Jónas wrote:
Hann er að fá 1.8 mills á ári fyrir að gera EKKERT.
Það á að afnema öll listamannalaun, sérstaklega þessi helvítis "heiðurslaun".
Ef fólk getur ekki lifað á listinni sinni þá segir það bara eitt, listin þín er léleg og þú átt ekki að vera listamaður.
Ef það ætti að vera svona þá ætti þetta náttúrulega að ná yfir allt - t.d. ættu þá, með sömu rökum, íþróttahreyfingar að greiða sjálfar fyrir sína aðstöðu (ef það er ekki nóg innkoma til að greiða fyrir hallirnar t.d. með tekjum af fótboltaleikjum þá er greinilega um að ræða lélega íþróttamenn). Mér þætti það reyndar alveg í lagi - það væri minni afskipti frá hendi ríkisins og fólk gæti þá ráðið hvort það styrkir listir eða íþróttir t.d.
En á meðan að peningum er ausið t.d. í íþróttamannvirki þá finnst mér heldur ekkert að því að einhverjum styrkjum (sem blikna í samanburði) sé veitt í listir og menningu.
En með Þráin þá þætti mér í lagi að halda heiðurslaunum (sem eru hálfgerð verðlaun) en ekki listamannalaunum þar sem hann ætti náttúrulega ekki að hafa mikin tíma til að sinna listum á næstu mánuðum á meðan hann situr á þingi. En við þetta bætast sjónarmið eins og t.d. atvinnuöryggi - hann gæti verið horfin af þingi eftir einhverja mánuði ef það verður kosið fljótlega aftur.