bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 04:21

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 301 posts ]  Go to page Previous  1 ... 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15 ... 21  Next
Author Message
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:25 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Alpina wrote:
bimmer wrote:
Það eru ca.100 hross týnd í RNGTOY - þarf að finna þau.

Er á pari við ca. 400hp bíla (Skyline, GT3RS) þannig að eitthvað
er ekki eins og það á að vera.


bingo,,, told you..

((((( afhverju eru þau allt í einu týnd ??..... þetta var ekki svona í fyrra BARA MEGA POWER þá 8) )))

:evil: :evil: :evil:


Er ekki búið að lækka þjöppu töluvert síðan þá til dæmis?

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Kannski fengu nokkrir hestana svínaflensuna og voru ekki vel stemmdir :lol:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:28 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Jæja, ég er loksins komin heim eftir snúin túr en ótrúlega viðburðarríka ferð!

Á föstudags morgun er ég á leið til Fredericia með lestinni þegar Jón Freyr hringir og tilkynnir að hann sé stopp út í kannti (helv E30 :bawl: ). Verulega súrt fyrir Jón Frey sem missti af mjög góðri ferð þrátt fyrir góðan undirbúning og fjáraustur í bílinn fyrir ferðina. En ég þurfti semsagt að ákveða hvort ég snéri við eða reyndi að finna út úr því að koma mér áfram.

það varð úr að ég tók lest til Hannover frá Fredericia og Gísli, sem var staddur í Strasbourg, tók á sig útúrdúr upp á sirka 1000 kílómetra til að mæta mér þar - þannig vorum við búnir að reikna út að við næðum á skikkanlegum tíma á slaufuna og næðum nokkrum bjórum með strákunum. Gísli var vel græjaður á E60 525d og hefði nú eflaust ekki lagt í þetta annars.

Við náðum til Adenau þar sem við gistum rétt fyrir tólf og hittum svo strákana, sem voru svo góðir að ganga úr skugga um að það yrði eldað ofan í okkur, drukkum bjór og spjölluðum.

Laugardagurinn var bara flottur. Bongó blíða, fullt af gömlum DTM græjum og VLN keppni. Við tókum svo smá "pit walk" og það var gaman að því og eitt og annað skemmtilegt þar að sjá.

Að lokum legg ég til að Þórður fái auka nafnið Reimar :wink:

Sunnudagur, slaufudagur. Langur og góður dagur og ekki mikið af lokunum. Bíllinn hjá Þórði var til friðs mestan partinn og fór hann rönn með okkur hina - þessa bíllausu. Bíllinn er algjört verkfæri, vel sprækur og afar hörkulegur. Þórður er líka grimmur á bílnum og kann að refsa honum. Í einum hringnum snérist Porsche 944 beint fyrir framan okkur, Þórður neglir á bremsurnar og á meðan Porsche-inn rennur yfir í hægra armcoið á góðri ferð þarf Þórður að ákveða hvoru megin hann fari framhjá bílnum eða hvort hann geti stoppað alveg, Porsche-inn rennur svo yfir brautina aftur og endar í armcóinu vinstra megin. Vel lemstraður ef ekki ónýtur. Ökumenn og farþega í góðu standi samt. Þórður þarf að aka út af og rýkur út til að flagga... hmmm hann virðist hafa lennt í þessu áður :lol:

Þetta var afar holl lexía. Dæmigerð yfirstýring, líklega komið of hratt úr úr beygjunni og þegar þyngdin færist á framhlutann missir bíllinn grip að aftan og þá er voðin laus. Það var einmitt þetta sem maður áttaði sig vel á á Spa, þegar Sveinn fór með mig í gryfjuferð, að þar er svigrúm fyrir mistök MUN MEIRA en á slaufunni er það eiginlega ekki neitt.

Fyrir mitt leiti þá yrði valið alltaf að vera þokkalega ódýr bíll, stock vél algjört skilyrði og helst bara fá bíl sem þolir að fara hring eftir hring. Það er einfaldlega MJÖG pirrandi að borga fullt af pening fyrir að tjakka bílinn upp daginn út og daginn inn.

En, já ég fór líka túr í 911 S með PDK, eigandinn vildi endilega sýna mér hvernig þetta virkaði á slaufunni - ég hef ekið PDK bílum sjálfur á braut og var mjög impressed en það sást líka að þetta virkaði verulega vel á slaufunni, bíllinn skyldi meira að segja CSL bílana eftir þegar hann náði traction á leið úr beygjum og raðaði inn gírunum eins og ekkert væri. Eigandinn hafði keypt bílinn eingöngu í brautarakstur og var búin að keyra 12 þúsund kílómetra... semsagt er þetta einn af bílunum sem fer hring eftir hring, án vandræða.

Ég fór líka og fékk túr og leiðsögn hjá 75 Experience, þeir leigja út Alfa Romeo 75 druslur sem kosta lítið útleigu en bjóða upp á allt fyrir peninginn. Þeir eru allir með búri, coilovers settu upp fyrir slaufuna, uppgreiduðum bremsum, körfustólum og góðu stýri. Það var lygilegt hvað bíllinn komst í höndunum á ökumanninum sem á reyndar 3000 hringi að baki á slaufunni. Hann stóð í MIKLU öflugri bílum og náði 200 km/klst á brautinni þrátt fyrir að þetta sé bíll sem er búin að vera í útleigu síðan fyrir löngu síðan og hefur hann ekið 120 þúsund kílómetra bara á slaufunni. Þar sem ég er líka mikill Alfa aðdáandi þá verður það að fylgja að frá byrjun leigunnar hefur ALDREI farið 2.0 lítra Twin Spark vél í bíl hjá þeim... Dale (gaurinn sem keyrði) sagði þetta algjörlega bullet proof vélar og þar hafið þið það!

Spa.... þvílík fegurð þessi braut. Eiginlega ekki hægt að fara mörgum orðum um hana. Því miður varð Sveinn að tjakka Hulk upp og niður allan fyrri hluta dagsins enda engin bönd (lesist hosuklemmur) sem halda bílnum... Þórður kom síðar með hringvöðvann og náði ég því miður ekki að fá túr með honum á Spa. Ég náði tveimur rönnum með Hulk hinsvegar og Sveini og í seinna rönninu virkaði bíllinn vel - þetta er algjörlega út í hött aflið í þessi :tease: þriðji gír og semi slikkar og hann kveikir í dekkjunum ef hann vill. Svo bætast við bermsurnar, afar solid bíll og smooth driver eins og Sveinn og Spa er þá einfaldlega lagt að velli... með einni gryfjuför reyndar sem var ágætis reynsla líka (þetta snar stoppar bílinn!!!).

Ég kann þeim búst félögum miklar þakkir fyrir rúntana.

En það má ekki gleyma Sveinka og Cabrio! Það er sérkennileg reynsla að túra slaufuna á E30 Cabrio með þetta miklu afli. Bíllinn rokvinnur, kom eiginlega vel á óvart - en maður verður að ríghalda sér allan hringin því ekki gera stólarnir og beltin það. Sveinbjörn er líka lipur á bílnum og fær líka props!

Ég fékk svo að túra heim með Sveinbirni á gulu hættunni (sem dregur að sér lögreglur í óhóflega miklu mæli) og ég get vottað hér að þetta er mikill togari. Þetta er svakalegt tæki og ég verð að segja að þessi bíll á eiginlega hvergi heima nema á autóban. Hvítur M5 Touring var allavega mjög ánægður með rön við Sveinbjörn og gaf okkur "V" merki þegar leiðir skyldu. Þessi bíll fær mikla athygli og á skilið mikla virðingu.

En... ég missti af lestinni í Horsen (stoppuðum hjá Smára í Hamborg og skoðum flotan hans) og leit út fyrir að ég þyrfti að hanga á lestarstöðinni með rónunum í þrjá og hálfan tíma :aww:

Þeir reyndust fínustu félagar, bendum mér á að það færi lest til Árósa eftir 40 mínútur og ég gæti tekið hana. Þeir vildu endilega panta fyrir mig miða og ég leyfð þeim það, svo spjallaði ég við þá þangað til lestin kom og krassaði ég hjá mági mínum þar og kom mér svo heim í dag....

Löng ferð og viðburðarrík og maður hefur skapað sér betri heildarmynd á hvernig track græju maður vill fá. Fyrir mitt leiti er N/A, léttur bíll, ódýr og nánast alveg óbreyttur (fyrir utan búr, bremsur, stóla, fjöðrun og semi-slikka :lol: ) algjörlega málið. Lotus Elise, E36 M3 eða bara 328i, Porsche 944 eða hreinlega eitthvað með Alfa Twin Spark vélinni frægu - markmiðið væri bara eitt, ná sem mestum tíma brautinni því þetta er ærin kostnaður sem lagt er út í hvort eð er og leiðinlegt að eyða tíma og peningum í að liggja undir bílnum, á verkstæði að laga í stað þess að aka á brautinni.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
bimmer wrote:
Það eru ca.100 hross týnd í RNGTOY - þarf að finna þau.

Er á pari við ca. 400hp bíla (Skyline, GT3RS) þannig að eitthvað
er ekki eins og það á að vera.

En þetta var vel gaman þrátt fyrir bras. Auðvitað átti maður að
eiga varareim :oops:

Við Sæmi gerðum heiðarlega tilraun til að klára dekkin á Spa við
góðar undirtektir - kem með vídeo af því :D


Miðað við hvað finnst þér vanta 100hö?
Var hann sprækari einhvern tímann áður?
Ætti hann að vera sprækari enn hann er?

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
///M wrote:
Alpina wrote:
bimmer wrote:
Það eru ca.100 hross týnd í RNGTOY - þarf að finna þau.

Er á pari við ca. 400hp bíla (Skyline, GT3RS) þannig að eitthvað
er ekki eins og það á að vera.


bingo,,, told you..

((((( afhverju eru þau allt í einu týnd ??..... þetta var ekki svona í fyrra BARA MEGA POWER þá 8) )))

:evil: :evil: :evil:


Er ekki búið að lækka þjöppu töluvert síðan þá til dæmis?


Það gæti verið partur af skýringunni en það er e-ð meira. Þarf að finna út úr því.

Sveinbjörn var alveg frussandi reiður þegar ég gat ekki tekið 400hp Skyline og snýtt honum :lol:

Hér er annars klippa frá slaufunni með DTM:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
ÞETTA var alveg í lagi....... 8) 8) 8) 8) 8) 8)

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
gstuning wrote:
bimmer wrote:
Það eru ca.100 hross týnd í RNGTOY - þarf að finna þau.

Er á pari við ca. 400hp bíla (Skyline, GT3RS) þannig að eitthvað
er ekki eins og það á að vera.

En þetta var vel gaman þrátt fyrir bras. Auðvitað átti maður að
eiga varareim :oops:

Við Sæmi gerðum heiðarlega tilraun til að klára dekkin á Spa við
góðar undirtektir - kem með vídeo af því :D


Miðað við hvað finnst þér vanta 100hö?
Var hann sprækari einhvern tímann áður?
Ætti hann að vera sprækari enn hann er?


Bæði hefur hann verið sprækari áður (reyndar með stock þjöppu) og svo
eiga .8 bör á S50B32 að vera sterkari. Stock S50B32 með .6 bar er að
skila 440hp.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bimmer wrote:

Sveinbjörn var alveg frussandi reiður þegar ég gat ekki tekið 400hp Skyline og snýtt honum :lol:

Hér er annars klippa frá slaufunni með DTM:


Eitt við þetta Skyline run...

Sá bíll var alveg að liggja glettilega vel fannst mér :shock: ,,,,,, ekkert roll osfrv,,,, og ekkert , að fara ,,tilfinningin

En þetta SPA,,,,,, er alveg æði,, bæði sem track,, og heitur pottur ,,

:naughty: :rofl: :rollinglaugh: :rollinglaugh: :rollinglaugh: :rollinglaugh:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:48 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Til þess að keyra af hörku eru Spa, og aðrir álíka staðir, málið - Slaufan er bara of risky upp á að keyra 95% að mínu mati. Svo finnst mér prísinn á þessu track day dæmi þar bara góður!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Hljóðið úr þessum bílum er EPIC svo ekki meira sé sagt.....er búinn að liggja á YouTube að skoða myndbönd !

http://www.youtube.com/watch?v=haPwa8i9VDc&feature=related

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 17:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Þórður áttu til video af okkur á Spa?

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 18:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
fart wrote:
Þórður áttu til video af okkur á Spa?


Held að sem betur fer hafi niðurlægingin ekki fest á filmu en ég held
að ég eigi hins vegar upptöku af þér í malarnámunni :D

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 18:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Mig langaði svo að sjá Flames! 8)

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 18:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Skil samt ekki að minn hafi ekki viljað blása meira en 12psi (var í 16)

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. May 2009 18:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
bimmer wrote:
gstuning wrote:
bimmer wrote:
Það eru ca.100 hross týnd í RNGTOY - þarf að finna þau.

Er á pari við ca. 400hp bíla (Skyline, GT3RS) þannig að eitthvað
er ekki eins og það á að vera.

En þetta var vel gaman þrátt fyrir bras. Auðvitað átti maður að
eiga varareim :oops:

Við Sæmi gerðum heiðarlega tilraun til að klára dekkin á Spa við
góðar undirtektir - kem með vídeo af því :D


Miðað við hvað finnst þér vanta 100hö?
Var hann sprækari einhvern tímann áður?
Ætti hann að vera sprækari enn hann er?


Bæði hefur hann verið sprækari áður (reyndar með stock þjöppu) og svo
eiga .8 bör á S50B32 að vera sterkari. Stock S50B32 með .6 bar er að
skila 440hp.


Þjappa gerir sitt alveg, enn það týnast ekki 100hö bara við lægri þjöppu.
Er vanosið að gera sitt? þ.e aktíverast rétt og svona, lítið mál að tapa Hö-um svoleiðis,
eins og S50 hjá mér , 225hö án vanos í gangi, 275hö með vanos.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 301 posts ]  Go to page Previous  1 ... 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15 ... 21  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group