og var fyrir ári u.þ.b 1.250.000.kr. en er í dag rúmlega 1.600.000, svo ég er feginn að hafa selt hann áður en allt fór til fjandans :P

Ákvað að keyra bara um á ódýrum bíl í einhvern tíma og safna bara meira fyrir almennilegum bíl, enda eru lán ekki það heitasta í dag :wink:
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE
98.OKT
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1154
Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Location: Reykjavík

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby bebecar » Mon 18. May 2009 06:31

Það virðast flestir hér vera í þokkalegum málum - hefur allavega borgað sig að eiga svo gamla bíla að það sé ekki hægt að fá lán fyrir þeim (síðastliðið árið í það minnsta).

En engu síður - þetta eru verulega sjokkerandi tölur, hvað þá þegar fólk er farið að borga meira af bílnum en húsnæðinu sínu. Og svo gæti fólk í ofanálag setið uppið með hrútleiðinlegan vísitölubíl :(
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby Thrullerinn » Mon 18. May 2009 08:01

Félagi minn er búinn að selja bíl sinn margsinnis en alltaf er kaupandanum neitað að taka yfir lánið á bílnum.

Hann tók því upp á því að hreinlega setja lánið sitt í vanskil 1-2 mánuði svo hann hefði einhvern séns á því að
losna við hann, ömurlegt en skiljanlegt.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby Einarsss » Mon 18. May 2009 08:16

Thrullerinn wrote:Félagi minn er búinn að selja bíl sinn margsinnis en alltaf er kaupandanum neitað að taka yfir lánið á bílnum.
Hann tók því upp á því að hreinlega setja lánið sitt í vanskil 1-2 mánuði svo hann hefði einhvern séns á því að
losna við hann, ömurlegt en skiljanlegt.



lenti alveg nokkrum sinnum í þessu í vetur, en gekk þó á endanum þar sem "síðasti" kaupandinn hafði tök á að borga inná lánið :D
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby bebecar » Mon 18. May 2009 08:54

einarsss wrote:
Thrullerinn wrote:Félagi minn er búinn að selja bíl sinn margsinnis en alltaf er kaupandanum neitað að taka yfir lánið á bílnum.
Hann tók því upp á því að hreinlega setja lánið sitt í vanskil 1-2 mánuði svo hann hefði einhvern séns á því að
losna við hann, ömurlegt en skiljanlegt.



lenti alveg nokkrum sinnum í þessu í vetur, en gekk þó á endanum þar sem "síðasti" kaupandinn hafði tök á að borga inná lánið :D


Þetta er náttúrulega út í hött, talandi um skammgóðan vermir... leyfa fólki ekki einu sinni að selja bílinn!

En það er þá kannski orðin standardinn í dag að ef þú vilt taka yfir lán á bíl þá verður að borga inn á það - annars gengur salan ekki í gegn?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby Einsii » Mon 18. May 2009 09:10

bebecar wrote:Það virðast flestir hér vera í þokkalegum málum - hefur allavega borgað sig að eiga svo gamla bíla að það sé ekki hægt að fá lán fyrir þeim (síðastliðið árið í það minnsta).

En engu síður - þetta eru verulega sjokkerandi tölur, hvað þá þegar fólk er farið að borga meira af bílnum en húsnæðinu sínu. Og svo gæti fólk í ofanálag setið uppið með hrútleiðinlegan vísitölubíl :(


Ég hugsaði einmitt um daginn.. "djöfull er ég feiginn að sytja uppi með 330xi en ekki Skoda octavia 1,9 diesel" :D
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby Axel Jóhann » Mon 18. May 2009 10:12

Ég er svo guðslifandi feginn að ég fékk mér gamlann bmw þegar ég fékk prófið í staðinn fyrir að taka mér lán fyrir einhverri toyotu beyglu.



Er hinsvegar með lán á fordinum hjá mér sem ég keypti í september í fyrra og það lán er íslenskt verðtrygt með 8% vöxtum og hefur lítið sem ekkert breyst og er bara sáttur, ekkert vesen verið, engin frysting eða neitt, enda er engin kreppa í eyjum. :P



Ég hefði aldrei nokkurntímann týmt því að taka lán fyrir vísitölubíl.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby zazou » Mon 18. May 2009 12:31

bebecar wrote:
einarsss wrote:
Thrullerinn wrote:Félagi minn er búinn að selja bíl sinn margsinnis en alltaf er kaupandanum neitað að taka yfir lánið á bílnum.
Hann tók því upp á því að hreinlega setja lánið sitt í vanskil 1-2 mánuði svo hann hefði einhvern séns á því að
losna við hann, ömurlegt en skiljanlegt.



lenti alveg nokkrum sinnum í þessu í vetur, en gekk þó á endanum þar sem "síðasti" kaupandinn hafði tök á að borga inná lánið :D


Þetta er náttúrulega út í hött, talandi um skammgóðan vermir... leyfa fólki ekki einu sinni að selja bílinn!

En það er þá kannski orðin standardinn í dag að ef þú vilt taka yfir lán á bíl þá verður að borga inn á það - annars gengur salan ekki í gegn?

Þetta er það sem ég lenti í trekk í trekk með krabbameinið (X5) síðasta sumar :roll:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby 98.OKT » Mon 18. May 2009 18:53

Ég skil bara ekki alveg þessa stefnu hjá lánafyrirtækjunum að gera yfirtökurnar svona erfiðar og of ströng skilirði, þar sem að margir af þeim sem eru að selja í dag verða hreinlega að gera það til að lenda ekki í slæmum fjárhagsmálum, en þeir sem eru á höttunum eftir að taka yfir lánin, eru væntarlega meiri borgunarmenn fyrir lánunum. Sem þýðir að það væri öllum í hag að losa aðeins um þennan hnút sem þeir eru að setja á þessi viðskipti....
En auðvitað er allt í lagi að hafa þessi skilirði svona ströng með ný lán :wink:
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE
98.OKT
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1154
Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Location: Reykjavík

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby íbbi_ » Mon 18. May 2009 21:35

ég lenti í þessu með 2 bíla sem ég var með lán á. fékk ekki að yfirtaka, og svo þegar ég fann loksins einhvern sem vildi borga inn á það þá voru tölurnar bara hækkaðar,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby Axel Jóhann » Mon 18. May 2009 22:21

Þegar ég var að leita að bíl var minnsta útborgun sem maður komst upp með 25% flestir vildu bara lána 70% af heildarverði.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Bílalán, fyrsting, vanskil, o.s.frv.

Postby 98.OKT » Mon 18. May 2009 22:27

Axel Jóhann wrote:Þegar ég var að leita að bíl var minnsta útborgun sem maður komst upp með 25% flestir vildu bara lána 70% af heildarverði.


Málið var að það var svo auðvelt að fá alveg 90-100% lán á bílana með því að skrifa á kaupsamninginn að maður væri að kaupa bílinn á meira en maður var raunverulega að gera, og þannig leit þetta út hjá lánafyrirtækjunum eins og útborgunin væri alveg 20-30% :wink:
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE
98.OKT
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1154
Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Location: Reykjavík

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests