Jæja, ég er loksins komin heim eftir snúin túr en ótrúlega viðburðarríka ferð!
Á föstudags morgun er ég á leið til Fredericia með lestinni þegar Jón Freyr hringir og tilkynnir að hann sé stopp út í kannti (helv E30

). Verulega súrt fyrir Jón Frey sem missti af mjög góðri ferð þrátt fyrir góðan undirbúning og fjáraustur í bílinn fyrir ferðina. En ég þurfti semsagt að ákveða hvort ég snéri við eða reyndi að finna út úr því að koma mér áfram.
það varð úr að ég tók lest til Hannover frá Fredericia og Gísli, sem var staddur í Strasbourg, tók á sig útúrdúr upp á sirka 1000 kílómetra til að mæta mér þar - þannig vorum við búnir að reikna út að við næðum á skikkanlegum tíma á slaufuna og næðum nokkrum bjórum með strákunum. Gísli var vel græjaður á E60 525d og hefði nú eflaust ekki lagt í þetta annars.
Við náðum til Adenau þar sem við gistum rétt fyrir tólf og hittum svo strákana, sem voru svo góðir að ganga úr skugga um að það yrði eldað ofan í okkur, drukkum bjór og spjölluðum.
Laugardagurinn var bara flottur. Bongó blíða, fullt af gömlum DTM græjum og VLN keppni. Við tókum svo smá "pit walk" og það var gaman að því og eitt og annað skemmtilegt þar að sjá.
Að lokum legg ég til að Þórður fái auka nafnið Reimar
Sunnudagur, slaufudagur. Langur og góður dagur og ekki mikið af lokunum. Bíllinn hjá Þórði var til friðs mestan partinn og fór hann rönn með okkur hina - þessa bíllausu. Bíllinn er algjört verkfæri, vel sprækur og afar hörkulegur. Þórður er líka grimmur á bílnum og kann að refsa honum. Í einum hringnum snérist Porsche 944 beint fyrir framan okkur, Þórður neglir á bremsurnar og á meðan Porsche-inn rennur yfir í hægra armcoið á góðri ferð þarf Þórður að ákveða hvoru megin hann fari framhjá bílnum eða hvort hann geti stoppað alveg, Porsche-inn rennur svo yfir brautina aftur og endar í armcóinu vinstra megin. Vel lemstraður ef ekki ónýtur. Ökumenn og farþega í góðu standi samt. Þórður þarf að aka út af og rýkur út til að flagga... hmmm hann virðist hafa lennt í þessu áður
Þetta var afar holl lexía. Dæmigerð yfirstýring, líklega komið of hratt úr úr beygjunni og þegar þyngdin færist á framhlutann missir bíllinn grip að aftan og þá er voðin laus. Það var einmitt þetta sem maður áttaði sig vel á á Spa, þegar Sveinn fór með mig í gryfjuferð, að þar er svigrúm fyrir mistök MUN MEIRA en á slaufunni er það eiginlega ekki neitt.
Fyrir mitt leiti þá yrði valið alltaf að vera þokkalega ódýr bíll, stock vél algjört skilyrði og helst bara fá bíl sem þolir að fara hring eftir hring. Það er einfaldlega MJÖG pirrandi að borga fullt af pening fyrir að tjakka bílinn upp daginn út og daginn inn.
En, já ég fór líka túr í 911 S með PDK, eigandinn vildi endilega sýna mér hvernig þetta virkaði á slaufunni - ég hef ekið PDK bílum sjálfur á braut og var mjög impressed en það sást líka að þetta virkaði verulega vel á slaufunni, bíllinn skyldi meira að segja CSL bílana eftir þegar hann náði traction á leið úr beygjum og raðaði inn gírunum eins og ekkert væri. Eigandinn hafði keypt bílinn eingöngu í brautarakstur og var búin að keyra 12 þúsund kílómetra... semsagt er þetta einn af bílunum sem fer hring eftir hring, án vandræða.
Ég fór líka og fékk túr og leiðsögn hjá 75 Experience, þeir leigja út Alfa Romeo 75 druslur sem kosta lítið útleigu en bjóða upp á allt fyrir peninginn. Þeir eru allir með búri, coilovers settu upp fyrir slaufuna, uppgreiduðum bremsum, körfustólum og góðu stýri. Það var lygilegt hvað bíllinn komst í höndunum á ökumanninum sem á reyndar 3000 hringi að baki á slaufunni. Hann stóð í MIKLU öflugri bílum og náði 200 km/klst á brautinni þrátt fyrir að þetta sé bíll sem er búin að vera í útleigu síðan fyrir löngu síðan og hefur hann ekið 120 þúsund kílómetra bara á slaufunni. Þar sem ég er líka mikill Alfa aðdáandi þá verður það að fylgja að frá byrjun leigunnar hefur ALDREI farið 2.0 lítra Twin Spark vél í bíl hjá þeim... Dale (gaurinn sem keyrði) sagði þetta algjörlega bullet proof vélar og þar hafið þið það!
Spa.... þvílík fegurð þessi braut. Eiginlega ekki hægt að fara mörgum orðum um hana. Því miður varð Sveinn að tjakka Hulk upp og niður allan fyrri hluta dagsins enda engin bönd (lesist hosuklemmur) sem halda bílnum... Þórður kom síðar með hringvöðvann og náði ég því miður ekki að fá túr með honum á Spa. Ég náði tveimur rönnum með Hulk hinsvegar og Sveini og í seinna rönninu virkaði bíllinn vel - þetta er algjörlega út í hött aflið í þessi

þriðji gír og semi slikkar og hann kveikir í dekkjunum ef hann vill. Svo bætast við bermsurnar, afar solid bíll og smooth driver eins og Sveinn og Spa er þá einfaldlega lagt að velli... með einni gryfjuför reyndar sem var ágætis reynsla líka (þetta snar stoppar bílinn!!!).
Ég kann þeim búst félögum miklar þakkir fyrir rúntana.
En það má ekki gleyma Sveinka og Cabrio! Það er sérkennileg reynsla að túra slaufuna á E30 Cabrio með þetta miklu afli. Bíllinn rokvinnur, kom eiginlega vel á óvart - en maður verður að ríghalda sér allan hringin því ekki gera stólarnir og beltin það. Sveinbjörn er líka lipur á bílnum og fær líka props!
Ég fékk svo að túra heim með Sveinbirni á gulu hættunni (sem dregur að sér lögreglur í óhóflega miklu mæli) og ég get vottað hér að þetta er mikill togari. Þetta er svakalegt tæki og ég verð að segja að þessi bíll á eiginlega hvergi heima nema á autóban. Hvítur M5 Touring var allavega mjög ánægður með rön við Sveinbjörn og gaf okkur "V" merki þegar leiðir skyldu. Þessi bíll fær mikla athygli og á skilið mikla virðingu.
En... ég missti af lestinni í Horsen (stoppuðum hjá Smára í Hamborg og skoðum flotan hans) og leit út fyrir að ég þyrfti að hanga á lestarstöðinni með rónunum í þrjá og hálfan tíma
Þeir reyndust fínustu félagar, bendum mér á að það færi lest til Árósa eftir 40 mínútur og ég gæti tekið hana. Þeir vildu endilega panta fyrir mig miða og ég leyfð þeim það, svo spjallaði ég við þá þangað til lestin kom og krassaði ég hjá mági mínum þar og kom mér svo heim í dag....
Löng ferð og viðburðarrík og maður hefur skapað sér betri heildarmynd á hvernig track græju maður vill fá. Fyrir mitt leiti er N/A, léttur bíll, ódýr og nánast alveg óbreyttur (fyrir utan búr, bremsur, stóla, fjöðrun og semi-slikka

) algjörlega málið. Lotus Elise, E36 M3 eða bara 328i, Porsche 944 eða hreinlega eitthvað með Alfa Twin Spark vélinni frægu - markmiðið væri bara eitt, ná sem mestum tíma brautinni því þetta er ærin kostnaður sem lagt er út í hvort eð er og leiðinlegt að eyða tíma og peningum í að liggja undir bílnum, á verkstæði að laga í stað þess að aka á brautinni.