bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 07:57

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 15 posts ] 
Author Message
PostPosted: Sat 31. Jan 2009 08:55 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
Jæja.. nú er ég orðinn frekar þreyttur á þessum hægagangi í bílnum hjá mér..

Er búinn að láta lesa af honum, það er búið að skipta um skynjara og spíssa og hvaðeina..

Þannig er mál með vexti að bíllinn hjá mér, skiptir engu máli hvort hann er heitur eða kaldur.. ef maður kveikir á honum þá gengur hann einsog klukka, en um leið og maður er búinn að rev'a uppí 2000snúninga og aftur niður í hægagang (skiptir ekki máli hvort ég fer á ferð, eða geri þetta bara með hann í park, ekki á ferð) þá byrjar hann að ganga svona truntugangi, og vélin fer að titra alveg á fullu, en það skrítna er að ef ég drep á honum og kveiki aftur á honum.. þá er þessi gangur úr sögunni, þangaðtil ég gef honum aftur inn.. þá byrjar þetta aftur.

Segið mér nú elsku bmw hneturnar mínar.. hvað dettur ykkur í hug?
Ekki getur sveifarásinn verið orðinn skakkur eða eitthvað?
á reyndar eftir að kíkja á mótorpúðana en efast um að það sé málið.. gætu þeir verið lausir eða eitthvað þvíumlíkt og þar að leiðandi verið að valda þessu?

Já og svo er eitt enn, það kemur alltaf þessi svaðalega dísel stybba inní bílinn hjá mér, las einhversstaðar að það að skipta um frjókornasíu myndi líklegast laga þetta vandamál, nú veit ég voða lítið um hvað hún gerir.. en ekki gæti hún verið að valda einhverju svona??

Með von um skjót og góð svör.

Kv. Hannes :)

_________________
e36 316 Touring 1998
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 31. Jan 2009 10:29 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
brotinn viftuspaði skapaði svona víbring hjá mér einusinni....

Veit samt ekkert hvernig þetta er í svona nýmóðins bílum
:lol:

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 31. Jan 2009 11:12 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
jon mar wrote:
brotinn viftuspaði skapaði svona víbring hjá mér einusinni....

Veit samt ekkert hvernig þetta er í svona nýmóðins bílum
:lol:


Hehe, takk fyrir ábendinguna ;) er reyndar nýbúinn að þurfa að rífa viftuspaðann af hjá mér til að skipta um hjólið sem er skrúfað uppá sveifarásinn og snýr viftureyminni og því dóti... ég held að gúmmídemparinn á því hafi rifnað í sundur útaf víbríngnum í vélinni :evil:

_________________
e36 316 Touring 1998
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 31. Jan 2009 12:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Lenti líka í skemmtilegum víbring síðasta sumar og var það brotnir viftuspaðar sem voru að valda því... keypti nýjan og málið úr sögunni

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 31. Jan 2009 12:26 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Kannast vel við þessi einkenni hjá þér.

Demparahjólið er galli í þessum bílum. Mitt splúndraðist í sumar, 11/2004 keyrður 120þús.

Varðandi truntuganginn þá hreinsaði bogl EGR valvinn, endurforrituðu vélatölvuna og settu einhvern spíssahreinsi í olíuna. Steinhætti þessu hjá mér.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 31. Jan 2009 15:02 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
JonHrafn wrote:
Kannast vel við þessi einkenni hjá þér.

Demparahjólið er galli í þessum bílum. Mitt splúndraðist í sumar, 11/2004 keyrður 120þús.

Varðandi truntuganginn þá hreinsaði bogl EGR valvinn, endurforrituðu vélatölvuna og settu einhvern spíssahreinsi í olíuna. Steinhætti þessu hjá mér.


Ja okei, snilld, tok reyndar EGR valve og hreinsadi hann sjalfur um daginn, og enginn munur :/ en aetla lata bogl fikta i tolvunni hja mer og sja hvad setur, er buinn ad vera setja spissahreinsi sjalfur, en aetla tha ad lata tha prufa sinn i leidinni :D

Kv. Hannes :)

P.s. Er i sima svo stafirnir gaetu komid i ruglinu :p

_________________
e36 316 Touring 1998
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 31. Jan 2009 15:34 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Getur síðan athugað hvort að öndunarfilterinn á ventlalokinu sé stíflaður.

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re:
PostPosted: Wed 04. Mar 2009 17:52 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
Djofullinn wrote:
Getur síðan athugað hvort að öndunarfilterinn á ventlalokinu sé stíflaður.


Hann var kolstíflaður, var að kaupa nýjan og smella honum í... og getiði hvað :!:

























Enginn munur.. frekar en vanalega.. hvað sem maður gerir :evil:

(er reyndar ekki buinn að fara og prufa að láta bogl kíkja á tölvuna.. verð að fara komast í það!)

_________________
e36 316 Touring 1998
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 04. Mar 2009 20:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
þessi bíll sem að þú errt með hefur látið svona með hléum af og til, aldrei komið neitt haldbært út úr því, bara mikill hristingur

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Mar 2009 00:00 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
íbbi_ wrote:
þessi bíll sem að þú errt með hefur látið svona með hléum af og til, aldrei komið neitt haldbært út úr því, bara mikill hristingur



amm, frekar pirrandi sko :P en ég dreg til baka fyrra commentið mitt.. þetta lagaðist nú e-h þegar ég fór að keyra hann smá.. núna er bara að troða spíssahreinsi á helvítið og sjá hvað setur.. fer svo við tækifæri og læt bogl kíkja á tölvuna og endurræsa villur og svoleiðis, nema það sé einhver hérna sem getur aðstoðað mig við það..? er með snúru og carsoft og svona en hef einhvernvegin aldrei fengið það til að virka með bimmanum :/ (var e-h að reyna að koma þessu saman um daginn og þá kviknaði á airbag ljósinu hjá mér :oops: )

_________________
e36 316 Touring 1998
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 15. Apr 2009 15:35 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
Jæja.. fór með bílinn í bogl og þeir fundu loksins útúr því hvað var að kvikindinu.... þetta var ekki merkilegra en það... að það er rifinn mótorpúði vinstramegin :lol:

_________________
e36 316 Touring 1998
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 22. Apr 2009 14:34 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
Var einmitt að renna niður þennan þráð með það í huga að skrifa: "Beint í greiningu hjá B&L - ekkert bull". Ekkert ódýrt grín að fara að skipta út spíssum og tilheyrandi án þess að vera 100% á því að það sé málið. Hef mjög góða reynslu af bilanagreiningu hjá B&L samanborið við aðra jókera á markaðnum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 23. Apr 2009 00:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
thisman wrote:
Var einmitt að renna niður þennan þráð með það í huga að skrifa: "Beint í greiningu hjá B&L - ekkert bull". Ekkert ódýrt grín að fara að skipta út spíssum og tilheyrandi án þess að vera 100% á því að það sé málið. Hef mjög góða reynslu af bilanagreiningu hjá B&L samanborið við aðra jókera á markaðnum.

Jahh, þeir byrjuðu nú á að segja að þetta væri þetta hjól sem var skipt um fyrir 3 vikum eftir 1 dag í bilanaleit ;) Þeir voru látnir taka bílinn aftur inn og eyða öðrum degi í bilanaleit og þá ráku þeir augun í þetta :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 24. Apr 2009 08:21 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
ValliFudd wrote:
thisman wrote:
Var einmitt að renna niður þennan þráð með það í huga að skrifa: "Beint í greiningu hjá B&L - ekkert bull". Ekkert ódýrt grín að fara að skipta út spíssum og tilheyrandi án þess að vera 100% á því að það sé málið. Hef mjög góða reynslu af bilanagreiningu hjá B&L samanborið við aðra jókera á markaðnum.

Jahh, þeir byrjuðu nú á að segja að þetta væri þetta hjól sem var skipt um fyrir 3 vikum eftir 1 dag í bilanaleit ;) Þeir voru látnir taka bílinn aftur inn og eyða öðrum degi í bilanaleit og þá ráku þeir augun í þetta :)

Jæja, enginn er fullkominn I suppose. :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 24. Apr 2009 19:48 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43
Posts: 2186
ValliFudd wrote:
thisman wrote:
Var einmitt að renna niður þennan þráð með það í huga að skrifa: "Beint í greiningu hjá B&L - ekkert bull". Ekkert ódýrt grín að fara að skipta út spíssum og tilheyrandi án þess að vera 100% á því að það sé málið. Hef mjög góða reynslu af bilanagreiningu hjá B&L samanborið við aðra jókera á markaðnum.

Jahh, þeir byrjuðu nú á að segja að þetta væri þetta hjól sem var skipt um fyrir 3 vikum eftir 1 dag í bilanaleit ;) Þeir voru látnir taka bílinn aftur inn og eyða öðrum degi í bilanaleit og þá ráku þeir augun í þetta :)

Get your facts straight


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 15 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group