Ég rak augun í frétt í Morgunblaðinu um frystingu á bílalánum en þar er talað um að 25-30 þúsund manns hafi nýtt sér frystingu.
Ef rétt er þá eru þetta svakalegar tölur, sérstaklega þegar haft er í huga að höfuðstóllinn stendur í stað (ef gengið helst óbreytt) á meðan bíllinn lækkar stanslaust í verði.
Manni leikur því forvitni á að vita hvort þetta sé virkilega svona? Var svona mikið um að fólk keypti nýlega bíla á eins miklu láni og hægt var að fá á þá?
Nú er þetta kannski ekki rétti staðurinn til að spyrja enda mikið af fólki hér sem á skuldlausa bíla sem ekki er einu sinni hægt að fá lán á....
En smá könnun allavega... (takið líka mið af því ef þið eruð með lán áhvílandi á fasteign eða með annarri ábyrgð sem var tekið til að kaupa bíl, þó það hvíli ekki á bílnum, að þá ætti að svara eins fyrir slík lán eins og þau hvíli í raun á bílnum.
Er mikið um svona dæmi eins og nefnd eru á Eyjunni:
Quote:
Hví sjá ráðamenn ekki hvílík glórulaus vitleysa þetta er orðin.
Keypti bíl í góðri trú 2007 á 4 millur á myntkörfuláni, er búinn að borga 2 milljónir síðan, lánið stendur nú í 6,7 milljónum, þ.e. 8.7 milljónir fyrir þessa bíltík, kalla hana fátækragildru, sem ég gæti hugsanlega selt á 2,5 í dag.